Óeirðirnar í Washington: Frá upphafi til enda

Trump tók sér góðan tíma í að kalla út liðs­styrk við lög­reglu­menn­ina sem höfðu ekk­ert í skríl­inn sem braust inn í þing­húsið í Washington í gær. Hers­ingin hafði þram­mað að hús­inu undir herópi leið­toga síns.

Þær eru margar furðulegu myndirnar sem birst hafa í kjölfar innbrotsins í þinghúsið. Hér stormar einn uppreisnarseggur með suðurríkjafána um ganga og annar situr sallarólegur í sófa, með loðskinn um sig.
Þær eru margar furðu­legu mynd­irnar sem birst hafa í kjöl­far inn­brots­ins í þing­húsið. Hér stormar einn upp­reisn­ar­seggur með suð­ur­ríkja­fána um ganga og annar situr sall­ar­ó­legur í sófa, með loðskinn um sig. Mynd: EPA

„Land okkar hefur þurft að þola nóg. Við munum ekki sætta okkur við þetta lengur og um það snýst þetta allt saman. Svo ég vitni í eft­ir­lætis orðin sem þið í raun funduð upp: Við ætlum að stöðva þjófn­að­inn.“

Þessi orð Donalds Trump frá­far­andi Banda­ríkja­for­seta, sem hann lét falla á úti­fundi með þús­undum stuðn­ings­manna sinna í garði við Hvíta húsið í gær, úti­fundi undir yfir­skrift­inni „Björgum Banda­ríkj­unum“, voru það vega­nesti sem hers­ingin tók með sér er hún gekk fylktu liði að þing­hús­inu í Washington. Í kjöl­farið hófst for­dæma­laus atburða­rás sem end­aði með dauða fjög­urra manna.

Hér að neðan er atburða­rásin í hnot­skurn.

[adspot]

Klukkan 6 í gærmorgun

Þúsundir stuðn­ings­manna Trumps und­ir­búa sig fyrir úti­fund með for­set­anum í nágrenni Ellipse, 20 hekt­ara garðs sunnan við Hvíta húsið. Margir höfðu þegar safn­ast saman um nótt­ina. Trump hafði sjálfur hvatt til mót­mæla á Twitter þann 19. Desember þegar hann skrif­aði: Stór mót­mæli í D.C. 6. Janúar. Mætið! Þetta verður villt!“

Klukkan 10

Úti­fund­ur­inn, undir slag­orð­inu „Björgum Banda­ríkj­unum“ hefst form­lega með því að synir Trumps, Eric og Donald Jr., ávarpa mann­fjöld­ann. Rudy Guiliani, lög­maður for­set­ans frá­far­andi, ávarp­aði einnig hóp­inn. Rétt fyrir hádegi var komið að Trump sjálfum að halda ræðu. „Að þessu loknu munum við ganga þarna niður eftir, ég verð þarna með ykkur, við ætlum að ganga þarna niður að þing­hús­inu og við ætlum að hvetja okkar kjark­miklu þing­menn.“

Ræða Trump stóð yfir í rúm­lega klukku­stund. Að henni lok­inni hófst fjölda­ganga að þing­hús­inu.

Klukkan 13 í gærdag

Þing­fundur beggja deilda banda­ríkja­þings hófst í þing­sal full­trúa­deild­ar­innar. Efni fund­ar­ins var stað­fest­ing á úrslitum for­seta­kosn­ing­anna í nóv­em­ber og þar með stað­fest­ing á því að Joe Biden var rétt kjör­inn for­seti.

Klukkan 13.10

Aðeins fáum mín­útum eftir að þing­fund­ur­inn hófst hóf lög­reglan að glíma við æsta stuðn­ings­menn Trumps fyrir framan þing­húsið. Trump, sem hafði skömmu áður lofað að slást í hóp mót­mæl­enda gerði það ekki heldur fór beint inn í Hvíta húsið og fylgd­ist með atburða­rásinni í sjón­varp­inu.

Klukkan 13.26

Lög­reglu­menn úr sér­stakri sveit þing­húss­ins rýma nokkrar bygg­ingar sem því til­heyra, m.a. skrif­stofu­bygg­ingar.

Klukkan 13.33

Til­kynn­ing berst um að óeirð­ar­seggir hafi kom­ist inn í þann hluta þing­húss­ins sem aðskilur þing­sali full­trúa­deildar og öld­unga­deildar.

Klukkan 13.40

Muriel Bowser, borg­ar­stjóri Washington, fyr­ir­skipar útgöngu­bann sem taka átti gildi fjórum klukku­stundum síðar. Lög­reglan óskar eftir auknum mann­afla á vett­vang.

Klukkan 13.46

Elaine Luria, þing­maður Repúblik­ana, skrifar á Twitter að þing­sal­ur­inn hafi verið rýmdur eftir að til­kynn­ing barst um sprengju utan við þing­húsið. „Stuðn­ings­menn for­set­ans eru að reyna að brjót­ast inn í þing­húsið og ég heyri eitt­hvað sem lík­ist byssu­skotum.“

Klukkan 14.11

Árás­ar­menn ná að brjóta sér leið í gegnum varn­ar­línur lög­regl­unnar vestan við þing­húsið. Um svipað leyti fara margir þeirra að klifra yfir veggi umhverfis húsið.

Klukkan 14.22

Fréttir ber­ast af því að Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, sé meðal þeirra sem lög­reglan hafi fylgt út úr þingsalnum. Tveimur mín­útum eftir að sú frétt berst skrifar Trump á Twitter:

„Mike Pence skorti hug­rekkið til að gera það sem hefði átt að gera til að verja land okkar og stjórn­ar­skrá, að gefa ríkj­unum tæki­færi til að votta leið­rétt­ingu [á kosn­inga­úr­slit­unum], ekki þessi fölsuðu og óná­kvæmu sem þeir hafa áður beðið um vottun á. Banda­ríkin krefj­ast sann­leik­ans!“

Klukkan 14.38

Trump tístir á ný og skrifar: „Vin­sam­lega virðið lög­regl­una okkar. Hún er sann­ar­lega með okkur á bandi í land­inu okkar. Haldið frið­inn!“

Klukkan 14.39

Myndir eru birtar af því þegar upp­reisn­ar­seggirnir brjóta rúður í gluggum sjálfs þing­húss­ins. Fimm mín­útum seinna er til­kynnt um að byssu­skotum hafi verið hleypt af í sal full­trúa­deild­ar­innar. Greint er frá því í fréttum að hópur manna hafi kom­ist inn í sal­inn.

Margt ger­ist á næstu mín­útum. Hver þing­mað­ur­inn á fætur öðrum upp­lýsir um stöð­una á sam­fé­lags­miðlum. Að þeir hafi þurft að setja upp sér­staka hlífð­ar­skildi fyrir and­lit, sem í er gas­gríma, áður en þingsalir voru rýmdir og þeim komið í öruggt skjól. Rétt fyrir kl. 15 fara að ber­ast myndir af upp­reisn­ar­mönn­unum sitj­andi í pontu í þing­sal öld­unga­deild­ar­innar. „Ég hef aldrei komið hingað inn,“ hrópar kona til mann­fjöld­ans utan við þing­húsið, eftir að hún hafði náð að brjóta sér leið inn í húsið. „Við eigum þing­húsið. Við eigum ykkur!“

Nokkrir úr inn­rás­ar­lið­inu fóru inn á skrif­stofur þing­manna og einn þeirra kom sér fyrir á skrif­stofu Nancy Pelosi, for­seta full­trúa­deild­ar­innar. „Við munum ekki hætta!“ stóð á miða sem hann lagði á skrif­borð hennar.

Klukkan 15.13

Trump skrifar enn einu sinni á Twitter: „Ég bið alla í banda­ríska þing­hús­inu að halda frið­inn. Ekkert ofbeldi! Munið, VIÐ erum flokkur laga og reglna – virðið lögin og okkar frá­bæra fólk í bláu. Takk fyrir!“

Dóttir hans, Ivanka, deilir tísti föður síns og ávarpar óeirð­ar­segg­ina sem „föð­ur­lands­vini“. Hún eyðir tíst­inu seinna.

Klukkan 15.21

CBS-sjón­varps­stöðin greinir fyrst fjöl­miðla frá því að kona hafi orðið fyrir skoti í þing­hús­inu og að ástand hennar sé alvar­legt. Lög­reglan til­kynnti síðar að hún hefði lát­ist.

Klukkan 15.25

Meira en klukku­tíma eftir að fólkið rudd­ist fyrst inn í þing­húsið tekst lög­reglu að koma því út úr húsa­kynnum öld­unga­deild­ar­innar.

Klukkan 15.36

Þjóð­varð­lið 1.100 manna er loks hvatt á vett­vang til að aðstoða lög­regl­una. Trump beið í margar klukku­stundir frá upp­hafi ólát­anna að kalla það út. Heim­ildir CNN herma að hann hafi í fyrstu neitað að gera það, jafn­vel eftir að ljóst var að vopn­aðir menn hefðu brotið sér leið inn í þing­húsið sjálft. Í sumar hik­aði hann ekki við að kalla slík lið til aðstoðar lög­reglu í að minnsta kosti 23 ríkjum, alls um 17 þús­und manna aukalið. Það var í tengslum við mót­mæli Black lives matter.

Um svipað leyti eru fréttir að ber­ast af því að lög­reglu­menn hafi særst í átökum við upp­reisn­ar­menn­ina.

Klukkan 16.15

Joe Biden ávarpar þjóð­ina í sjón­varpi og segir atburð­ina „for­dæma­lausa árás“ og hvetur Trump til þess að bregð­ast við.

Klukkan 16.17

Trump birtir einnar mín­útu langt mynd­band á Twitter þar sem hann segir m.a.: „Ég veit að þið finnið sárs­auka. Ég veit að þið eruð sár. Kosn­ing­unum var stolið af okkur. Við unnum með yfir­burðum og allir vita það, aðal­lega and­stæð­ing­arnir. En þið verðið að fara heim núna. Við verðum að halda frið­inn. Við verðum að hafa lög og reglu. Svo farið heim. Við elskum ykkur, þið eruð mjög sér­stök í okkar huga. Ég veit hvernig ykkur líður. En farið heim og farið heim í friði.“

Ein­hverjum tístum for­set­ans um óeirð­irnar hefur verið eytt af reikn­ingi hans. Þá ákvað Twitter í nótt að loka fyrir nýjar færslur frá Trump.

Klukkan 20 í gærkvöldi

Þingmenn halda fundi sínum áfram eftir að árás­ar­menn­irnir höfðu verið fjar­lægðir úr þing­hús­inu.

Þeir stað­festa nokkru síðar nið­ur­stöðu kosn­ing­anna: Joe Biden er rétt­kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

Fjórir lét­ust í átök­unum í nótt. Tugir voru hand­teknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár