Óskaði sex sinnum eftir liðsauka

Yfir­maður þinglög­regl­unnar í Washington seg­ist margoft hafa óskað eftir aðstoð þjóð­varð­liðs­ins en það kom ekki á vett­vang óeirð­anna fyrr en þau voru nær yfir­staðin og fjórir lágu í valnum.

Skilti stuðningsmanns Trump á botni tjarnar við Bandaríkjaþing.
Skilti stuðn­ings­manns Trump á botni tjarnar við Banda­ríkja­þing. Mynd: EPA

Bein útsend­ing frá þing­hús­inu í Washington og óeirð­unum þar fyrir innan og utan var löngu hafin á sjón­varps­stöðv­unum áður en liðs­auki barst lög­reglu­mönn­unum sem voru að glíma við þús­undir æstra stuðn­ings­manna Donalds Trump. Fólk sat heima í stofu og fylgd­ist með og hugs­aði: Hvar er eig­in­lega þjóð­varð­liðið? Liðið sem hefur verið mjög sjá­an­legt í öllum mót­mælum í borg­inni síð­ustu mán­uði? Hvers vegna var það ekki ein­fald­lega á staðnum þegar í upp­hafi í mót­mælum sem höfðu verið skipu­lögð vikum saman?

2.000 manna lög­reglu­lið sinnir örygg­is­gæslu í þing­hús­inu. Þetta er sér­stök lög­reglu­deild og eftir hryðju­verkin í Banda­ríkj­unum árið 2001 var fjölgað í henni. Sá sem henni stýrir, Steven Sund, hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir und­ir­bún­ing­inn fyrir her­skara Trump-stuðn­ings­manna á mið­viku­dag. Hann sagði af sér strax dag­inn eftir. En í við­tali við Washington Post í dag segir hann sína hlið á mál­inu. Og hún er nokkuð önnur en almennt hefur verið talið.

[adspot]

Í við­tal­inu segir hann til dæmis frá því að hann hafi sex sinnum óskað eftir liðs­styrk áður en hann loks mætti á vett­vang. Fyrsta skiptið átti sé raun stað áður en mið­viku­dag­inn rann upp. Hann hafði orðið sífellt áhyggju­fyllri er nær dró mót­mæl­unum. Hann vildi hafa þjóð­varð­liðið til taks. En yfir­maður hans á Banda­ríkja­þingi hafn­aði þeirri beiðni. Sagði að slíkt lið, grátt fyrir járnum, myndi senda röng skila­boð.

Fjarvera þess sendi hins vegar „rétt skila­boð“ til múgsins þegar til kom. Hann taldi sig geta ruðst inn án mik­illar mót­stöðu. Og það reynd­ist rétt.

[links]Tveimur dögum áður en við­burð­ur­inn margaug­lýsti, „Björgum Banda­ríkj­unum“, átti að fara fram, bað Sund yfir­menn örygg­is­gæslu beggja þing­deild­anna um leyfi til að óska eftir því að þjóð­varð­liðið yrði í við­bragðs­stöðu. Hann vildi hafa vaðið fyrir neðan sig ef upp úr myndi sjóða. Hann vildi geta kallað eftir liðs­styrk og fengið hann strax, ef á þyrfti að halda. Þó að lög­reglan hafi á þessum tíma­punkti fengið upp­lýs­ingar um að hóp­ur­inn sem Trump hafði boðað til Washington til að mót­mæla kosn­inga­úr­slit­unum yrði mun stærri en fyrri mót­mæli í borg­inni, hafi yfir­menn örygg­is­gæsl­unnar hafnað beiðni hans. Þeim þótti var­huga­vert að lýsa yfir „neyð­ar­á­standi“ fyrir mót­mælin. Það myndi senda röng skila­boð. Yfir­maður örygg­is­mála í öld­unga­deild­inni lagði þó til að Sund myndi nota óform­legar leiðir til að biðja um að þjóð­varð­liðið yrði í við­bragðs­stöðu kæmi til þess að þinglög­reglan þyrfti aðstoð.

Á mið­viku­deg­inum, þegar umræður voru í báðum þing­deildum um stað­fest­ingu á úrslitum for­seta­kosn­ing­anna í nóv­em­ber, og tug­þús­undir stuðn­ings­manna Trump höfðu safn­ast saman fyrir framan þing­húsið, fóru að renna tvær grímur á þinglög­regl­una. Og þegar ljóst var að hún réði ekki við aðstæður seg­ist Sund hafa óskað eftir aðstoð fimm sinnum. Ástandið varð, að hans sögn, miklu verra en hann hefði nokkru sinni getað ímyndað sér.

Aðeins fimmtán mín­útum eftir stuðn­ings­menn Trumps höfðu arkað að þing­hús­inu eftir að hafa hlustað á ræðu for­set­ans við Hvíta húsið hafði þeim tek­ist að kom­ast yfir ytri varn­ar­línu lög­regl­unnar við þing­húsið. Um 1.400 þinglög­reglu­menn voru á vakt.

„Ef við hefðum haft þjóð­varð­liðið hefðum við getað haldið þeim í skefjum lengur þar til að liðs­auki frá öðrum lög­reglu­sveitum hefði komið á vett­vang,“ segir Sund í við­tal­inu við Washington Post.

Rétt fyrir kl. 14 að stað­ar­tíma hafði stuðn­ings­mönnum Trump tek­ist að brjót­ast inn í sjálft þing­húsið. Þinglög­reglan lagði þá þegar áherslu á að koma þing­mönnum í öruggt skjól. Liðsauki barst skömmu síðar frá lög­regl­unni í Washington-borg en þá var ástandið komið úr bönd­unum.

Klukkan 14.26 hafði Sund sam­band við varn­ar­mála­ráðu­neytið og óskaði eftir enn frek­ari aðstoð. Hann sagði neyð­ar­á­stand hafa skap­ast og að brýnt væri að þjóð­varð­liðið kæmi þegar í stað til aðstoðar.

Þá gerð­ist það sem kom öllum á óvart að Walter E. Piatt, yfir­maður her­deildar ráðu­neyt­is­ins, sagð­ist ekki getað mælt með því við her­mála­ráð­herr­ann að þjóð­varð­lið yrði kvatt á vett­vang. Sund segir að Piatt hafi sagt að sér hugn­að­ist ekki að sjá þjóð­varð­liða standa ásamt lög­regl­unni við þing­húsið.

[adspot]

Fleiri tóku þátt í þessu sím­tali, m.a. emb­ætt­is­menn Washington-borgar og einn þeirra segir í sam­tali við Washington Post að Sund hafi bók­staf­lega grát­beðið um hjálp, aftur og aftur.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið hefur ítrekað sagt í kjöl­far árás­ar­innar á þing­húsið að þinglög­reglan hafi ekki beðið um aðstoð þjóð­varð­liðs­ins fyr­ir­fram, þ.e. áður en mót­mælin fóru úr bönd­unum. Ekki hafi verið beðið um að þjóð­varð­liðið yrði í við­bragðs­stöðu. Beðið hafi verið um aðstoð eftir að allt fór úr bönd­unum þrátt fyrir að allir eigi að vita að þjóð­varð­liðið geti ekki brugð­ist við með mjög stuttum fyr­ir­vara. Tals­maður varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að þinglög­reglan og lög­reglan í Washington-borg hafi talið sig ráða við verk­efnið og ekki beðið um að liðs­auki væri til taks.

Það var ekki fyrr en tæpum fjórum klukku­stundum eftir að ráð­ist var á þing­húsið að þjóð­varð­liðið var komið á vett­vang. Þá höfðu þegar fjórir lát­ist í átök­unum.

Sund, sem hefur verið yfir­maður þinglög­regl­unnar í rúmt ár, sagði af sér og sagð­ist hafa brugð­ist sam­starfs­mönnum sínum.

Mikil átök innandyra

Átökin sem þinglög­reglu­menn lentu í við múg­inn inni í þing­hús­inu voru mun meiri og alvar­legri en talið var í fyrstu. Á mynd­böndum og myndum sem birtar hafa verið um helg­ina má sjá lög­reglu­menn reyna allt hvað þeir gátu til að stöðva inn­rás stuðn­ings­manna Trumps og leggja líf sitt í hættu.

Sund mun láta af emb­ætti 16. Janúar. Fjórum dögum síðar mun Joe Biden taka við emb­ætti for­seta. Sund ótt­ast að það sama ger­ist þá.

Í við­tal­inu við Washington Post við­ur­kennir Sund að öfga­hópar hafi dag­ana á undan mót­mæl­unum hótað því að brjót­ast inn í þing­húsið. Hann hafði áhyggjur en sagði slíkar hót­anir þó oft hafa verið settar fram án þess að af þeim yrði. „Fólk segir ýmis­legt á sam­fé­lags­miðlum,“ segir hann um hót­an­irnar.

Hann hafi engu að síður ákveðið að hafa sam­band við yfir­menn örygg­is­mála í þing­inu og óska eftir því að þjóð­varð­liðið yrði til taks. Hann hafði sam­band við yfir­mann hjá þjóð­varð­lið­inu sem full­viss­aði hann um það að ef á þyrfti að halda gætu 125 þjóð­varð­liðar komið á vett­vang „nokkuð fljótt“.

Mættu með klifurbúnað

Ástandið við þing­húsið hafi hins vegar allt frá því fyrstu stuðn­ings­menn Trump mættu verið hlaðið ofbeldi. „Þeir voru með hjálma, gas­grímur, skildi og piparúða, flug­elda og klif­ur­búnað. Klif­ur­búnað!“ Sund seg­ist aldrei hafa séð nokkuð þessu líkt í Washington.

Þegar í stað hafði hann því sam­band við lög­reglu­stjór­ann í Washington sem sendi 100 lög­reglu­menn á vett­vang á innan við tíu mín­útum. Þegar ljóst var að það myndi engan veg­inn duga til hringdi Sund í yfir­menn örygg­is­mála þings­ins og bað um þjóð­varð­liðið. En forms­at­riða vegna tók það alltof langan tíma. Og árásin á þing­húsið hófst af krafti.

Þjóð­varð­liðið í Washington-borg heyrir ekki undir rík­is­stjór­ann heldur beint undir for­set­ann. Því þurfti að fá sam­þykki varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins til að senda þjóð­varð­lið á vett­vang.

Hvað gerist eftir nokkra daga?

Eftir mikið þras í sím­tal­inu sem fyrr er greint frá var nið­ur­staðan loks sú að yfir­maður örygg­is­mála í þing­hús­inu hafði sam­band við Mitch McConnell, for­seta öld­unga­deild­ar­innar, til að reyna að fá þjóð­varð­liðið á vett­vang. Þá var klukkan að verða 16.

Liðsauki hafði borist frá lög­regl­unni í Washington og alrík­is­lög­regl­unni.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið segir að klukkan rúm­lega 15 hafi heim­ild til að kalla út þjóð­varð­liðið feng­ist en það átti eftir að taka um tvo tíma þar til liðs­menn þess, sem sinna sínum hefð­bundnu störfum dags dag­lega, komust á vett­vang.

Sund varar við því sem gæti verið í vændum í tengslum við inn­setn­ing­ar­at­höfn Bidens og mót­mæli sem boðað hefur verið til næsta mið­viku­dag í borg­inni. „Þetta er mjög hættu­legt fólk og það var mjög vel und­ir­búið. Ég á erfitt með að kalla þetta mót­mæli,“ segir hann um upp­þotið í síð­ustu viku. Hann kennir Trump um að hafa stofnað lífi þinglög­reglu­manna í hættu.

Í dag er búið að koma upp háum varn­ar­girð­ingum umhverfis þing­húsið. Fyrsta varn­ar­línan er orðin sterk­ari en hún var á mið­viku­dag­inn. Hvort við­bún­að­ur­inn nú reyn­ist nægur mun tím­inn leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár