Árvakur tapaði 291 milljónum í fyrra og hefur tapað 2,5 milljarði á áratug

Samstæða útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins skil­aði tapi í fyrra. Tapið dróst saman milli ára og er það sagt vera vegna hag­ræð­ing­ar­að­gerða sem ráð­ist hafi verið í. Hlutafé var aukið um 300 millj­ónir króna til að mæta tap­rekstr­inum.

Samstæðu Árvakurs, sem sam­anstendur af útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, Lands­prenti og Póst­mið­stöð­inni, tap­aði 291 millj­ónum krónum á árinu 2019. Tap móð­ur­fé­lags Árvakurs, sem er allt tap utan taps Póst­mið­stöðv­ar­innar, móð­ur­fé­lags dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Póst­dreif­ingar, sem Árvakur keypti 51 pró­sent hlut í 2018, var 210 millj­ónir króna Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Á þeim ára­tug sem leið frá því að nýir eig­endur tóku yfir móð­ur­fé­lagið Þórsmörk á árinu 2009, og fram til loka árs 2019, tap­aði félagið sam­tals um 2,5 millj­örðum króna. Tap Árvak­urs árið 2018 var 415 millj­ónir króna og dróst því saman á milli ára.

Greint var frá því í lok síð­ustu viku að Póst­dreif­ing, sem sér meðal ann­ars um að dreifa Morg­un­blað­inu og helsta sam­keppn­is­að­ila þess í prent­blaða­út­gáfu Frétta­blað­inu, hef­ði sagt upp öll­um 304 blað­ber­um sín­um en upp­sagn­ir taka gildi frá og með deg­inum í dag, 1. ágúst. Hinn eig­andi Póst­dreif­ingar er Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, sem á 49 pró­sent hlut.

[adspot]Í frétt Morg­un­blaðs­ins er haft eftir Haraldi Johann­es­sen, ann­ars rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og fram­kvæmda­stjóra Árvakurs, að miklar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir á árinu 2018 og aftur undir lok síð­asta árs, sem fólu meðal ann­ars í sér upp­sagnir starfs­fólks, hefði minnkað tap á milli ára. „Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er útlitið hins vegar mik­illi óvissu háð og afar erfitt að átta sig á því hvernig rekstr­ar­um­hverfið mun þró­ast, en rekstur fjöl­miðla er mjög við­kvæmur fyrir und­ir­liggj­andi ástandi í atvinnu­líf­inu.“

Árvakur mun, líkt og aðrir fjöl­miðlar sem upp­fylla sett skil­yrði, fá greiðslu úr rík­is­sjóði 1. sept­em­ber næst­kom­andi vegna ákvörð­unar rík­is­stjórn­ar­innar um að deila út 400 millj­ónum króna til fjöl­miðla vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á rekstr­ar­um­hverfi þeirra. Viðbúið er að þrjú fjöl­miðla­fyr­ir­tæki upp­fylli sett skil­yrði ráða­manna fyrir hámarks­greiðslu, sem er allt að 100 millj­ónir króna. Þau eru Árvakur, Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, og Sýn. Því mun að óbreyttu 75 pró­sent styrkt­ar­upp­hæð­ar­innar fara til þess­ara þriggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja.

Hvorki Þorsmörk né Árvakur hafa skilað inn árs­reikn­ingi til fyr­ir­tækja­skráar.

Hlutafé aukið um 300 milljónir króna

Kjarninn greindi frá því í júní að til­kynnt hefði verið um það mán­uði fyrr til opin­berra aðila að hlutafé í Þórs­mörk hefði verið aukið um 300 millj­ónir króna. Í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag segir að sú aukn­ing sé skráð á síð­asta ári. Hækk­unin á hlutafé félags­ins, sem fór út 606,6 millj­ónum í 906,6 millj­ón­ir, var öll greidd með pen­ing­um.

Frétta­blaðið greindi frá því í síð­asta mán­uði að mat­væla­fyr­ir­tækið Lýsi og fjár­fest­inga­fé­lag á vegum aðal­eig­enda Lýsis hefðu bæst við hlut­hafa­hóp Þórs­merkur og tengdra miðla. Félögin tvö fara nú með rúm­lega tíu pró­senta hlut í Þórsmörk. Mikil tengsl eru milli Lýsis og Ísfélags Vest­manna­eyja, en eig­endur þess eru sam­an­lagt stærstu eig­endur Þórs­merkur. Hlynur A ehf., félag í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, bætti líka við sig hlut í Þorsmörk. Hlutur Ramma hf. jókst einnig eftir síð­ustu hluta­fjár­aukn­ingu.

[adspot]Hlutafé Í Þórs­mörk var síð­ast aukið í byrjun árs 2019, og þá um 200 millj­ónir króna. Dótt­ur­fé­lag Kaup­­­­fé­lags Skag­­­­firð­inga (KS), Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­sent þeirra 200 millj­­­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­­­ónir króna af millj­­­ón­unum 200. Þær 40 millj­­­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­­­aukn­ing­una.

Á sama tíma var sam­­­­­þykktum félags­­­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­­­féð um allt að 400 millj­­­­­ónir króna til við­­­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir nú til árs­loka 2024.

Þegar er búið að nýta hana að mestu með 300 milljón króna hluta­fjár­aukn­ing­unni sem til­kynnt var til fyr­ir­tækja­skrár í maí.

Afskrif­uðu millj­arð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­­­­lega 1,9 millj­­­­arð króna. Á sama tíma hefur lestur flagg­skips útgáf­unnar, Morg­un­blaðs­ins, farið úr því að vera rúm­lega 40 pró­sent í að vera 22,7 pró­sent í júní 2020. Sam­drátt­ur­inn er enn meiri hjá fólki undir fimm­tugu en þar hefur les­endur fækkað úr því að vera 31,1 pró­sent af lands­mönnum vorið 2009 í að vera 12,7 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu Gallup. Á und­an­förnum árum hefur Morg­un­blaðið verið frí­blað einu sinni í viku, á fimmtu­dögum, og þá verið í svo­kall­aðri aldreif­ingu. Í henni felst að blað­inu er dreift til tug­þús­unda sem eru ekki áskrif­endur af blað­inu.

Íslenskar sjáv­ar­af­urðir, einn stærsti eig­andi Þórs­merkur, bók­færðu virði hlutar síns í Þórs­mörk á 378,1 millj­ónir króna í nýlega árs­reikn­ingi þeirra fyrir árið 2019. Þar kom einnig fram að Þórs­mörk skuld­aði félag­inu 68 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Sú skuld er á gjald­daga í ár, 2020.

Í maí 2019 var ákveðið að lækka hlutafé í Þór­s­­­mörk um einn millj­­­arð króna. Sam­­­kvæmt til­­­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­­­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi.

Við það lækk­­­aði hlutafé Þór­s­­­merkur úr 1,6 millj­­­arði króna í 606,6 millj­­­ónir króna. Það þýddi að eig­endur félags­­­ins hafa afskrifað millj­­­arð af því fjár­­­­­magni sem þeir settu inn í félag­ið. Síðan þá hef­ur, líkt og áður sagði, hluta­féð verið aukið um 300 millj­ónir króna.

Eign­­­­ar­hald Þór­s­­­­merk­­ur, eig­anda Árvak­­urs, er eft­ir­far­andi sam­kvæmt heima­síðu fjöl­miðla­nefnd­ar:

  • Íslenskar sjá­v­­­­­ar­af­­­­urðir ehf., ­forsv.m. Sig­­­­ur­jón Rafnsson,19,45 ­pró­­­­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­forsv.maður­ Guð­­­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 18,49 ­pró­­­­sent
  • Legalis s­f., ­forsv.maður­ ­Sig­­­­ur­­­­björn Magn­ús­­­­son, 13,9 ­pró­­­­sent
  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­­­­dal Arn­alds, 13,41 pró­­­­sent
  • Ísfé­lag Vest­­­­manna­eyja hf., ­forsv.maður­ ­Stefán Frið­­­­riks­­­­son, 8,99 ­pró­­­­sent
  • Rammi hf., ­forsv.maður­ Ólafur Mart­eins­­­­son, 6,87 ­pró­­­­sent
  • Þingey ehf., ­forsv.maður­ Að­al­­­­steinn Ing­­­­ólfs­­­­son, 2,40 ­pró­­­­sent
  • Stál­­­­skip ehf., ­forsv.maður­ Hall­­­­dór Krist­jáns­­­­son, 2,06 ­pró­­­­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­forsv.maður­ Ás­­­­geir Bolli Krist­ins­­­­son, 2,05 ­pró­­­­sent
  • Fari ehf., ­forsv.maður­ Jón Pálma­­­­son, 1,03 ­pró­­­­sent
  • Hrað­fryst­i­­­­húsið – Gunn­vör hf., ­forsv.maður­ Einar Valur Krist­jáns­­­­son, 0,87 ­pró­­­­sent
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár