Hlutafé í eiganda Morgunblaðsins aukið um 300 milljónir

Hlutafé í Þórsmörk, eig­anda Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, hefur verið aukið um 300 millj­ónir sam­kvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár. Eigendur útgáfu­fé­lags­ins hafa lagt rekstr­inum til 1,9 millj­arða frá því að þeir tóku við honum 2009.

Hlutafé í Þórsmörk ehf., félag­inu sem á útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, var aukið um 300 millj­ónir króna í síð­asta mán­uði. Hækkunin á hlutafé félags­ins, sem fór út 606,6 millj­ónum í 906,6 millj­ónir, var öll greidd með pen­ingum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu um hækkun á hlutafé Þórs­merkur sem barst fyr­ir­tækja­skrá 19. maí síð­ast­lið­inn. Eina eign Þórs­merkur er Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100. Þórsmörk hefur ekki birt árs­reikn­ing sinn vegna árs­ins 2019, enda frestur til slíks út ágúst næst­kom­andi. Því er rekstr­ar­nið­ur­staða þess árs ekki opin­ber sem stendur.

Mikið tap hefur verið á rekstri Árvakurs á und­an­förnum árum. Frá því að nýir eig­endur tóku yfir félagið á árinu 2009 og fram til loka árs 2018 tap­aði félagið sam­tals um 2,2 millj­örðum króna. Tap Árvakurs árið 2018 var 415 millj­ónir króna og jókst mikið frá árinu á undan, þegar það var 284 millj­ónir króna.

Hlutafé aukið um hálfan milljarð á rúmu ári

Hlutafé Í Þórsmörk var síð­ast aukið í byrjun árs 2019, og þá um 200 millj­ónir króna. Dótt­ur­fé­lag Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga (KS), Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­sent þeirra 200 millj­­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­­ónir króna af millj­­ón­unum 200. Þær 40 millj­­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­­aukn­ing­una.

Á sama tíma var sam­­­­þykktum félags­­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­­féð um allt að 400 millj­­­­ónir króna til við­­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir nú til árs­loka 2024.

[adspot]Þegar er búið að nýta hana að mestu með 300 milljón króna hluta­fjár­aukn­ing­unni sem til­kynnt var til fyr­ir­tækja­skrár í síð­asta mán­uði.

Ekki kemur fram í gögn­unum sem skilað var inn til fyr­ir­tækja­skrár hver lagði nýja hluta­féð til og upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á Þórsmörk hefur ekki verið upp­fært á vef fjöl­miðla­nefndar frá 28. maí 2019.

Afskrifuðu milljarð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­­­lega 1,9 millj­­­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS að minnsta kosti um 324 millj­­­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­­­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­­­ónum króna. Annað þeirra er félagið Hlynur A en hitt er Ísfé­lagið sjálft.

Íslenskar sjáv­ar­af­urðir bók­færðu virði hlutar síns í Þórsmörk á 378,1 millj­ónir króna í nýbirtum árs­reikn­ingi þeirra fyrir árið 2019. Þar kom einnig fram að Þórsmörk skuld­aði félag­inu 68 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Sú skuld er á gjald­daga í ár, 2020.

Í maí 2019 var ákveðið að lækka hlutafé í Þór­s­­mörk um einn millj­­arð króna. Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi.

Við það lækk­­aði hlutafé Þór­s­­merkur úr 1,6 millj­­arði króna í 606,6 millj­­ónir króna. Það þýddi að eig­endur félags­­ins hafa afskrifað millj­­arð af því fjár­­­magni sem þeir settu inn í félag­ið. Síðan þá hefur, líkt og áður sagði, hluta­féð verið aukið um 300 millj­ónir króna.

Eign­­­ar­hald Þór­s­­­merk­ur, eig­anda Árvak­urs, er eft­ir­far­andi samkvæmt heimasíðu fjölmiðlanefndar:

  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­­­dal Arn­alds, 20,05 pró­­­sent
  • Íslenskar sjá­v­­­­ar­af­­­urðir ehf., ­forsv.m. Sig­­­ur­jón Rafns­­­son, 20,00 ­pró­­­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­forsv.maður­ Guð­­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 16,45 ­pró­­­sent
  • Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja hf., ­forsv.maður­ ­Stefán Frið­­­riks­­­son, 13,43 ­pró­­­sent
  • Legalis s­f., ­forsv.maður­ ­Sig­­­ur­­­björn Magn­ús­­­son, 12,37 ­pró­­­sent
  • Rammi hf., ­forsv.maður­ Ólafur Mart­eins­­­son, 6,14 ­pró­­­sent
  • Þingey ehf., ­forsv.maður­ Að­al­­­steinn Ing­­­ólfs­­­son, 3,59 ­pró­­­sent
  • Stál­­­skip ehf., ­forsv.maður­ Hall­­­dór Krist­jáns­­­son, 3,08 ­pró­­­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­forsv.maður­ Ás­­­geir Bolli Krist­ins­­­son, 2,05 ­pró­­­sent
  • Fari ehf., ­forsv.maður­ Jón Pálma­­­son, 1,54 ­pró­­­sent
  • Hrað­fryst­i­­­húsið – Gunn­vör hf., ­forsv.maður­ Einar Valur Krist­jáns­­­son, 1,30 ­pró­­­sent
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár