Helgi Magnússon setur 600 milljónir til viðbótar í útgáfufélag Fréttablaðsins

Stærsti eig­andi fjöl­miðla­sam­steypunnar Torgs, sem keypti hana í fyrra, hefur sett 600 millj­ónir króna til við­bótar inn í rekstur hennar. Það er gert til að greiða upp lán og „mæta því tapi sem veiru­far­ald­ur­inn hefur valdið á árinu“.

Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs.
Helgi Magn­ús­son, aðal­eig­andi Torgs. Mynd: Torg.is

Torg ehf., útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, hefur aukið eigið fé sitt um 600 millj­ónir króna með því að gefa út nýtt hlutafé. Ónafn­greint félag í eigu Helga Magn­ús­sonar, sem var fyrir aðal­eig­andi Torgs, hefur keypt allt nýja hluta­féð. Félög í hans eigu eiga nú um 90 pró­sent hluta­fjár í Torgi.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir að til­gangur hluta­fjár­aukn­ing­ar­innar sé að „greiða upp óhag­stæð lán og mæta því tapi sem veiru­far­ald­ur­inn hefur valdið á árinu.“

Á árinu 2020 tók Torg yfir rekstur sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar og vefs­ins Hring­braut.is. Þá festi félagið kaup á eignum og rétt­indum tengdum viku­blað­inu DV, vefnum dv.is, eyj­unni.is, press­unni.is, 433.is og fleiri tengdum vef­um. Allir ofan­greindir fjöl­miðlar höfðu verið reknir í miklu tapi árum saman áður en að Torg tók þá yfir.

Í árs­reikn­ingi Torgs fyrir síð­asta ár kom fram að COVID-19 heims­far­ald­ur­inn sem nú gengur yfir muni „hafa veru­leg áhrif á mörgum sviðum efna­hags­lífs­ins, bæði hér­lendis og erlend­is. Veru­leg óvissa ríkir um efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins, hve lengi hann mun vara og hver áhrifin verða eftir að honum lýk­ur. Það er mat stjórn­enda að ekki sé unnt að leggja mat á áhrif þessa á félagið á þessum tíma­punkti. Félagið hefur brugð­ist við þessum aðstæðum með kostn­að­arað­haldi eins og með því að hætta útgáfu Frétta­blaðs­ins á mánu­dögum og gert áætl­anir sem miða að því að mæta ætl­uðum sam­drætti og hrint þeim í fram­kvæmd.“

Eigið féð helmingaðist á síðasta ári

Eigið fé Torgs nálægt helm­ing­að­ist á síð­asta ári. Það var 502 millj­ónir króna í árs­lok 2018 en tæp­lega 290 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Tap félags­ins á síð­asta ári var 212 millj­ónir króna en þar var búið að reikna með 50 millj­óna króna styrk út rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þeir styrkir voru aldrei greiddir út, enda frum­varp um þá ekki sam­þykkt. Hins vegar voru greiddar út sér­stakir neyð­ar­styrkir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem á end­anum skil­uðu Torgi 64 millj­ónum króna.

[adspot]Frumvarp um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla var lagt fram á ný fyrr í þessum mán­uði, en mót­staða hjá nokkrum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks varð til þess að samið var um að fresta því að klára fyrstu umræðu um málið, og vísa því til nefndar, fram yfir ára­mót hið minnsta. Algjör óvissa ríkir því um hvort styrkirnir verði greiddir út á næsta ári eða ekki.

Sala á aug­lýs­ing­um, sem er uppi­staða tekna Torgs, dróst saman um 318 millj­ónir króna á árinu 2019, eða um 12,3 pró­sent, og var 2.257 millj­ónir króna. Torg hafi skilað 39 milljón króna hagn­aði á árinu 2018.

Skuldir félags­ins juk­ust hins vegar úr 765 millj­ónum króna í 1.186 millj­ónir króna, eða um 55 pró­sent milli ára. Þar munar mestu um að nýjar skuldir við lána­stofn­anir en lang­tíma­skuldir við slíkar voru 327 millj­ónir króna í lok síð­asta árs.

Eignir Torgs í lok síð­asta árs voru að uppi­stöðu við­skipta­vild upp á 752 millj­ónir króna og áhöld, tæki eða inn­rétt­ingar sem metin eru á 256 millj­ónir króna. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að það hafi keypt tölvu­bún­að, bif­reiðar eða vélar á síð­asta ári fyrir 172 millj­ónir króna.

Með­al­fjöldi starfa hjá Torgi var 81 á síð­asta ári.

Keyptu hlutabréf fyrir 600 milljónir í fyrra

Félag í að mestu í eigu Helga, sem er fjár­­­­­festir og fyrr­ver­andi stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Líf­eyr­is­­­sjóðs verzlunarmanna, keypti helm­ings­hlut í Torgi um mitt ár í fyrra. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál.

[links]Í októ­ber keyptu Helgi og sam­­starfs­­menn hans hinn helm­ing­inn auk þess sem sjón­­varps­­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­­ur­inn. Aftur var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál.

Eign­ar­haldið á Torgi hefur verið í félagi sem heitir HFB-77 ehf. Það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­ónir króna í fyrra. Torg er eina þekkta eign félags­ins og var keypt á síð­asta ári. Miðað við þær upp­lýs­ingar má ætla að Helgi og við­skipta­fé­lagar hans hafi sett um 1,2 millj­arð króna í að ann­ars vegar kaupa Torg og hins vegar að styrkja rekstur útgáfu­fé­lags­ins nú.

Aðrir eig­endur eru Sig­­­urður Arn­gríms­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­skipta­­­fé­lagi Helga til margra ára, Jón G. Þór­is­­­son, rit­­­stjóri Frétta­­­blaðs­ins, og Guð­­­mundur Örn Jóhanns­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­varps­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­kvæmda­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­mála og dag­­­­skrár­­­­gerðar hjá Torg­i. Þeir eiga nú, eftir nýju aukn­ing­una, sam­tals tíu pró­sent í Torgi.

Um þriðj­ungur les frí­blaðið

Frétta­­blað­ið, frí­­blað sem dreift er ókeypis í 80 þús­und ein­­tökum á heim­ili á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu og Akur­eyri, er flagg­­skip Torgs. Það kemur nú út fimm sinnum í viku. Útgáfu­­dögum þess var fækkað um einn í apríl síð­­ast­liðn­­um, þegar ákveðið var að blaðið myndi ekki lengur koma út á mán­u­­dög­­um. Síð­­asta breyt­ing á útgáfu­­tíðni fyrir það hafði verið í jan­úar 2009, skömmu eftir banka­hrun­ið, þegar Frétta­­blaðið hætti að koma út á sunn­u­­dög­­um.

Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­­festu á dag­­blaða­­mark­aði með til­­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust 65,2 pró­­sent lands­­manna lesa Frétta­­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­­sent. Nú mælist lestur Frétta­­blaðs­ins 33,8 pró­­sent.

Lest­­ur­inn hefur að mestu dreg­ist saman hjá yngri les­end­­um. Vorið 2010 lásu um 64 pró­­sent lands­­manna í ald­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára blað­ið. Nú lesa 24,3 pró­­sent lands­­manna undir fimm­tugu það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár