Fjölmiðlafrelsi mest hjá þeim ríkjum þar sem einkareknir fjölmiðlar eru styrktir

Ísland hefur fallið ár frá ári á lista alþjóð­legra sam­taka um fjöl­miðla­frelsi, úr 10. í 16. sæti á nokkrum árum. Þau lönd sem skipa efstu sæti þess lista eru nágranna­lönd okkar. Þau hafa öll í lengri tíma styrkt einka­rekna fjöl­miðla með opin­beru fé.

Alþingi hefur skilað auðu þegar kemur að því að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á undanförnum árum.
Alþingi hefur skilað auðu þegar kemur að því að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á und­an­förnum árum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í efsta sæti vísi­töl­u Blaða­manna án landamæra um fjöl­miðla­frelsi, fimmta árið í röð, er Noregur. Finn­land er í öðru sæti, Dan­mörk í þriðja sæti og Sví­þjóð í fjórða sæti.

Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista sam­tak­anna og fellur um eitt sæti á milli ára.

Athygli vekur að í öllum þessum ríkjum er umfangs­mik­ill rík­is­stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla.

Hér­lendis hefur staðið yfir ferli um að koma á slíku styrkja­kerfi frá árinu 2016. Fyrst var skipuð nefnd, svo var rituð skýrsla, þá var unnið úr til­lögum hennar og loks smíðuð frum­vörp. Ekkert þeirra hefur náð í gegn nú tæpum fimm árum eftir að ferlið hófst, aðal­lega vegna þess að hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru á móti styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Síðasta útgáfa frum­varps­ins situr nú föst inni í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd þangað sem henni var vísað eftir að Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fékk að mæla fyrir mál­inu seint á síð­asta ári.

Svipað og fyrri frumvörp

Frum­varpið er í grunn­inn með svip­uðu sniði og tvö fyrri frum­vörp sem Lilja lagði fram til þings­ins, eftir að þau höfðu verið sam­þykkt í rík­is­stjórn og þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Það felur í sér að einka­reknir fjöl­miðlar á Íslandi verði styrktir um tæpar 400 millj­ónir króna á ári úr rík­is­sjóði.

[adspot]Styrkirnir til fjöl­miðla eiga að verða í formi end­ur­greiðslna vegna launa­kostn­aðar fjöl­miðla­fólks og útfærslan svipuð og í ein­skipt­is­styrkjum sem fjöl­miðlar fengu til þess að takast á við áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á síð­asta ári.

Í bæði fyrri skiptin sofn­uðu frum­vörp Lilju svefn­inum langa í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd Alþing­is, sem Páll Magn­ús­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins stýr­ir.

Ísland eina norræna ríkið sem veitir ekki stuðning

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Lilju um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla er dregið fram að Ísland er eina nor­ræna ríkið sem ekki veitir beina eða óbeina styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla.

„Í Finn­landi eru veittir styrkir til frétta­blaða sem gefin eru út á tungu­málum minni­hluta­hópa. Víð­tæk­ari fram­leiðslu- og dreif­ing­ar­styrkir eru veittir í Nor­egi og Sví­þjóð. Í Dan­mörku er ann­ars konar styrkja­kerfi þar sem stuðn­ingur er veittur til fram­leiðslu rit­stjórn­ar­efnis á prent­uðu formi fyrir smærri fjöl­miðla með útbreiðslu á lands­vísu auk þess sem net­miðlum er veittur stuðn­ing­ur. Í Dan­mörku er einnig veittur verk­efna­styrkur vegna stofn­unar nýrra fjöl­miðla og þró­unar þeirra miðla sem fyrir eru á mark­aðn­um,“ ­segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir enn fremur að á Norð­ur­lönd­unum hafi mikil umræða átt sér stað um að styrkja einka­rekna fjöl­miðla enn frekar til að þeir nái að fóta sig í heimi þar sem færri og færri kjósa að greiða fyrir fréttir og sam­fé­lags­miðlar hirða stóran hluta aug­lýs­inga­kök­unn­ar.

Mestur stuðningur í Noregi

Mestur er stuðn­ing­ur­inn í Noregi, því landi þar sem fjöl­miðla­frelsi mælist mest í heim­inum. Styrkja­kerfið hefur því ekki leitt til þess að fjöl­miðlar hafi orðið hand­gengn­ari vald­inu þar líkt og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks hafa ítrekað haldið fram að muni ger­ast hér ef fjöl­miðlar verði styrktir úr rík­is­sjóði.

Í Noregi er enn fremur vilji til að auka við opin­bera styrki frekar en að draga úr þeim enda hefur reynslan af þeim verið jákvæð. Hinn 7. mars 2017 skil­aði nefnd sem skipuð var af norskum stjórn­völdum hvít­bók sem inni­hélt til­lögur til að efla fjöl­miðla þar í landi. Meðal þeirra til­lagna sem settar voru fram í hvít­bók­inni var að auka styrk­veit­ingar til smærri fjöl­miðla, ein­falda umsókn­ar­ferlið og gæta jafn­ræðis milli fjöl­miðla óháð því hvernig efni er miðlað. Til­lög­urnar eru enn til með­ferðar hjá norskum stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár