Áfram gakk – En eru allir í takt?

Full­trúar atvinnu­lífs­ins taka vel í skýra stefnu­mörkun utan­rík­is­ráð­herra í átt að efl­ingu utan­rík­is­við­skipta. Þó er kallað eftir heild­stæð­ari mennta- og atvinnu­stefnu sem væri grund­völlur fjöl­breytt­ara atvinnu­lífs og öfl­ugri útflutn­ings­greina.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Nýlega kom út skýrsla á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Áfram gakk! Utan­rík­is­við­skipta­stefna Íslands, sem er ýtar­legt yfir­lit um við­skipta­stefn­una og alþjóð­lega við­skipta­samn­inga. Ljóst er að mikið hag­ræði hefur skap­ast af slíkum samn­ingum og þeir verið til mik­illa hags­bóta fyrir Íslend­inga, bæði fyr­ir­tæki og almenn­ing. Spurn­ingin er hins vegar hvort og hvernig íslenskt sam­fé­lag sé í stakk búið til að mæta þeim kröfum sem alþjóð­leg við­skipti gera, m.a. með nógu víð­tækri og sam­ræmdri stefnu í mennta- og atvinnu­málum.

WTO – Regluverk sem gætir hinna smærri

Alþjóðavið­skipta­stofn­unin (WTO) byggir á alþjóða­sam­starfi sem hefur verið í stöðugri þróun allt frá Bretton Woods-sam­komu­lag­inu árið 1949. Í skýrslu ráðu­neyt­is­ins er áréttað hve stofn­unin hefur aukið gagn­sæi og auð­veldað eft­ir­lit með alþjóðlegum við­skiptum, en auk þess er hún vett­vangur fyrir aðildarríkin til að taka upp og leysa úr ágrein­ingi um aðgerðir sem hamla við­skiptum. Reglu­verkið tak­markar einnig möguleika öfl­ugri aðildarríkja til að neyta afls­munar og hefur Ísland því, ásamt öðrum smá­ríkjum, beitt sér fyrir því að samn­ing­arnir séu virtir og alþjóðlega við­skipta­kerfið styrkt í sessi.

Í skýrsl­unni er fjallað um stöðu utan­rík­is­við­skipta og gang mála innan WTO, en undir reglu­verki hennar hefur byggst upp umfangs­mikið net fríversl­un­ar­samn­inga sem stuðla að enn frekara frelsi í milli­ríkja­við­skiptum. Þannig eru fríversl­un­ar­samn­ingar Íslands og EFTA lyk­ill­inn að mörk­uðum og bættum mark­aðs­skil­yrðum fyrir íslensk fyr­ir­tæki í þeim ríkjum sem samið hefur verið við. Auk þess má finna í skýrsl­unni ítar­legt yfir­lit yfir alla helstu við­skipta­samn­inga Íslands og vikið er að áhrifum yfir­stand­andi heims­far­ald­urs á íslenskan útflutn­ing.

[adspot]

Í skýrsl­unni segir að afstaða íslenskra stjórnvalda hafi grund­vall­ast á sam­heldni Vest­ur­landa um fríverslun og frelsi sem byggst hefur upp allt frá síðari heims­styrjöld og þeim ávinn­ingi sem það skilar þjóðarbúinu. Ísland hafi því verið í þeim hópi ríkja sem vilja vinna að end­urbótum innan WTO en standa jafn­framt vörð um þann árangur sem hefur náðst frá síðari heims­styrjöld.

Samtök iðnaðarins – Mikilvægi skýrrar atvinnustefnu og samhæfingar

Sigurður Hann­es­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins (SI) hrósar skýrsl­unni og segir hana vera eins­konar hand­bók um það sem hefur verið að ger­ast í mála­flokknum. Hann sér jafn­framt ástæðu til að hrósa utan­rík­is­ráð­herra fyrir áhuga á við­skipta­málum, sem hann hafi sýnt í verki, m.a með ýmsum samn­ingum um utan­rík­is­við­skipti. Nefndi hann einnig áherslu á við­skipta­þjón­ustu Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í tengslum við COVID-19 þar sem t.d. landamæra­lok­anir hafa valdið fyr­ir­tækjum vand­ræðum.

Sigurður minnir á það grund­vall­ar­at­riði að auk­inn útflutn­ingur sé for­senda fyrir bættum lífs­kjörum, en um leið og útflutn­ingur verði fjöl­breytt­ari verði hags­mun­irnir sem eru undir þ.a.l. miklu flókn­ari og kalli á annað hags­muna­mat.

Jafn­framt því að inn­lend og erlend fjár­fest­ing sé nauð­syn­leg til að auka útflutn­ing sé mik­il­vægt að auka fjár­fest­ingu í nýsköpun, menntun og innviðum og gott dæmi sé öflug gagna­teng­ing Íslands við útlönd. Það sé því grund­vall­ar­at­riði að umgjörðin um þessa þætti sé í lagi og hafa sam­tökin kallað eftir skýr­ari atvinnu­stefnu sem snýst um sam­hæf­ingu þess­ara grunn­þátta.

Eins og staðan er ber ekk­ert eitt ráðu­neyti ábyrgð á því að hvetja til erlendrar fjár­fest­ingar og getur falist í því ákveðin hindrun. Þegar hlut­irnir eru á höndum margra aðila verður upp­bygg­ing ekki eins mark­viss og hún gæti orðið. Þó stór­stígar fram­farir hafi vissu­lega orðið á und­an­förnum árum þyrfti að huga betur að áherslum í mennta­kerf­inu, að þær styðji við atvinnu­þróun, að hugsa allt í stærra sam­hengi með breið­ari heild­ar­hugsun og stefnu.

Sigurður segir hvata eins og end­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar, og vegna fjár­fest­inga í sprotum hafa skilað miklu. Fjár­fest­ing í rann­sóknum og þróun hafi aldrei verið meiri en 2019 og farið úr 55 í 70 millj­arða, eða um 2,35% af lands­fram­leiðslu. Sigurður spáir því að hlut­fallið fari yfir 3% á þessu ári sem er mark­mið vís­inda- og tækni­ráðs og stjórn­valda en jafn­framt við­mið margra ríkja. Svo virð­ist sem þarna séu hlut­irnir að þok­ast í rétta átt því þetta er í sam­ræmi við þá stefnu stjórn­valda að skapa fleiri störf í þekk­ing­ar­greinum.

Sigurður nefnir þátt Íslands­stofu sem hefur verið end­ur­skipu­lögð og hann segir vera gott inn­legg til að efla mark­aðs­setn­ingu erlendis. Má velta því upp hvort Íslands­stofa, hvers hlut­verk er m.a. að hvetja til auk­innar erlendrar fjár­fest­ingar, þurfi ekki auk­inn stuðn­ing stjórn­valda á þeirri veg­ferð, sér í lagi varð­andi umbætur til að greiða götu fjár­fest­inga. Skýrsla ráðu­neyt­is­ins fjallar hins vegar ekk­ert um erlendar fjár­fest­ingar og hvernig megi stuðla að þeim með mark­viss­ari hætti að öðru leyti en því að einn kafli fjallar um fjár­fest­inga­samn­inga. Slíkir samn­ingar eru vissu­lega mik­il­vægir, en hér virð­ist vera tæki­færi til að vinna að frek­ari stefnu­mörkun og skarp­ari fram­tíð­ar­sýn.

„Eitthvað annað“ er að verða aðal

Þegar tek­ist hefur verið á um stór­iðju­fram­kvæmdir á Íslandi er gjarnan deilt á and­stæð­inga slíkrar upp­bygg­ingar, sagt að þeir hafi engar hug­myndir um hvað ætti þá að koma í stað­inn – nema þá bara „eitt­hvað annað“. Allt sé það óljóst, hug­lægt og þar með bara ein­hverjir draum­órar, sem er skilj­an­legt við­horf þegar hinn kost­ur­inn er stór­iðja með öllum þeim áþreif­an­legu umsvifum sem henni fylgir.

Það vekur því athygli að SI telja mestu tæki­færin framundan einmitt vera falin í hug­verka­iðn­aði – sem nefndur hefur verið fjórða stoðin i íslensku efna­hags­lífi – hinar þrjár eru: sjáv­ar­út­vegur, ferða­þjón­usta og orku­sæk­inn iðn­aður. Ein­kenn­andi greinar hug­verka­iðn­aðar eru líf- og heil­brigð­is­tækni, upp­lýs­inga­tækni, tölvu­leikja­iðn­aður, hátækni­iðn­aður og skap­andi greinar eins kvik­mynda­gerð og tón­list.

Sigurður leggur áherslu á að nú sé rétti tím­inn til að styðja við hug­verka­iðn­að­inn, stoðin byggir á mörgum greinum og í því felst styrk­ur­inn þegar næsta nið­ur­sveifla verður.

Þvert á það sem margir kynnu að halda er fjórða stoðin ekki á byrj­un­ar­reit því hún er þegar orðin til með þróun sem hófst fyrir 20–30 árum. Sigurður segir hug­verka­iðnað því hafa alla burði til að verða öfl­ug­asta stoðin þegar fram í sækir. Hefur því verið spáð að framundan sé ára­tugur nýsköp­unar, ekki bara á Íslandi heldur einnig á heims­vísu, þar hefur COVID-19 mikið að segja því marga hluti hefur þurft að hugsa upp á nýtt.

Félag atvinnurekenda – tvískinnungur í tollamálum

Ólafur Steph­en­sen hjá Félagi atvinnu­rek­enda (FA) segir félagið fagna sér­stak­lega skýrri stefnu­mörkun utan­rík­is­ráð­herra, að halda áfram á þeirri braut að auka frí­verslun og ryðja úr vegi hindr­unum í milli­ríkja­við­skiptum Íslands. Það komi skýrt fram í skýrsl­unni að Ísland sé lítið og opið hag­kerfi, sem á gíf­ur­lega mikið undir útflutn­ingi og ekki síður inn­flutn­ingi, enda sé inn­lend fram­leiðsla á neyt­enda­vörum til­tölu­lega fábreytt. Ísland eigi því meira en flest önnur ríki undir frjálsum alþjóða­við­skiptum.

Á þeim bæ er fólk jafn­framt ánægt með skýra stefnu nú þegar tals­vert sé sótt að stjórn­völdum um að vinda ofan af skrefum sem hafa verið tekin í átt til frjáls­ari við­skipta með búvörur á síð­ustu árum. Þó bendir Ólafur á að í skýrsl­unni komi enn fram sá tví­skinn­ungur, sem lengi hafi verið ákveð­inn ljóður á utan­rík­is­við­skipta­stefnu Íslands, að tala ein­dregið fyrir afnámi rík­is­styrkja og nið­ur­fell­ingu tolla í sjáv­ar­út­vegi en verja um leið rík­is­styrki og tolla í land­bún­aði, sem yfir­leitt eru settir á með sömu rökum og slíkar við­skipta­hindr­anir í sjáv­ar­út­veg­inum.

Að sögn Ólafs er einnig skautað heldur létt yfir toll­vernd íslensks land­bún­aðar, en sam­kvæmt nýlegri skýrslu atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins er hún marg­föld á við það sem er í Evr­ópu­sam­band­inu eða að með­al­tali í OECD-ríkj­unum.

Hann bendir einnig á að skýrslu­höf­undar taki með í reikn­ing­inn þró­un­ina í heims­hlutum sem telj­ast ekki til hefð­bund­inna mark­aðs­svæða Íslands, til dæmis gíf­ur­legan vöxt efn­aðrar milli­stéttar í Asíu. Í því sam­engi sé afar mik­il­vægt að tryggja aðgang íslenskra fyr­ir­tækja að þessum ört vax­andi mörk­uðum.

FA lýsir þó almennri ánægju með þá meg­in­stefnu sem er í átt til auk­ins frjáls­ræðis og sam­vinnu í alþjóða­við­skiptum. Jafn­framt að Ísland skipi sér í sveit með ríkjum sem vilja efla reglu­verk WTO og tryggja að farið sé eftir því ef deilur koma upp í alþjóð­legum við­skiptum í stað þess að fara í tolla­stríð eins og gerst hefur und­an­farin ár. Þau taka heils­hugar undir með utan­rík­is­ráð­herra þegar hann talar um mik­il­vægi þess að sporna við ein­angr­un­ar­stefnu og standa vörð um alþjóða­við­skipta­kerfið.

Orð Ólafs um tví­skinn­ung íslenskra stjórn­valda, hvað varðar toll­vernd og rík­is­styrki land­bún­aðar, er rétt að hafa í huga þegar lagt er mat á metnað núver­andi utan­rík­is­ráð­herra og stjórn­valda hvað varðar ann­ars vegar gerð frí­versl­un­ar­samn­ings við Banda­ríkin og nýs við­skipta­samn­ings við Bretland. Frí­verslun við Banda­ríkin er alltaf og án und­an­tekn­inga háð því að samn­ingar náist um frí­verslun með land­bún­að­ar­vörur. Það eitt og sér ætti að slá mjög á vænt­ingar um slíkan samn­ing.

Það sama á við um samn­inga við Bretland. Í ljósi mik­il­vægis bresks land­bún­aðar, og sterk­ari stöðu hans innan breska stjórn­kerf­is­ins eftir Brexit, má ekki gera ráð fyrir öðru en að hags­muna­gæsla breskra bænda í við­skipta­samn­ingum við Ísland og hin EFTA-ríkin verði síst minni en starfs­fé­laga þeirra innan EFTA.

Litið til austurs – fylgir hugur máli?

Þrátt fyrir að Evrópa sé okkar helsta mark­aðs­svæði hefur lengi verið horft til Asíu og víðar með það fyrir augum að auka fjöl­breytni og mögu­leika í utan­rík­is­við­skiptum. Umrædd skýrsla til­tekur þá þróun sem er að verða með miklum vexti efn­aðrar milli­stéttar í Asíu­ríkjum, í heims­hluta sem vissu­lega telst ekki til hefð­bund­inna mark­aðs­svæða Íslands. Eins og bent var á að framan og fram kemur í skýrsl­unni, er mik­il­vægt að tryggja aðgang íslenskra fyr­ir­tækja að þessum ört vax­andi mörk­uðum.

Ljóst er að sókn inn á þá mark­aði er kostn­að­ar­söm og kostar vinnu og und­ir­bún­ing opin­berra aðila og má spyrja hvort þarna fylgi hugur máli. Ísland rekur sendi­ráð í Indlandi, Japan og Kína, en þau eru til­tölu­lega fáliðuð. Sendiráð Íslands á Indlandi hefur auk þess verið án sendi­herra í meira en hálft ár, og þrátt fyrir að mik­il­vægi auk­inna við­skipta við Indland hafi oft verið haldið á lofti, m.a. vegna væntra auk­inna við­skipta­tæki­færa, var staða stað­geng­ils sendi­herra þar lögð niður fyrir u.þ.b. 4 árum. Sama er uppi á ten­ingnum í Japan, en sendi­herra okkar þar er eini útsendi starfs­mað­ur­inn. Mjög er treyst á stað­ar­ráðna starfs­menn, sem er vissu­lega skyn­sam­legt, en má spyrja sig hvort slíkt geti talist full­nægj­andi.

Þarna end­ur­spegl­ast kannski ákveðin tog­streita í utan­rík­is­stefn­unni og fram­kvæmd hennar. Utan­rík­is­ráð­herra er mjög umhugað um utan­rík­is­við­skipti, eins og sjá má á þeim skýrslum sem hann hefur látið vinna að und­an­förnu. Auk þess­arar skýrslu er nú nýkomin út skýrsla um sam­skiptin við Grænland þar sem við­skipta­mál skipa stóran sess. Síðasta sumar kom út skýrslan Saman á úti­velli: Fram­kvæmd utan­rík­is­stefnu Íslands í kjöl­far Covid-19 og hverfð­ist hún fyrst og fremst um mik­il­vægi utan­rík­is­við­skipta og hlut­verk utan­rík­is­þjón­ust­unnar í þeim efnum.

[adspot]

Í for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins síð­ast­lið­inn fimmtu­dag um hvernig útgjöld flestra ráðu­neyta hafa blásið út er hins vegar eitt ráðu­neyti sem sker sig úr, í frétt­inni segir: „Framlög til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafa dreg­ist saman um 2 pró­sent þrátt fyrir að fram­lög til varn­ar­mála hafi auk­ist um 25 pró­sent og til þró­un­ar­sam­vinnu um 53. Á tíma­bil­inu hefur sendi­ráðum verið í heild­ina fækkað um fjögur.” Í ljósi almenns sam­dráttar á sama tíma og tveir mála­flokkar – þró­un­ar­sam­vinna og varn­ar­mál – hafa hlotið veru­lega aukn­ingu, hlýtur eitt­hvað annað undan að láta. Ekki er hægt að verj­ast þeirri hugsun að það sé á kostnað hefð­bund­innar utan­rík­is­þjón­ustu og starfa hennar á vett­vangi, þar með talið þjón­ustu við íslenskt atvinnu- og við­skipta­líf.

Mis sterkt pólitískt bakland – Áskorun fyrir stjórnmálin

Íslend­ingar hafa löngum van­ist ver­tíð­ar­stemn­ingu og upp­gripum þegar atvinnu­mál eru ann­ars vegar og lit­aði það stefnu­mörkun lengi vel. Sem betur fer hefur orðið breyt­ing þar á og stjórn­völd jafnt sem atvinnu­líf og almenn­ingur hafa séð hag af meiri fjöl­breytni. Ekki er lengur litið svo á að besta leiðin til að tryggja atvinnu og þar með lífs­kjör sé með stór­karla­legum fram­kvæmdum í byggð­ar­lag­inu, skut­tog­ara eða verk­smiðju. Nú er „eitt­hvað annað“ – hug­verka­iðn­aðn­aður þar sem menntun, þekk­ing og skap­andi hugsun eru lyk­il­at­riðið – orðin full­gild stoð í atvinnu- og verð­mæta­sköpun Íslend­inga.

Í máli hags­muna­að­ila kemur fram mik­il­vægi þess að horfa vítt á málin, forð­ast að gera ein­stökum atvinnu­greinum og stoðum hærra undir höfði en öðrum. Sá tími er lið­inn þegar eitt­hvað eitt átti að bjarga íslensku atvinnu­lífi. Stoð­irnar fjórar; ferða­þjón­usta, sjáv­ar­út­vegur, stór­iðja og þekk­ing­ar­iðn­aður, auk land­bún­aðar hafa hins vegar mjög mis-öfl­ugt póli­tískt og sam­fé­lags­legt bak­land. Það verður því verk­efni stjórn­mál­anna að leysa þann ágrein­ing far­sæl­lega og forð­ast að þar verði meiri klofn­ingur en verið hefur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár