Þyrfti róttækar breytingar til að fá almenning aftur að hlutabréfamarkaðnum

Stjórn­völd gætu leyft laun­þegum að fjár­festa beint í verð­bréfum fyrir við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað til að laða almenn­ing að hluta­bréfa­mark­aðnum, sam­kvæmt grein fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Gylfi Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við við­skipta­fræði­deild HÍ og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Gylfi Magn­ús­son, fyrr­ver­andi efna­hags-og við­skipta­ráð­herra og pró­fessor við við­skipta­fræði­deild HÍ, leggur til að laun­þegum verði leyft að fjár­festa beint í verð­bréfum fyrir við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað sinn til að ná dreifð­ara eign­ar­haldi á hluta­bréfa­mark­aðnum. Að hans mati er íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn grunnur með þröngt og eins­leitt eign­ar­hald, en rót­tækar breyt­ingar þyrftu til að ná almenn­ingi aftur þangað.

Þetta kemur fram í grein Gylfa í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem birt var í morgun. Í grein­inni fer hann yfir eign­ar­hald almenn­ings á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði á síð­ustu ára­tugum, en sam­kvæmt honum var blóma­skeið þess á tíunda ára­tugi síð­ustu aldar.

Þar segir Gylfi að Eyjólfur Konráð Jónsson, fyrrum alþing­is­maður og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hafi átt mik­inn þátt í að skapa öflug hluta­fé­lög hér á landi með fjöl­mennan og dreifðan eign­ar­hóp og virkan markað fyrir hluta­bréf. Undir lok tíunda ára­tug­ar­ins hafi þátt­taka almenn­ings verið mikil, en þá voru nokkur hluta­fé­lög hér á landi komin með tugi þús­unda hlut­hafa.

Kátir piltar á einkaþotum

Skömmu eftir alda­mótin hafi hins vegar bæði skráðum hluta­fé­lögum og hlut­höfum fækkað nokkuð mikið: „Hug­myndin um almenn­ings­hluta­fé­lög átti undir högg að sækja. Skuld­settar yfir­tökur færðu eign­ar­haldið yfir til eign­ar­halds­fé­laga undir stjórn kátra pilta sem ferð­uð­ust um á einka­þotum,“ skrif­aði Gylfi.

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hafi svo þurrkast út í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins árið 2008, en þótt að hann hafi risið upp að nýju með end­ur­komu margra félaga þá segir Gylfi að almenn­ingur hafi ekki snúið aftur þangað. Að hans mati er ekki útlit fyrir að það ger­ist, nema að ein­hverjar rót­tækar breyt­ingar eigi sér stað. Nú séu hlut­hafar flestra félag­anna fáir, það er að segja um eða innan við eitt þús­und tals­ins, en ef frá eru talin Marel, Arion banki og Icelandair.

Almenningur hafi litla rödd í gegnum lífeyrissjóði

Gylfi bætir þó við að almenn­ingur eigi tölu­vert í skráðum fyr­ir­tækjum óbeint í gegnum líf­eyr­is­sjóði lands­ins. Aftur á móti segir hann almenn­ing hafa litla rödd í stefnu fyr­ir­tækj­anna í gegnum slíkt eign­ar­hald, þar sem líf­eyr­is­sjóð­irnir vilja sjaldn­ast vera í leið­toga­hlut­verki hlut­hafa­hóps­ins.

Einnig séu hendur líf­eyr­is­sjóð­anna oft bundnar þar sem þeir eiga oftar en ekki hlut­deild í tveimur eða fleiri fyr­ir­tækjum sem starfa á sama mark­aði sem keppi­nautar. Þannig eiga líf­eyr­is­sjóðir sam­an­lagt ríf­lega helm­ing hluta­fjár í bæði Símanum og Sýn, auk þess sem hlut­fallið er svipað í öllum trygg­ing­ar­fé­lög­unum þremur og einnig i fast­eigna­fé­lög­unum. Gylfi segir slíkt sam­eig­in­legt hafa veru­lega ókosti, m.a. frá sjón­ar­hóli sam­keppni.

Samkvæmt Gylfa eru engar töfra­lausnir til við þessu vanda­máli, en hann leggur þó til að leyfa laun­þegum sem það vilja að fjár­festa sjálfir í hluta­bréfum eða öðrum verð­bréfum fyrir við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað sinn og fara með atkvæð­is­rétt­inn. Einnig segir hann það vera hægt að beita skatt­kerf­inu, t.d. veita skattí­viln­anir vegna fjár­fest­ingar í hluta­bréfum, líkt og gert var um nokk­urra ára bil, en bætir þó við að því fylgi kostn­aður sem e.t.v. væri erfitt að rétt­læta.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár