Vilja banna veðsetningu kvóta og binda gjaldtöku fyrir afnot auðlinda í stjórnarskrá

17 stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við stjórn­ar­skrár­frum­varp for­sæt­is­ráð­herra. Þeir vilja að auð­linda­á­kvæðið verði í sam­ræmi við breyt­ing­ar­til­lögu stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar við frum­varp um nýja stjórn­ar­skrá.

Helgi Hrafn Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður tillögunar.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Pírata, Sam­fylk­ingar og Flokks fólks­ins auk eins þing­manns utan flokka hafa lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við stjórn­ar­skrár­frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem í felst að ákvæði frum­varps­ins um nátt­úru­auð­lindir er breytt. Tillagan gerir ráð fyrir því að ákvæðið verði sam­hljóma því ákvæði sem var að finna í breyt­ing­ar­til­lögu meiri hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar við frum­varp stjórn­laga­ráðs um nýja stjórn­ar­skrá sem lagt var fram 2013, en var ekki afgreitt.

Í frum­varpi Katrínar segir að auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyri íslensku þjóð­inni. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki séu háð einka­eign­ar­rétti séu þjóð­ar­eign og að eng­inn geti fengið þau gæði eða rétt­indi til eignar eða var­an­legra afnota. þá eigi að kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni með lögum, ekki í stjórn­ar­skrá.

Breyt­ing­ar­til­laga stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna þriggja felur meðal ann­ars í sér að bannað yrði að veð­setja auð­lindir sem séu sam­eig­in­leg og ævi­var­andi eign þjóð­ar­innar. Það gæti haft mikil áhrif á stöðu mála innan sjáv­ar­út­vegs­ins ef veiði­heim­ildir yrðu inn­kall­aðar með ein­hverjum hætti og leigðar út að nýju, líkt og ýmsir hafa lagt til, þar sem stór hluti úthlut­aðs kvóta hefur verið veð­settur til að kaupa upp veiði­heim­ildir ann­arra eftir að slíkt var leyft með lögum árið 1997. Afleið­ing þessa hefur verið mikið sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi, en sam­kvæmt nýj­ustu tölum halda tíu útgerðir á um helm­ing alls úthlut­aðs kvóta og fjórar blokkir innan geirans halda á tæp­lega 43 pró­sent hans.

[adspot]Tillagan felur líka í sér að fest yrði í stjórn­ar­skrá að stjórn­völd geti leyft afnot eða hag­nýt­ingu auð­linda „gegn eðli­legu gjaldi og til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn.“

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Aðrir flutn­ings­menn eru allir aðrir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Flokks fólks­ins auk Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns utan flokka.

Auðlindarákvæðið sem lagt er til í frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra:

Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Þær skal nýta á sjálf­bæran hátt til hags­bóta lands­mönnum öllum. Ríkið hefur eft­ir­lit og umsjón með með­ferð og nýt­ingu auð­lind­anna.

Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Enginn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota. Hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­ræði yfir þeim í umboði þjóð­ar­innar.

Veiting heim­ilda til nýt­ingar á nátt­úru­auð­lindum og lands­rétt­indum sem eru í þjóð­ar­eign eða eigu íslenska rík­is­ins skal grund­vall­ast á lögum og gæta skal jafn­ræðis og gagn­sæis. Með lögum skal kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni.

Auðlindaákvæðið sem lagt er til í breytingartillögunni:

Auð­lindir í nátt­úru Íslands sem ekki eru háðar einka­eign­ar­rétti eru sam­eig­in­leg og ævar­andi eign þjóð­ar­innar. Enginn getur fengið þær eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja þær eða veð­setja. Hand­hafar lög­gjafar- og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­sjá, vörslu og ráð­stöf­un­ar­rétt auð­lind­anna og rétt­ind­anna í umboði þjóð­ar­innar.

Óheimilt er að fram­selja beint eða óbeint með var­an­legum hætti til ann­arra aðila rétt­indi yfir jarð­hita, vatni með virkj­an­legu afli og grunn­vatni, sem og náma­rétt­indi, í eigu rík­is­ins eða félaga sem alfarið eru í eigu þess. Sama gildir um rétt­indi yfir vatni, jarð­hita og jarð­efnum á rík­is­jörðum umfram lág­marks­rétt­indi vegna heim­ilis- og bús­þarfa.

Til þjóð­ar­eignar skv. 1. mgr. telj­ast nytja­stofnar og aðrar auð­lindir hafs­ins innan íslenskrar lög­sögu, auð­lindir á, í eða undir hafs­botn­inum utan net­laga svo langt sem full­veld­is­réttur rík­is­ins nær, vatn, þó að gættum lög­bundnum rétt­indum ann­arra til hag­nýt­ingar og ráð­stöf­unar þess, og auð­lindir og nátt­úru­gæði í þjóð­lendum. Lög­gjaf­inn getur ákveðið að lýsa fleiri auð­lindir og nátt­úru­gæði þjóð­ar­eign, enda séu þau ekki háð einka­eign­ar­rétti. Í eign­ar­löndum tak­markast réttur eig­enda til auð­linda undir yfir­borði jarðar við venju­lega hag­nýt­ingu fast­eignar. Með lögum má kveða á um þjóð­ar­eign á auð­lindum undir til­tek­inni dýpt frá yfir­borði jarðar.

Við nýt­ingu auð­lind­anna skal hafa sjálf­bæra þróun og almanna­hag að leið­ar­ljósi.

Stjórn­völd bera, ásamt þeim sem nýta auð­lind­irnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórn­völd geta á grund­velli laga veitt leyfi til afnota eða hag­nýt­ingar auð­linda, sem og ann­arra tak­mark­aðra almanna­gæða, gegn eðli­legu gjaldi og til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafn­ræð­is­grund­velli og þau leiða aldrei til eignar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár