Ísland fellur um eitt sæti í vísitölu Blaðamanna án landamæra

Samtökin Blaða­menn án landamæra hafa birt fjöl­miðla­frels­is­vísi­tölu sína fyrir árið 2021. Ísland fellur um eitt sæti á list­anum, niður í það sext­ánda. Her­ferðar Samherja gegn trú­verð­ug­leika frétta­manna á síð­asta ári er getið í umfjöllun sam­tak­anna.

Ísland fellur í fjölmiðlafrelsisvísitölu Blaðamanna án landamæra fjórða árið í röð.
Ísland fellur í fjöl­miðla­frels­is­vísi­tölu Blaða­manna án landamæra fjórða árið í röð. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland fellur um eitt sæti í árlegri fjöl­miðla­frelsi­vísi­tölu sam­tak­anna Blaða­manna án landamæra og situr nú í 16. sæti, eftir að hafa verið í 15. sæti í fyrra.

Herferð sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja gegn blaða- og frétta­mönnum sem fjallað hafa um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins er sér­stak­lega nefnd í umfjöllun sam­tak­anna um stöðu fjöl­miðla á Íslandi.

Þetta er fjórða árið í röð sem Ísland fellur niður list­ann, eftir að hafa verið í 10. sæti árið 2017, en hin nor­rænu ríkin raða sér efst á lista.

Noregur er sem fyrr í efsta sæti vísi­töl­unnar, fimmta árið í röð, þrátt fyrir að í umfjöllun Blaða­manna án landamæra komi fram að fjöl­miðlar þar í landi hafi kvartað undan því að fá lít­inn aðgang að gögnum hins opin­bera um heims­far­ald­ur­inn. Finnland er í öðru sæti, Danmörk í þriðja sæti og Svíþjóð í fjórða sæti.

Í umfjöllun sam­tak­anna um Ísland segir, rétt eins og nokkur und­an­farin ár, að starfs­um­hverfi blaða­manna hafi farið versn­andi árum saman þar sem sam­skipti stjórn­mála­manna og fjöl­miðla hafi súrnað.

[adspot]

Þá segir að efna­hags­hrunið árið 2008 hafi haft mikil áhrif á fjöl­miðla, grafið undan rekstr­ar­for­sendum þeirra og sömu­leiðis getu þeirra til þess að stand­ast þrýst­ing frá hags­muna­hópum.

Á sama tíma hafi traust til fjöl­miðla þó auk­ist og hlut­verk þeirra sem stoðir lýð­ræðis styrkst. Íslensk lög­gjöf verndi blaða­menn og tján­ing­ar­frelsið, en meg­in­vanda­mál íslenskra fjöl­miðla haldi áfram að vera skortur á fjár­magni. Þess er getið að verið sé að ræðja nýja lög­gjöf um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla.

Fjallað er um Sam­herj­a­málið sér­stak­lega og segir í umfjöllun sam­tak­anna að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið hafi árið 2020 farið af stað með fjöl­miðla­her­ferð sem mið­aði að því að draga úr trú­verð­ug­leika frétta­manna sem fjöll­uðu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár