Óli Björn og Brynjar leggja fram frumvarp um að taka RÚV af auglýsingamarkaði

Tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja að RÚV hætti þátt­töku á aug­lýs­inga­mark­aði í tveimur skrefum án þess að RÚV yrði bætt upp tekju­tapið. Þing­maður Vinstri grænna seg­ist klóra sér í koll­inum yfir frum­varp­inu.

Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson eru einu þingmennirnir sem eru á frumvarpinu.
Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson eru einu þing­menn­irnir sem eru á frum­varp­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa lagt fram frum­varp sem leggur til að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði í tveimur skrefum. Það á, að þeirra mati, að gera til að styrkja stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla og gera RÚV kleift að ein­beita sér að menn­ing­ar­hlut­verki sínu.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, sem leiðir starfs­hóp stjórn­ar­þing­manna sem er ætlað að sætta ólík sjón­ar­mið um starf­semi RÚV, klórar sér í hausnum yfir frum­varp­inu. Hann segir álykt­anir Óla Björns og Brynjar um hvernig eigi að styrkja einka­rekna fjöl­miðla benda til þess að þeir séu ekki staddir í nútím­anum. Þess í stað séu þeir „fastir í eigin kreddum.“

Aukið svigrúm fyrir menningarlegt hlutverk

Frumvarp þing­mann­anna tveggja gengur út á að frá byrjun næsta árs og út árið 2023 verði RÚV gert óheim­ilt að stunda beina sölu á aug­lýs­ingum, hlut­fall aug­lýs­inga megi ekki fara yfir fimm mín­útur á hvern klukku­tíma í útsend­ing­ar­tíma, óheim­ilt verði að slíta í sundur dag­skrár­liði með aug­lýs­ingum og bannað að selja kostun á efni. Þátttöku RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði verði svo hætt í byrjun árs 2024.

Ekki er gert ráð fyrir því að RÚV verði bætt það tekju­tap sem fyr­ir­tækið yrði fyrir vegna þessa með öðrum hætti, en tekjur RÚV af sam­keppn­is­rekstri voru 2,2 millj­arðar króna árið 2019.

[adspot]Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segja þeir Óli Björn og Brynjar að með því að draga RÙV af aug­lýs­inga­mark­aði fái fyr­ir­tækið aukið svig­rúm til að sinna því menn­ing­ar­lega hlut­verki sem því er ætlað sam­kvæmt lögum. „Um það verður vart deilt að frjáls fjöl­miðlun á Íslandi stendur höllum fæti. Á sama tíma og sam­keppn­is­staðan er skekkt með lög­vernd­aðri yfir­burða­stöðu Rík­is­út­varps­ins standa einka­reknir inn­lendir fjöl­miðlar frammi fyrir harðri sókn alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja inn á aug­lýs­inga­mark­að­inn.“

Eru á móti styrkjakerfi

Þing­menn­irnir tveir telja aug­ljóst að sam­keppn­is­rekstur rík­is­ins á aug­lýs­inga­mark­aði fjöl­miðla hafi veru­lega nei­kvæð áhrif á rekstur og fjár­hag sjálf­stæðra fjöl­miðla sem flestir standi höllum fæti.

Tak­mörkun á umsvifum og síðar bann við sam­keppn­is­rekstri á sviði aug­lýs­inga og kost­unar ætti því að mati Óla Björns og Brynjars að bæta hag sjálf­stæðra fjöl­miðla. „Óvarlegt er að ætla að þær tekjur sem rík­is­fyr­ir­tækið hefur haft af sölu aug­lýs­inga og kost­unar komi óskertar í hlut sjálf­stætt starf­andi fjöl­miðla eftir 1. jan­úar 2024. Þó má ætla að tekjur sjálf­stæðra fjöl­miðla auk­ist veru­lega og mun meira en gert er ráð fyrir í frum­varpi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um rík­is­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla[...]Flutn­ings­menn telja að skyn­sam­legra sé að styrkja stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla með því að tak­marka veru­lega sam­keppn­is­rekstur rík­is­ins fremur en að koma upp flóknu kerfi milli­færslna og rík­is­styrkja. Slíkt stuðlar að auknu heil­brigði á fjöl­miðla­mark­aði.“

„Fastir í eigin kreddum“

Í febr­úar fól Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, þremur full­trúum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna að rýna lög um RÚV og gera til­lögur að breyt­ingum sem lík­legar eru til að sætta ólík sjón­ar­mið um starf­semi og hlut­verk þess.

Full­trúar flokk­anna eru Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, full­trúi Vinstri grænna sem er jafn­framt for­maður hóps­ins, Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Páll Magn­ús­son, full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi útvarps­stjóri.

[links]Ráð­gert var að þau myndu ljúka störfum eigi síðar en 31. mars, eða í gær. Af því varð ekki og Kolbeinn segir í sam­tali við Kjarnann að vinnu hóps­ins muni ljúka fljót­lega eftir páska.

Hann gagn­rýnir það að Óli Björn og Brynjar hafi lagt fram ofan­greint frum­varp á sama tíma og vinna hóps­ins stendur yfir. „Ég klóra mér í koll­inum yfir þessu. Mér finnst mjög furðu­legt að leggja fram svona mál á meðal að ég sit með öðrum þing­manni þeirra flokks í starfs­hópi þar sem við erum að fara yfir þessi mál, þar á meðal þátt­töku RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði.“

Kolbeinn seg­ist þá hug­mynd Óla Björns og Brynjars að ætla að styrkja stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla ein­ungis með því að draga RÚV út af aug­lýs­inga­mark­aði ekki ganga upp. „Álykt­unin sem þeir draga varð­andi leiðir til að styrkja einka­rekna fjöl­miðla benda til þess að þeir séu ekki staddir í nútím­anum og því fjöl­miðlaum­hverfi sem við búum við, heldur fastir í eigin kreddum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár