Vefur Veðurstofunnar tilbúinn í slaginn

Álagið á vef Veð­ur­stof­unnar hefur verið mikið frá því að jarð­skjálfta­hrina hófst á Reykja­nesskaga í síð­ustu viku. Einu sinni datt vef­ur­inn alveg niður en nú er búið að efla þol hans til muna.

Jörð hefur skolfið í grennd við Keili frá því í síðustu viku.
Jörð hefur skolfið í grennd við Keili frá því í síð­ustu viku. Mynd: Reykjanes Geopark

Upp­færsla á vef Veð­ur­stofu Íslands hefur staðið yfir í vik­unni líkt og glöggir not­endur vefs­ins hafa eflaust tekið eftir. Á gulum borða efst á síð­unni, innan um við­var­anir vegna við­var­andi jarð­skjálfta­hr­inu á Reykja­nesskaga, má finna athuga­semd þar sem sagt er frá upp­færsl­unni. Þar kemur fram að ráð­ist sé í þessa upp­færslu til að bæta rekstr­ar­ör­yggi og að sam­band við vef­inn geti rofnað tíma­bundið vegna upp­færsl­unnar.

Á sam­fé­lags­miðlum hafa not­endur vefs­ins vakið athygli á því að hann höndli vart álagið sem dynur á honum í kjöl­far stærstu jarð­skjálft­anna. En þrátt fyrir að vef­ur­inn eigi á köflum í vand­ræðum með að taka á móti miklum fjölda skek­ins áhuga­fólks um jarð­hrær­ingar þá hefur vef­ur­inn aðeins einu sinni „hrunið“ síðan jarð­skjálfta­hrinan á Reykja­nesskaga hófst á mið­viku­dag í síð­ustu viku. Kjarninn heyrði í Gunnari Bachmann Hreins­syni, fram­kvæmda­stjóra upp­lýs­inga­tækni­s­viðs Veð­ur­stof­unnar, sem stað­festi þetta og upp­lýsti um stöðu mála.

Þreföldun á búnaði

„Í raun­inni hefur hann átt erfitt á köflum með að svara öllum einn, tveir og þrír,“ segir Gunnar um vef­inn og að í öllum hama­gang­inum hafi það einu sinni gerst að virkni vél­bún­aðar detti niður og hann end­ur­ræst sig, með öðrum orðum hrunið. Upp­færsla síð­ustu daga er til þess gerð að vef­ur­inn sé betur í stakk búinn til að taka á móti miklum fjölda not­enda og segir Gunnar að verið sé að klára þre­földun á þeim bún­aði sem tekur hvað mest af álag­inu á sig við heim­sóknir þeirra. Því geti vef­ur­inn tekið á móti mun fleirum nú en áður án telj­andi vand­ræða.

Það er tölu­verð ein­földun að horfa ein­göngu til fjölda gesta á vefnum þegar kemur að álagi, líkt og Gunnar bendir á: „Þetta er þannig vefur að hann hefur með mikla bak­inn­viði að gera. Það eru hund­ruð mæla úti um allt land og stöðug vinnsla með kort, inn­lend og erlend og alla­vega,“ segir hann.

Ljóst er að álagið sem skap­ast af heim­sóknum á vef­inn er þó tölu­vert. Í fyrstu vik­unni eftir að skjálfta­hrinan hófst nam fjöldi upp­flett­inga á vefnum yfir fimm millj­ónum, frá um 290 þús­und not­endum. Flétt­ingum hefur fjölgað tölu­vert, því síðan þessar eiga við fyrstu vik­una eftir að skjálftar hófust svo heim­sóknir á vef­inn eftir að óró­apúls mæld­ist eru ekki inni í þeim. Óróapúls er hefð­bund­inn und­an­fari eld­goss og eftir að fréttir voru fluttar af mæl­ing­unum voru heim­sóknir á vef Veð­ur­stof­unnar. Að sögn Gunnars er hægt að tala um tvo toppa í umferð um vef­inn, sá fyrri í kjöl­far skjálft­ans á mið­viku­dag í síð­ustu viku og hinn strax í kjöl­far óró­apúls­ins.

Átaksfé frá ríkisstjórninni komið að góðum notum

Að sögn Gunnars hefur það reglu­lega komið fyrir að vef­ur­inn erf­iði þegar heim­sóknir eru margar og að það sé ekki bundið við jarð­skjálfta. Aðrir stórir við­burðir í veðri hafa reynt á vef­inn í gegnum tíð­ina. Þá segir hann að eftir að óveður gekk nýverið yfir landið sem ógn­aði innviðum á borð við raf­magns­línur varð umræða um almanna­varna­hlut­verkið hávær­ari. Í kjöl­farið hafi Fyrr á þessu ári hafi Veð­ur­stofan því fengið sér­stakt átaksfé frá rík­is­stjórn­inni til þess að efla vef­inn og það hafi komið sér mjög vel.

„Við höfum sett okkur mjög há mark­mið og við erum að end­ur­skoða þessa hluti alla saman og það er klár­lega verið að bæta úr. En betur má ef duga skal. Stofn­unin sem slík er alveg stað­ráðin í að gera betur heldur en hefur verið hægt und­an­farin ár. Og átaksfé rík­is­stjórn­ar­innar hjálpar okkur gríð­ar­lega þar,“ segir Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár