„Daði á ekki séns“

Nær engar líkur eru á að Daði Freyr og Gagna­magnið vinni Eurovision, sam­kvæmt grein í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Eiríkur Ragnarsson hefur litla trú á því að Daði og Gagnamagnið sigri Eurovision í ár
Eiríkur Ragn­ars­son hefur litla trú á því að Daði og Gagna­magnið sigri Eurovision í ár Mynd: EBU

Veð­bankar hafa verið mjög góðir í að spá fyrir um hvaða laga­hópur lendir í þremur efstu sæt­unum í Eurovision, söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva. Því sé ekki séns að Daði Freyr og Gagna­magnið komi til með að vinna keppn­ina fyrir Íslands hönd í ár, þar sem honum er spáð sjötta sætið.

Þetta skrifar Eiríkur Ragn­ars­son, hag­fræð­ingur, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út í gær. Í henni eru vinn­ings­líkur allra kepp­enda í Eurovision sam­kvæmt veð­bönkum bornar saman við árangur þeirra síð­ustu fimm skiptin sem keppnin hefur verið haldin.

Samkvæmt sam­an­burði Eiríks eru veð­bank­arnir ekk­ert sér­stak­lega góðir í að spá nákvæm­lega fyrir um vinn­ings­sætið, auk þess sem þeir eru mjög lélegir í að spá fyrir um sæta­röð­ina hjá öllum kepp­end­unum. Hins vegar séu þeir mjög góðir að spá fyrir um það hvaða hópur lendi í fyrstu þremur sætum keppn­innar.

Eiríkur segir það ekki hafa áður gerst, miðað við hans gögn, að lag utan fyrstu þriggja sæta veð­bank­anna hafi unnið Eurovision. „Sem þýðir að við getum hætt að láta okkur dreyma og notið þess að horfa á keppn­ina vit­andi það að Daði á ekki séns,“ bætir hann við.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár