Inni í þinghúsinu voru óeirðarseggirnir við völd

Borg­ar­stjór­inn vildi ekki liðs­auka. Þinglög­reglan taldi við­búnað nægi­legan og alrík­is­lög­reglu­menn og þjóð­varð­liðar létu lítið fyrir sér fara. Stór­kost­legt van­mat á hætt­unni varð til þess að hund­ruð manna komust inn í þing­húsið með léttum leik.

Þau rudd­ust inn. Stukku yfir örygg­is­girð­ingar sem komið hafði verið upp. Lítið mál. Ekkert mál. Svo gengu þau um ganga sjálfs Banda­ríkja­þings með fána sína, sum hver klædd furðu­fatn­aði. Rétt eins og þau vissu að þannig myndu þau vekja athygli og undrun þeirra sem síðar fengju að sjá mynd­irnar.

Sumir fóru inn á skrif­stofur þing­manna. Komu sér þægi­lega fyrir við skrif­borðin. Flettu í gegnum blöð, mögu­lega trún­að­ar­gögn. Skiptust á að setj­ast í stól þing­for­seta í þingsalnum.

Tóku sjálfur. Voru hin róleg­ustu. Því inni í þing­hús­inu voru þeir við völd.

Á meðan höfðu þing­menn og starfs­menn þings­ins flúið undir jörð­ina. Þrætt sig með aðstoð líf­varða og lög­reglu­manna í gegnum völ­und­ar­hús ganga.

Þetta er sú birt­ing­ar­mynd sem margir hafa fengið af árásinni á Banda­ríkja­þing á mið­viku­dag. Inni í hús­inu og fyrir utan kom þó til átaka. Einn lög­reglu­maður lést. Einn úr inn­rás­ar­hópnum var skot­inn til bana. Fimm hafa því týnt lífi vegna óeirð­anna.

„Hvernig gat [lög­regl­unni] mis­tek­ist svona herfi­lega?“ segir öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn og repúblikan­inn Lindsey O. Graham. „Þeir hefðu getað sprengt bygg­ing­una í loft upp. Þeir hefðu getað drepið okkur öll.“

Fjöl­margar spurn­ingar hafa vaknað. Hvernig lifir maður það af að brjót­ast inn í mið­stöð lýð­ræðis hins frjálsa heims? Enga nákvæma við­miðun um við­brögð yfir­valda er að finna, þetta hefur ekki áður átt sér stað.

Margir sem furða sig á því hvernig þetta gat gerst hafa deilt tísti banda­ríska rapp­ar­ans Noah Caine þar sem stendur við mynd af einum árás­armann­anna í stóli for­seta öld­unga­deild­ar­innar: Að kom­ast hingað án þess að deyja er lif­andi dæmi um for­rétt­indi hvítra.

Innrás stuðn­ings­manna Donalds Trump í þing­húsið á mið­viku­dag afhjúpaði í besta falli gríð­ar­mik­inn mis­brest í örygg­is­málum því þetta átti sér stað í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, þar sem við­bún­að­ar­stig var þegar hátt, og í sjálfu þing­hús­inu, sem hefur yfir 2.000 manna sjálf­stæðu lög­reglu­liði að ráða. Lög­reglu­liði sem hefur það hlut­verk að verja nokkrar bygg­ingar og umhverfi þeirra. Lög­reglu­lið sem er á pari við þau lið sem starfa í mörgum minni borgum og bæjum Banda­ríkj­anna.

Hundruð manna tókst þó með að því er virð­ist lít­illi fyr­ir­höfn, fyrst og fremst með fánastangir og varn­ar­skildi að vopni, að brjót­ast inn fyrir varn­ar­línur lög­regl­unnar fyrir framan bygg­ing­arnar og svo alla leið inn í það og inn í þing­sali húss­ins og skrif­stofur þing­manna.

En hvernig má það vera?

[adspot]

Það var ekki eins og mót­mælin sem þús­undir stuðn­ings­manna for­set­ans frá­far­andi sóttu hefðu sprottið skyndi­lega upp. Þau höfðu verið skipu­lögð vikum saman og Trump sjálfur þegar um miðjan des­em­ber hvatt stuðn­ings­menn sína til að mæta á þau. Þetta var dag­ur­inn sem þing­heimur átti að stað­festa – nú eða hafna – nið­ur­stöðum for­seta­kosn­ing­anna. Þá hafði Trump egnt stuðn­ings­menn sína í ræðu og riti (á Twitter) til að sætta sig ekki við „falska“ nið­ur­stöðu kosn­ing­anna sem hann sagði, án nokk­urra sönn­un­ar­gagna, hafa verið „stolið“ af sér. Hann væri rétt­mætur sig­ur­veg­ari og hefði unnið með miklum meiri­hluta.

Allir vissu það. Ekki síst and­stæð­ingar hans.

[links]Þegar rýnt er í upp­tökur og myndir af því sem fram fór við þing­húsið í fyrra­dag, og af nógu er að taka í þeim efnum, virð­ist í sumum til­vikum sem lög­reglan hafi vart verið sýni­leg, að minnsta kosti ekk­ert í lík­ingu við það sem hún var í fjölda­mót­mælum sum­ars­ins – þegar millj­ónir söfn­uð­ust saman víðs vegar um Banda­ríkin og kröfð­ust rétt­lætis fyrir svarta í kjöl­far morðs­ins á George Floyd. Í frétta­skýr­ingu Washington Post, þar sem farið er yfir gjörðir lög­regl­unnar í upp­hafi óeirð­anna, segir að svo virð­ist sem sumir lög­reglu­menn hafi staðið aðgerða­lausir hjá á meðan múg­ur­inn réðst til inn­göngu í þing­húsið. Heim­ild­ar­menn dag­blaðs­ins innan lög­regl­unnar segja að þinglög­regl­unni og öðrum emb­ættum sem eiga að tryggja lög og reglu undir þessum kring­um­stæðum hafi mis­tek­ist. Þessir aðilar hafi van­metið fjölda þeirra sem þátt tóku í mót­mæl­unum og þann árás­ar­hug sem margir voru í.

Annað sem vakið hefur athygli er að miðað við þá vit­neskju að til fjölda­mót­mæla myndi koma hafi þinglög­reglan verið illa und­ir­búin. Girð­ingum hafði verið komið upp við þing­húsið en þær voru lágar og ekk­ert mál að stökkva yfir þær. Þá voru lög­reglu­menn­irnir flestir í hefð­bundnum lög­reglu­bún­ingum – ekki óeirð­ar­bún­ingum. Þeir voru klæddir til að fylgj­ast með mót­mælum en ekki til að verj­ast inn­rás.

Í grein Washington Post, sem byggir á við­tölum við bæði lög­reglu­menn og sér­fræð­inga aðra í lög­gæslu, vekja við­brögð lög­reglu­manna inn í hús­inu einnig undrun. Svo virð­ist sem margir þeirra hafi staðið hjá og lítið brugð­ist við skar­anum sem flæddi þar um ganga. Þetta eru atriði sem sér­fræð­ing­arnir telja sig sjá út frá mynd­böndum og myndum sem birtar hafa verið opin­ber­lega en form­leg rann­sókn á atburða­rásinni allri á auð­vitað enn eftir að fara fram.

Annað sem hefur vakið mikla athygli er hversu fáir voru hand­teknir. Fólk sem hafði brotið sér leið inn í þing­húsið var rekið út úr því en var svo lang­flest frjálst ferða sinna. Í dag, föstu­dag, hefur komið á dag­inn að átökin milli lög­reglu­manna og óróa­seggja utan og innan veggja þing­húss­ins hafi verið meiri en í fyrstu var talið og að minnsta kosti einn lög­reglu­maður týndi lífi.

Hið meinta aðgerða­leysi ein­hverra lög­reglu­manna á sér lík­leg­ast, að minnsta kosti að stórum hluta, þá skýr­ingu að þeir áttu ekki von á þessu. Voru illa und­ir­búnir.

Og það skrif­ast á yfir­völd.

Steven Sund, lög­reglu­stjóri þinglög­regl­unnar, sagði að hún hefði und­ir­búið sig fyrir hörð mót­mæli. En í stað­inn hafi lið hans þurft að takast á við upp­reisn­ar­menn sem sýndu af sér glæp­sam­lega hegðun.

Þrír yfir­menn þinglög­regl­unnar sögðu af sér í gær, þeirra á meðal Sund. En ábyrgðin liggur einnig hærra í stjórn­kerf­inu.

Hryllingsmynd í beinni

„Þetta er eins og að horfa á hryll­ings­mynd í beinni,“ segir Kim Dane, sem var yfir­maður þinglög­regl­unnar á árinum 2012-2016. „Við æfum okkur og skipu­leggjum á hverjum ein­asta degi til að koma í veg fyrir svona atburði. Hvernig þetta gerð­ist... ég skil það ekki.“

Dane bendir einnig á að það hafi komið sér á óvart hversu nálægt þing­hús­inu lög­reglan leyfði mót­mæl­endum að koma þegar í upp­hafi. Þeir gátu staðið á tröppum þess. Þá furðar hann sig einnig á því að þeir sem komust inn hafi ekki þegar í stað verið hand­teknir.

Stuttu eftir að einn lög­reglu­maður úr þinglög­regl­unni hafði hleypt af skoti sem hæfði konu sem brot­ist hafði inn í þing­húsið í háls­inn tók lög­reglan í Washington-borg yfir vett­vang­inn og það verk­efni að koma óeirð­ar­seggj­unum út úr bygg­ing­unni. „Það sem við gerðum var að end­ur­reisa lýð­ræðið fyrir öll Banda­ríkin,“ sagði Robert Contee, lög­reglu­stjóri Washington-borgar í gær.

Aðrir sem þekkja til aðgerð­anna í þing­hús­inu segja að þinglög­reglan hafi átt nóg með að tryggja öryggi þing­manna og starfs­manna þings­ins. Hún hafi ekki haft mann­afla til þess að fara í beinar og harðar aðgerðir gegn inn­rás­ar­lið­inu, t.d. að hand­taka fjölda manns. Með öðrum orðum: Allt fárið kom henni algjör­lega í opna skjöldu.

„Það átti eng­inn að vera svona nálægt þing­hús­inu,“ sagði þing­maður repúblik­ana, Tim Ryan, á blaða­manna­fundi eftir inn­rás­ina en hann fer fyrir þing­nefnd sem fer með fjár­veit­ingar til þinglög­regl­unnar. Hann segir að fólk eigi að fá að mót­mæla í nágrenni þing­húss­ins en ekki upp við það eins og gerð­ist í fyrra­dag. „Ég held að það sé alveg ljóst að það er hópur manna sem á eftir að verða atvinnu­laus bráð­lega.“

Til að hafa það á hreinu...

Þegar stuðn­ings­menn Trumps tóku að streyma til Washington í byrjun vik­unnar ótt­að­ist borg­ar­stjór­inn mest að þeir myndu vinna skemmd­ar­verk á torgi norður af Hvíta hús­inu sem helgað hefur verið bar­áttu Black Lives Matter. Málin þró­uð­ust þó á allt annan veg. Þinglög­reglan ber fyrst og fremst ábyrgð á þing­hús­inu sjálfu og næsta nágrenni og þótt að mann­fjöld­inn hafi vaxið í aðdrag­anda gær­dags­ins töldu yfir­menn hennar ekki þörf á aðstoð frá almennu lög­regl­unni í Washington. Einhver fjöldi alrík­is­lög­reglu­manna var í borg­inni en hafði verið beð­inn að láta lítið á sér bera til að valda ekki óþarfa hræðslu meðal fólks.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið heim­il­aði fyr­ir­fram aðkomu 340 þjóð­varð­liða að lög­gæslu í borg­inni á mið­viku­dag en með þeim skil­yrðum að þeir myndu ekki bera skot­vopn og tækju að sér stuðn­ings­verk­efni eins og umferð­ar­stjórnun.

„Til að hafa það á hreinu þá er alrík­is­hérað Columbiu [D.C.] ekki að óska eftir frek­ari alrík­is­lög­reglu­mönnum og hvetur ekki til liðs­styrks án sam­skipta við og eftir ráð­legg­ingar frá [borg­ar­lög­regl­unni] ef slíkar áætl­anir eru í bígerð,“ skrif­aði borg­ar­stjór­inn í bréfi til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins á þriðju­dag.

Þegar fyrstu mót­mæl­end­urnir höfðu brot­ist inn í þing­húsið, með því að brjóta glugga með hlífð­ar­skjöldum sem þeir báru, opn­uðu þeir dyr húss­ins fyrir öðrum. Þeir ein­fald­lega hleyptu skrílnum inn. Þá þegar var sent út neyð­ar­kall til ann­arra lög­reglu­emb­ætta og þau beðin um liðs­styrk. Við því var hins vegar ekki brugð­ist af krafti þegar í stað og langur tími leið raunar áður en t.d. þjóð­varð­liðar voru kvaddir til. Þegar liðs­auki barst voru þegar hund­ruð manna komin inn í þing­húsið og ástandið orðið óvið­ráð­an­legt.

Fjöl­miðlar austan hafs og vestan hafa borið kennsl á óeirð­ar­segg­ina sem höfðu sig hvað mest í frammi. Sumir þeirra eru þekktir full­trúar öfga hægri hópa eða tals­menn slíkra skoð­ana. Þessir hópar hafa margir hverjir lýst yfir stuðn­ingi við Trump svo í raun ætti þátt­taka þeirra í upp­þot­inu ekki að koma á óvart.

Einmana úlfar mynda hjörð

En það er eins og hún hafi komið lög­reglu- og borg­ar­yf­ir­völdum á óvart. Skýr­ingin felst, að mati Seyward Darby, rit­stjóra tíma­rits­ins Atavist Magazine og pistla­höf­undar New York Times, í því að hingað til hefur verið litið á hvíta þjóð­ern­is­sinna og aðra hægri öfga­menn sem marga ósam­stæða hópa. Í fjöl­miðlum eru þeir kall­aðir „ein­farar“ eða „ein­mana úlfar“ þegar þeir fremja hermd­ar­verk. Á glæpi þeirra er svo litið sem „ein­stök til­vik“ – ekki skipu­lögð hryðju­verk. Mistökin fel­ast í einmitt þessu; að sam­an­lögð ógn hópanna hafi ekki verið metin. „Þeir geta ógnað og eru ógn­andi og hér erum við svo stödd, í fyrstu viku árs­ins 2021, að fylgj­ast með óvel­kominni sögu­legri stund í Washington.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár