Telur stjórnvöld vera að „smygla“ inn óræddum breytingum í lífeyrismálum

Nýtt frum­varp um breyt­ingar á líf­eyr­is­málum frá fjár­mála­ráð­herra hefur fallið í grýttan jarð­veg hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Forseti ASÍ segir að svo virð­ist sem búið sé að smygla inn í það óásætt­an­legum hlutum sem aldrei hafi verið ræddir.

Drífa Snædal forseti ASÍ gerir miklar athugasemdir við samráðsleysi stjórnvalda í málinu.
Drífa Snædal for­seti ASÍ gerir miklar athuga­semdir við sam­ráðs­leysi stjórn­valda í mál­inu. Mynd: Bára Huld Beck

For­ystu­fólk í verka­lýðs­hreyf­ing­unni er mjög óánægt með nýtt frum­varp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um breyt­ingar á ýmsum lögum vegna hækk­unar lág­marks­ið­gjalds til líf­eyr­is­sjóða og ákvæðum um til­greinda sér­eign. Frum­varpið var lagt fram á þingi í síð­ustu viku, en ekki hefur enn verið mælt fyrir því.

Drífa Snædal for­seti ASÍ hefur óskað eftir fundi með Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna máls­ins. Í sam­tali við Kjarnann segir hún að búið sé að vinna að mál­inu sem slíku í mörg ár.

Í frum­varp­inu séu til dæmis ákveðnir hlutir sem stjórn­völd hétu að gera í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­ana frá árinu 2019. Þegar frum­varpið var lagt fram hafi verið þar líka verið nýmæli sem komu verka­lýðs­hreyf­ing­unni „spánskt fyrir sjónir“.

Að sögn Drífu virð­ist sem búið sé að „smygla ákveðnum hlutum þarna inn“ sem verka­lýðs­hreyf­ingin sætti sig engan veg­inn við. Athuga­semdum hafi hún komið á fram­færi á síð­asta fundi Þjóð­hags­ráðs, sem fram fór á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku.

Þrjú atriði sem óánægja er með

Drífa rekur að það sem sé óánægja ríki með af hálfu ASÍ sé fyrst og fremst þrennt. Í fyrsta lagi sé verið að hækka þann aldur þegar rétt­inda­á­vinnsla til elli­líf­eyris hefst frá 16 ára aldri og upp í 18 ára aldur. Það þýðir að 16 og 17 ára ung­menni greiði ekki í líf­eyr­is­sjóð eins og í dag og atvinnu­rek­endur greiði þar af leið­andi heldur ekki mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði þeirra vegna. Í frum­varpi ráð­herra segir að þetta sé „til sam­ræmis við rétt­inda­á­vinnslu til elli­líf­eyris í lögum um almanna­trygg­ingar.“

[adspot]

Í annan stað er stefnt að því að breyta upp­færslu á vísi­tölu líf­eyris, þannig að líf­eyrir verði ein­ungis verð­bættur einu sinni á ári, 1. jan­úar, en ekki í hverjum ein­asta mán­uði. Drífa segir að ASÍ sé að reikna nákvæm­lega út hvaða áhrif þetta komi til með að hafa. Í frum­varp­inu segir um þetta atriði að breytt fram­kvæmd geti „dregið veru­lega úr kröfum Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins um end­ur­greiðslur vegna van­á­ætl­unar á greiðslum frá líf­eyr­is­sjóðum í byrjun árs.“

Í þriðja lagi segir Drífa að ASÍ sé ekki hrifið af und­an­þágu sem sé tíma­bundið veitt frá hækkun lág­marks­ið­gjalda í líf­eyr­is­sjóði, sem ann­ars er verið að lög­festa með frum­varp­inu að fari úr 12 pró­sentum upp í 15,5 pró­sent. Und­an­þágan er veitt til bráða­birgða fyrir þá sem eru með samn­inga um 12 pró­sent iðgjöld, en þetta á fyrst og fremst á við sjó­menn. Þessa und­an­þágu vill ASÍ ekki hafa inni.

Alvarlegt að látið sé eins og samráð hafi átt sér stað

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að meðal ann­ars hafi verið haft sam­ráð við aðila vinnu­mark­að­ar­ins við samn­ingu frum­varps­ins.

Drífa segir að það sé „mjög alvar­legt ef það er látið líta út fyrir að þetta sé í ein­hverju sam­ráði sem ekki hefur átt sér stað“ og ef verið sé að villa fyrir um þing­inu með það.

Hún segir að Alþýðu­sam­bandið muni koma því skýrt á fram­færi við þing­heim hver afstaða þess sé. Frum­varpið verður til umræðu í líf­eyr­is­nefnd Alþýðu­sam­bands Íslands á morgun, þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár