„Mörg fyrirtæki eru því stórlöskuð; horfur eru óljósar, skuldir hafa hlaðist upp“

Skulda­vandi í ferða­þjón­ustu getur stór­hamlað upp­bygg­ingu næstu ára að mati SA og SAF. Þótt vand­inn hafi auk­ist mikið í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum þá var hann til staðar áður en COVID-19 kom til sög­unnar.

Hagsmunaverðir atvinnulífsins vonast til þess að fjöldi ferðamanna hérlendis verði 700-800 þúsund í ár. Árið 2019 voru þeir tvær milljónir.
Hags­muna­verðir atvinnu­lífs­ins von­ast til þess að fjöldi ferða­manna hér­lendis verði 700-800 þús­und í ár. Árið 2019 voru þeir tvær millj­ónir. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) og Samtök ferða­þjón­ust­unnar (SAF) segja að úrlausn skulda­vanda lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu sé lyk­il­mál sem verði að taka á. Skulda­vand­inn muni að öðrum kosti stór­hamla upp­bygg­ingu næsta ára.

Fjár­hags­staða margra fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu sé afar þröng eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn þrátt fyrir marg­vís­leg úrræði yfir­valda.

Sum þeirra hafi verið tekju­laus í rúmt ár og safnað skuldum á meðan. „Mörg fyr­ir­tæki eru því stór­löskuð; horfur eru óljósar, skuldir hafa hlað­ist upp og erfitt er að ráða starfs­fólk með reynslu. Við­skipta­sam­bönd hafa flosnað upp með brott­hvarfi reynslu­fólks bæði hér­lendis og hjá við­skipta­fyr­ir­tækjum erlendis. Það mun taka tölu­verðan tíma að byggja netið upp á ný.“

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem SA og SAF hafa skilað sam­eig­in­lega til fjár­laga­nefndar Alþingis vegna fyr­ir­liggj­andi frum­varps til fjár­auka­laga.

Svipaðar áhyggjur voru viðr­aðar á fundi fjár­mála­stöðu­leika­nefndar Seðla­banka Íslands á fundi hennar um miðjan apríl, en fund­ar­gerð þess fundar var birt í upp­hafi viku.

Þar sagði að ferða­þjón­ustan og tengdar greinar hafi verið að mestu tekju­lausar í yfir 12 mán­uði. „Að mati nefnd­ar­innar er mik­il­vægt að greiðslu­vandi fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu og tengdum greinum breyt­ist ekki í skulda­vanda þegar fryst­ingum líkur. End­ur­skipu­lagn­ing útlána kann að vera nauð­syn­leg í ein­hverjum til­vikum til að við­spyrnan geti orðið kröftug þegar far­sótt­inni líkur. Að mati nefnd­ar­innar er útlána­á­hætta í bókum bank­anna vegna greiðslu­erf­ið­leika í kjöl­far far­sótt­ar­innar stærsta ein­staka áhættan í efna­hags­reikn­ingum bank­anna.“

Mikill skuldavandi fyrir COVID-19

Skulda­vanda ferða­þjón­ust­unnar má þó ekki ein­ungis rekja til áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í skýrslu KPMG um stöðu ferða­þjón­ust­unnar sem unnin var fyrir Ferða­mála­stofu, og birt var í apríl í fyrra, kom fram að skuldir ferða­þjón­ustu hefðu auk­ist um 83 pró­sent frá árs­lokum 2015 til árs­loka 2019. Á sama tíma juk­ust tekjur grein­ar­innar um þrjú pró­sent.

[adspot]Þar kom fram að heild­ar­skuldir ferða­þjón­ust­unnar við íslenska banka væru lík­ast til um 300 millj­arðar króna fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og að flestar greinar innan geirans hefðu verið komnar að þol­mörkum áður en COVID-19 kom til sög­unnar. Í þeirri skýrslu var hvatt til þess að hluti skulda líf­væn­legra fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu yrði afskrif­aður þá þegar.

Þær leiðir sem eru til staðar fyrir kröfu­hafa ferða­þjón­ustu­fyr­ir­ækja, sem eru aðal­lega íslenskir bankar, til að taka á skulda­vanda þeirra eru nokkrar. Bank­arnir geta afskrifað hluta skulda án þess að það hafi áhrif á eign­ar­hald fyr­ir­tækj­anna. Þeir geta líka breytt hluta krafna sinna í hlutafé í fyr­ir­tækj­unum eða ein­fald­lega tekið þau yfir og selt til ann­arra eig­enda eftir til­tekt.

Vilja að ríkissjóður borgi fyrir frekari markaðssetningu

Í minn­is­blaði hags­muna­varða atvinnu­lífs­ins, sem Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, for­stöðu­maður efna­hags­sviðs SA, og Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri SAF, skrifa undir, kalla sam­tökin eftir því að horft verði til þriggja meg­in­at­riða í ferða­þjón­ustu á næstu mán­uðum.

[links]Í fyrsta lagi vilja þau að rekstr­ar­um­hverfi fyr­ir­tækja verði ein­faldað, að kostn­aður við rekstur þeirra verði minnk­aður. „Ýmis atriði í rekstr­ar­um­hverf­inu væri hægt að lag­færa til að ýta undir skil­virk­ari end­ur­ráðn­inga­feril sem leitt getur til heil­brigð­ari vinnu­mark­aðar og hrað­ari efna­hags­legrar við­spyrnu.“

Í öðru lagi sé úrlausn skulda­vanda lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu lyk­il­mál sem verði að taka á. Skulda­vand­inn mun að öðrum kosti stór­hamla upp­bygg­ingu til næstu ára. „Þetta er vandi sem hverfur ekki af sjálfu sér og vinnur beint gegn mark­miðum um hraða við­spyrnu og virk­ari vinnu­markað.“

Í þriðja lagi segja hags­muna­verð­irnir að stjórn­völd þurfi að horfa til þess hvernig hægt sé að skapa aukin verð­mæti úr ferða­þjón­ustu, ekki endi­lega með meiri fjölda ferða­manna, með betri og vel fjár­magn­aðri mark­aðs­setn­ingu. „Hér skiptir sköpum að búið sé að ákvarða með skýrum hætti hvernig mark­aðs­setn­ingu verður háttað inn í næsta haust og vetur þegar fjár­magn í átaks­verk­efn­inu Saman í sókn klár­ast í lok ágúst. Ef ekk­ert er að gert mun mark­aðs­setn­ing Íslands taka skarpa dýfu niður á við einmitt á þeim tíma sem við þörfn­umst þess mest inn í vet­ur­inn að nýta þá mögu­leika sem eru í vetr­ar­ferðum eftir COVID tíma­bilið. Alþjóð­leg sam­keppni um ferða­menn verður hörð. Skýr sýn hvað þetta varðar hefur áhrif á getu fyr­ir­tækja til að halda starfs­fólki í vinnu yfir vet­ur­inn í stað þess að ráða tíma­bundið yfir sum­ar­tím­ann og skera svo aftur niður yfir vet­ur­inn með til­heyr­andi kostn­aði fyrir atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár