SA og SAF vilja að tekið sé á atvinnulausum sem hafni störfum „af festu“

Hags­muna­verðir atvinnu­lífs­ins segja í minn­is­blaði að ein­ungis hafi tek­ist að ráða í 28 pró­sent þeirra starfa sem aug­lýst hafa verið í átak­inu „Hefjum störf“. Ástæðan sé að uppi­stöðu hækkun atvinnu­leys­is­bóta og leng­ing bóta­tíma­bils. ASÍ hafnar þessu alfari

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Ríflega 9.700 störf höfðu verið skráð í átakið „Hefjum störf“ þann 3. júní, flest tengd ferða­þjón­ustu. Einungis hefur tek­ist að ráða í um 2.700 störf í gegnum átakið, eða 28 pró­sent þeirra sem skráð hafa verið, þrátt fyrir að atvinnu­leysi sé í sögu­legum hæðum.

[links]Í minn­is­blaði sem Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) og Samtök ferða­þjón­ust­unnar (SAF) hafa skilað sam­eig­in­lega til fjár­laga­nefndar Alþingis vegna fyr­ir­liggj­andi frum­varps til fjár­auka­laga segir að fjöldi atvinnu­leit­enda hafi hafnað störfum eða með öðrum hætti sýnt áhuga­leysi á störfum. „Hafa atvinnu­rek­endur í ein­hverjum til­fellum til­kynnt um atvikin og við­kom­andi atvinnu­leit­endur verið felldir af atvinnu­leys­is­skrá. Þetta virð­ist vera almennur vandi og fjöl­mörg dæmi frá atvinnu­rek­endum þess efnis, til SA og SAF sem og í fjöl­miðlum. SA og SAF hvetja til þess að til­kynnt sé um slík atvik.“

Samtökin segja það „mik­il­vægt hags­muna­mál fyrir atvinnu­lífið er að tekið sé af festu á þeim hópi sem hafnar störfum og að Vinnu­mála­stofnun efli hjá sér verk­ferla þannig að ráðn­ing­ar­styrkja­ferlið geti gengið smurt fyrir sig.“

Í minn­is­blað­inu, sem Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, for­stöðu­maður efna­hags­sviðs SA, og Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri SAF, skrifa undir, segja sam­tökin enn fremur að atvinnu­leys­is­trygg­ingar hér á landi séu með þeim rausn­ar­leg­ustu sem þekkj­ast á heims­vísu og að minni hvati er til að snúa aftur til starfa hér á landi en víð­ast hvar ann­ars staðar, bæði vegna mik­illa bóta og mik­illar skatt­byrði. „Úrræði yfir­valda vegna far­ald­urs­ins, svo sem hækkun bóta og leng­ing bóta­tíma­bils, mega ekki hafa í för með sér var­an­lega nei­kvæðar afleið­ingar á vinnu­markað, en spár gera þegar ráð fyrir að atvinnu­leysi verði meira og þrá­lát­ara en gert var ráð fyrir áður en far­ald­ur­inn skall á. Gæta þarf þess að úrræði séu hönnuð þannig að þau feli ekki í sér óæski­lega hvata með til­heyr­andi kostn­aði fyrir rík­is­sjóð og sam­fé­lagið.“

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) hefur hafnað þessum mál­flutn­ingi og sagt að tal um að atvinnu­leys­is­bætur séu óhóf­lega háar stand­ist ekki skoðun. Mið­stjórnin sam­bands­ins hvatti í vik­unni bæði atvinnu­rek­endur og fjöl­miðla til að láta af „nei­kvæðri og bein­línis for­dóma­fullri umfjöllun um atvinnu­leit­endur.“

Ríkið greiðir uppistöðu launa

Rík­is­stjórnin setti í mars af stað sér­stakt atvinnu­á­tak undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf“. Mark­miðið var að skapa allt að 7.000 tíma­bundin störf hjá einka­fyr­ir­tækj­um, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætl­aður kostn­aður við þessar aðgerðir eru 4,5-5 millj­arðar króna. Í átak­inu felst að hið opin­bera greiðir hluta af launum starfs­fólks sem fyr­ir­tæki ráða til sín.

[adspot]Með aðgerð­unum voru svo­kall­aðir ráðn­ing­ar­styrkir víkk­aðir út þannig að lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, með undir 70 starfs­menn, geta nú sótt um ráðn­ing­ar­styrki til þess að ráða starfs­menn sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Þannig mynd­ast hvati fyrir fyr­ir­tæki til þess að ráða fólk til starfa sem hefur verið lengi án vinnu.

Hverjum nýjum starfs­manni fylgir allt að 472 þús­und króna stuðn­ingur á mán­uði, auk 11,5 pró­sent fram­lags í líf­eyr­is­sjóð, í allt að sex mán­uði og getur fyr­ir­tækið ráðið eins marga starfs­menn og það þarf þangað til heildar starfs­manna­fjöldi hefur náð 70. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er sex mán­uðir á tíma­bil­inu frá apríl til des­em­ber 2021.

Fyrir atvinnu­rek­endur í mann­mörgum greinum þar sem tíðkast að greiða laun í lægri kant­inum er því hægt að ráða inn fólk í vinnu næstu mán­uði að uppi­stöðu, jafn­vel að öllu leyti, á kostnað íslenska rík­is­ins.

SA og SAF kvarta yfir því í minn­is­blað­inu að ráðn­ing­ar­styrkja­ferlið sé sein­virkt.

Fjölmörg fyr­ir­tæki hafi boðið starfs­fólki í við­tal í gegnum átakið sem hafi svo verið farið af atvinnu­leys­is­skrá, t.d. vegna þess að það hafi ráðið sig annað. Þetta hefur tafir í för með sér. Þá hafi ein­hver fyr­ir­tæki ráðið inn starfs­menn í gegnum átakið en fengið synjun eftir á frá Vinnu­mála­stofnun þar sem stofn­unin hafði ekki tryggt frá upp­hafi að starfs­menn upp­fylltu skil­yrði ráðn­ing­ar­styrks. „Verk­ferlum hjá Vinnu­mála­stofnun er snúa að átak­inu Hefjum störf virð­ist því vera ábóta­vant, sem skerðir veru­lega virkni úrræð­is­ins.“

ASÍ harmar „sleggjudóma“

Í ályktun mið­stjórnar ASÍ, sem birt var á mið­viku­dag, var þessum mál­flutn­ingi atvinnu­rek­enda og hags­muna­varða þeirra alfarið hafnað.

Þar sagði að skýr merki væru um að ein­stakir atvinnu­rek­endur ætl­uðu að hefja rekstur á ný með því að þrýsta niður launum starfs­fólks. Mið­stjórnin krafð­ist þess að ferða­þjón­ustan yrði ekki end­ur­reist á grund­velli lak­ari kjara og starfs­um­hverfis en áður.

Mið­stjórnin harm­aði enn fremur þá „sleggju­dóma“ sem birst höfðu í opin­berri umræðu um mál­efni atvinnu­leit­enda. „Sú umræða er ekki studd gögnum og er úr hófi fram nei­kvæð og ein­hliða. Mið­stjórn varar við því að ýtt sé undir for­dóma í umfjöllun um vanda þeirra sem glíma við atvinnu­leysi“. Mið­stjórnin hvatti bæði atvinnu­rek­endur og fjöl­miðla til að láta af „nei­kvæðri og bein­línis for­dóma­fullri umfjöllun um atvinnu­leit­endur.“

Hlutfall grunn­bóta af lág­marks­tekju­trygg­ingu sé nú lægra en það var á árunum 2006 til 2010 og í álykt­un­inni sagði að allt tal um að atvinnu­leys­is­bætur séu fram úr hófi háar stand­ist ekki skoðun. „Grunn­bætur nema 88% af lág­marks­tekju­trygg­ingu en á árunum 2006–2010 var það hlut­fall á bil­inu 90–100%. Tekju­fall atvinnu­lausra í COVID-krepp­unni er að jafn­aði 37% og því aug­ljós að fólk gerir það ekki að gamni sínu að hafna vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár