Reiðufé jókst í umferð en ekki endilega í viðskiptum

10 þús­und króna seðlum fjölg­aði mikið á síð­asta ári. Að mati aðal­fé­hirðis Seðla­bank­ans er það mögu­leg vís­bend­ing um að fólk hafi ákveðið að geyma hluta eigna sinna í reiðufé vegna óvissu í efna­hags­málum.

Magn reiðu­fjár í umferð jókst mikið hér á landi í fyrra, miðað við árin á undan, þótt ekki sé víst að við­skipti með reiðufé hafi auk­ist. Vís­bend­ingar eru um að þessi aukn­ing hafi verið til­komin vegna þess að fólk hafi ákveðið að færa eignir sínar á örugg­ara form vegna óvissu í efna­hags­málum.

Þetta kemur fram í grein Stefáns Arn­ar­sonar, aðal­fé­hirðis Seðla­banka Íslands, sem birt­ist í nýjasta tíma­riti Vís­bend­ingar síð­ast­lið­inn föstu­dag. Samkvæmt Stefáni er ásókn fólks í öruggar eignir, líkt og gull og reiðufé, þekkt á óvissu­tímum, en aukn­ing 10 þús­und króna seðla í umferð í mars og apríl gæti hafa verið birt­ing­ar­mynd slíkrar hegð­unar.

50 seðlar á mann

73 millj­arðar króna af reiðufé eru í umferð hér­lendis í dag. Það gerir að með­al­tali 50 seðla á hvern lands­mann, að verð­mæti 209 þús­und krónur, og 12 þús­und krónur í klinki sem vega 4 kg. Hins vegar, þegar lands­menn eru spurðir í könn­unum hversu mikið reiðufé þeir hafi á sér, segj­ast þeir ganga með um 10 þús­und krónur. Stefán segir það þýða að ein­hverjir Íslend­ingar geymi háar fjár­hæðir í reiðufé á góðum stöðum.

Hins vegar segir Stefán að ýmsir þættir hamli grein­ingu á notkun reiðu­fjár, þar sem upp­lýs­ingar um hvernig hún skipt­ist milli við­skipta og geymslu liggi ekki fyrir.

Meira reiðufé en ekki endilega í viðskiptum

Hver sem notk­unin var má þó sjá frá tölum Seðla­bank­ans að árin 2017 til 2019 hægði á vexti reiðu­fjár í umferð, en í byrjun síð­asta árs nam vöxt­ur­inn á árs­grund­velli fjórum pró­sentum. Við­snún­ingur var á þess­ari þróun í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins og efna­hag­skrepp­unni sem henni fylgdi, en á seinni hluta árs­ins nam tólf mán­aða vöxtur reiðu­fjár í umferð rúm­lega tíu pró­sentum.

Þrátt fyrir mik­inn vöxt reiðu­fjár í umferð nefnir Stefán að ýmsir þættir bendi til þess að notkun reiðu­fjár í við­skiptum á síð­ustu mán­uðum hafi minnkað, til að mynda hafi net­verslun auk­ist, auk þess sem yfir­völd og bankar hafi hvatt fólk til að nota snerti­lausar greiðslu­lausnir. Einnig hafi ferða­mönnum á land­inu fækkað, en þeir eru alla jafna gjarnir á að nota reiðufé.

Önnur vís­bend­ing um að geymsla reiðu­fjár hafi auk­ist fæst þegar skoð­aðar eru teg­undir reiðu­fjár sem auk­ist hefur í umferð á síð­asta ári. Nær öll aukn­ing reiðu­fjár árið 2020 var vegna auk­ins fjölda 10 þús­und króna seðla, en þeim fjölg­aði um 17,2 pró­sent á meðan aukn­ingin var mun minni hjá smærri seðlum og myntum.

Öruggar eignir á óvissutímum

Svo virð­ist sem mikið af aukn­ingu 10 þús­und króna seðla í umferð hafi átt sér stað á fyrstu vikum far­ald­urs­ins í mars og apríl. Daginn sem fyrsta sam­komu­bannið var aug­lýst streymdu til dæmis út 350 millj­ónir króna af 10 þús­und króna seðlum.

Samkvæmt Stefáni er mögu­leg skýr­ing á þess­ari fjölgun sú að fólk hafi brugð­ist við óvissu í efna­hags­málum með því að færa eignir sínar inn á örugg­ara form, þ.e. íslenskt reiðufé. Hann segir að þessi hegðun, sem kölluð er „flight to quality“ á ensku, birt­ist til dæmis sem ásókn í gull á óvissu­tímum.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár