Byrjað að undirbúa stofnun stöðugleikasjóð

Bjarni Bene­dikts­son er búinn að skipa þrjá ein­stak­linga í sér­fræð­inga­nefnd sem á að und­ir­búa lög­gjöf um stofnun stöð­ug­leika­sjóðs. Hann seg­ist finna fyrir miklum þverpóli­tískum stuðn­ingi við málið.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra er búinn að skipa sér­fræð­inga­nefnd sem á að und­ir­búa lög­gjöf um stofnun stöð­ug­leika­sjóðs sem heldur utan um arð af orku­auð­lindum rík­is­ins. Þetta kom fram í ræðu hans á Við­skipta­þingi Við­skipta­ráðs Íslands nú síð­degis.

„Grunn­hugs­unin hér er sú að við komum á fót stöð­ug­leika­sjóð sem haldi utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs og tryggi kom­andi kyn­slóðum hlut­deild í ávinn­ingi af sam­eig­in­legum auð­lindum um leið og hann getur verið sveiflu­jafn­andi fyrir efna­hags­lífið,“ sagði Bjarni, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann ræðir sjóð af þessu tagi. Það gerði hann í fyrsta skipti á síð­asta kjör­tíma­bili, á árs­fundi Lands­virkj­unar. Þá er kveðið á um stofnun stöð­ug­leika­sjóðs í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar.

Fyrsta skrefið í stofnun sjóðs­ins er skipun sér­fræð­inga­nefnd­ar­innar, og hún kemur saman núna fyrir helgi að sögn Bjarna. Nefndina munu skipa Ingi­mundur Frið­riks­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, Kristín Har­alds­dóttir, lög­fræð­ingur, sér­fræð­ingur í auð­linda­rétti og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, og Erlendur Magn­ús­son fjár­festir.

„Þessi sér­fræð­inga­hópur mun starfa mjög náið þverpóli­tískt, sem er gríð­ar­lega mik­il­vægt, vegna þess að það er ekk­ert vit og það er eng­inn ávinn­ingur í því að koma á fót sjóði sem hugs­aður er til langrar fram­tíðar ef það er ekki þverpóli­tískur stuðn­ingur við það og það eru líkur til þess að honum verði breytt við næstu kosn­ingar og svo fram­vegis. En góðu frétt­irnar eru þær að ég finn fyrir mjög góðum þverpóli­tískum stuðn­ingi við þessa hug­mynd sem að við erum að leggja grunn að núna og ætlum að hrinda í fram­kvæmd á kjör­tíma­bil­inu,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auðlindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár