Viðreisn vill binda í stjórnarskrá að afnot af auðlindum séu aldrei ótímabundin

Önnur breyt­ing­ar­til­laga er komin fram við stjórn­ar­skrár­frum­varp for­sæt­is­ráð­herra. Í henni er lagt til að eng­inn geti fengið afnot af auð­lindum ótíma­bundið. Þá er lagt að gjald­taka verði bundin í stjórn­ar­skrá.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við stjórn­ar­skrár­frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem í felst að ákvæði frum­varps­ins um nátt­úru­auð­lindir er breytt.

Þetta er önnur breyt­ing­ar­til­lagan sem lögð er fram vegna þessa ákvæðis en þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Flokks fólks­ins auk eins þing­manns utan flokka hafa einnig gert slíkt.

Heim­ildir Kjarnans herma að Þor­gerður Katrín hafi átt í við­ræðum við for­sæt­is­ráð­herra á síð­asta ári um að ger­ast með­flutn­ings­maður á stjórn­ar­skrár­frum­varpi hennar ef litlar, en afdrifa­ríkar, breyt­ingar yrðu gerðar á auð­linda­á­kvæði þess. Þær breyt­ingar, sem eru þær sömu og settar eru fram í breyt­ing­ar­til­lögu hennar nú, voru þess eðlis að for­sæt­is­ráð­herra var ekki til­búin að ganga að þeim.

Tillaga Þor­gerðar Katrínar gengur ann­ars vegar út á að orð­inu „var­an­lega“ verði breytt í „ótíma­bundna“ í öðrum máls­lið annar máls­greinar frum­varps Katrínar. Sá liður myndi í kjöl­farið hljóma svona: „Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Eng­inn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða ótíma­bund­inna afnota.“

[adspot]Með þessu yrði fest í stjórn­ar­skrá að úthlutun á t.d. fisk­veiði­kvóta væri tíma­bundin, og þar með inn­kall­an­leg. Eins og sakir standa í dag er kvóta úthlutað til vörslu­að­ila hans til ótíma­bund­inna afnota.

Hins vegar vill Þor­gerður Katrín að í stað þess að síð­asti máls­liður þriðju máls­greinar ákvæð­is­ins orð­ist svona: „Með lögum skal kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni“ segi í honum: „Með lögum skal kveða á um eðli­legt end­ur­gjald fyrir tíma­bundnar heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni.“

Víðfeðmari breytingartillaga

Í frum­varpi Katrínar segir að auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyri íslensku þjóð­inni. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki séu háð einka­eign­ar­rétti séu þjóð­ar­eign og að eng­inn geti fengið þau gæði eða rétt­indi til eignar eða var­an­legra afnota. þá eigi að kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni með lög­um, ekki í stjórn­ar­skrá.

[links]Breyt­ing­ar­til­laga stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna þriggja, sem minnst var á hér að ofan, er mun víð­feðm­ari en til­laga Þor­gerðar Katrínar. Hún felur meðal ann­ars í sér að bannað yrði að veð­setja auð­lindir sem séu sam­eig­in­leg og ævi­var­andi eign þjóð­ar­inn­ar. Það gæti haft mikil áhrif á stöðu mála innan sjáv­ar­út­vegs­ins ef veiði­heim­ildir yrðu inn­kall­aðar með ein­hverjum hætti og leigðar út að nýju, þar sem stór hluti úthlut­aðs kvóta hefur verið veð­settur til að kaupa upp veiði­heim­ildir ann­arra eftir að slíkt var leyft með lögum árið 1997. Afleið­ing þessa hefur verið mikið sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi, en sam­kvæmt nýj­ustu tölum halda tíu útgerðir á um helm­ing alls úthlut­aðs kvóta og fjórar blokkir innan geirans halda á tæp­lega 43 pró­sent hans.

Tillagan felur líka í sér að fest yrði í stjórn­ar­skrá að stjórn­völd geti leyft afnot eða hag­nýt­ingu auð­linda „gegn eðli­legu gjaldi og til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn.“

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Aðrir flutn­ings­menn eru allir aðrir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Flokks fólks­ins auk Andr­ésar Inga Jóns­son­ar, þing­manns utan flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár