Lítill hljómgrunnur fyrir andstöðu við sóttvarnaraðgerðir yfirvalda

Lands­menn treysta yfir­völdum til að takast á við COVID-19 og bara tíu pró­sent telja að of mikið sé gert úr heilsu­fars­legri hættu sem starfi af far­aldr­inum. Gagn­rýnendur finna helst hljóm­grunn á meðal lít­ils hluta kjós­enda Mið­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Kannanir sýna að langflestir landsmenn hafi fulla trú á þeirri stefnu sem almannavarnir og heilbrigðisyfirvöld reka í baráttunni gegn COVID-19.
Kannanir sýna að lang­flestir lands­menn hafi fulla trú á þeirri stefnu sem almanna­varnir og heil­brigð­is­yf­ir­völd reka í bar­átt­unni gegn COVID-19. Mynd: Bára Huld Beck

Tveir stjórn­ar­þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Sigríður Á. Andersen og Brynjar Níelsson, hafa talað með afger­andi hætti gegn sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum stjórn­valda und­an­farið. Þau eru á meðal hóps fólks sem skrif­aði undir yfir­lýs­ingu sem ber yfir­skrift­ina „Út úr kóf­inu!“ og er birt á heima­síð­unni kofid.is.

Í yfir­lýs­ingu þrýsti­hóps­ins segir meðal ann­ars að þeir sem skrifi undir hana telji að ef „haldið er áfram á sömu braut og nú verði skaði aðgerða mun meiri en skaði af völdum COVID-19. Skaðinn mun leggj­ast af miklum þunga á yngri kyn­slóðir, tekju­lága, og jað­ar­setta hópa sam­fé­lags­ins. Við teljum nauð­syn­legt að dýpka umræðu um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og við­brögð við honum. Stefnan nú virð­ist vera að stöðva veiruna hvað sem það kostar og bíða eftir bólu­efni. Við teljum þetta ekki vera góða nálgun.“

Sigríður hefur í nokkurn tíma lýst því yfir opin­ber­lega að hún hafi áhyggjur af því að opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir gangi of langt og hafi skað­leg áhrif, jafn­vel áhrif sem eru skað­legri en far­ald­ur­inn sjálfur auk mik­illa skerð­inga á borg­ara­legum rétt­indum fólks í för með sér. Þann 6. októ­ber síð­ast­lið­inn fjall­aði hún um hina svoköll­uðu Great Barr­ington-­yf­ir­lýs­ingu. Þegar talið víkur að hjarð­ó­næmi er það útbreiddur mis­skiln­ingur að með því sé verið að boða að “ekk­ert sé gert”. Það er hins vegar fjarri lagi. Heldur er mark­miðið að verja þá við­kvæmu,“ skrif­aði Sig­ríður á Facebook og vís­aði til við­tals við þre­menn­ing­anna sem settu yfir­lýs­ing­una sam­an­. Hún var svo í hópi þeirra sem settu hóp­inn sem stendur að „Út úr kóf­inu!“ yfir­lýs­ing­unni saman.

Brynjar sagði í grein sem hann birti á Vísi 9. nóv­em­ber að hann væri „sann­færð­ari en áður að við og flest önnur ríki höfum ekki brugð­ist rétt við í bar­átt­unni við veiruna“ og gagn­rýndi það sem hann kall­aði „alræði sótt­varna“ á Íslandi. Nú væri svo komið að með­virkni hans með sótt­varn­ar­að­gerðum væri lokið.

Brynjar var svo gestur Kast­ljóss í fyrra­kvöld. Þar ítrek­aði hann afstöðu sína og sagði að það væri hlut­verk stjórn­mála­manna að efast.

Landsmenn treysta upplýsingum fjölmiðla

Í yfir­lýs­ingu þrýsti­hóps­ins sem Sigríður og Brynjar skrif­uðu undir segir einnig að „hræðslu­á­róður í fjöl­miðlum styður ekki við upp­lýsta og skyn­sam­lega ákvarð­ana­töku. Upp­lýs­ingar opin­berra aðila snú­ast að mestu leyti um sjúk­dóm­inn og beinar afleið­ingar hans, en mun minna fer fyrir umfjöllun um stór­felldar efna­hags­legar og heilsu­fars­legar afleið­ingar aðgerða gegn honum, sem verða verri og verri eftir því sem far­ald­ur­inn dregst á lang­inn.“

[adspot]Í tveimur könn­unum sem Maskína gerði í júní og ágúst kom fram að yfir 82 pró­sent lands­manna treysti íslenskum fjöl­miðlum til að miðla áreið­an­legum upp­lýs­ingum um kór­ónu­veiruna og sjúk­dóm­inn COVID-19. Til sam­an­burðar má nefna að í könnun sem Reuters Institute við Oxford-há­skóla í Bret­landi gerði mæld­ist traust til fjöl­miðla 60 pró­sent í Bret­landi, 52 pró­sent í Banda­ríkj­un­um, 58 pró­sent í Þýska­landi, 51 pró­sent á Spáni, 67 pró­sent í Suð­ur­-Kóreu og 63 pró­sent í Argent­ínu.

Íslend­ingar telja sig líka vel upp­lýsta um veiruna og sjúk­dóm­inn sem hún veld­ur, en um og yfir 80 pró­sent sögð­ust telja sig vel upp­lýsta í könn­unum Mask­ínu, en í sam­an­burði sögð­ust 58 pró­sent Banda­ríkja­manna vera vel upp­lýstir um kór­ónu­veiruna í könnun sem Gallup fram­kvæmdi þar í landi.

Eiga mestan hljómgrunn hjá minnihluta kjósenda Miðflokks og Sjálfstæðisflokks

Gallup hefur frá upp­hafi far­ald­urs­ins fram­kvæmd reglu­legar kann­anir þar sem afstaða lands­manna til ýmissa hliða hans er mæld, og sú afstaða fram­sett á grunni ýmissa bak­grunns­breyta. Í nið­ur­stöðum Gallup er meðal ann­ars hægt að sjá hjá hverjum mála­til­bún­aður Sigríðar og Brynjars gæti fundið sér hljóm­grunn.

Í könn­unum Gallup kemur til að mynda fram að 93 pró­sent lands­manna treysta almanna­vörnum og heil­brigð­is­yf­ir­völdum til að takast á við COVID-19. Í byrjun apríl, þegar fyrsta bylgja far­ald­urs­ins stóð sem hæst hér­lendis, var það hlut­fall aðeins hærra eða 96,4 pró­sent og þegar sótt­varna­að­gerðir voru hertar um síð­ustu mán­aða­mót var það aðeins lægra, eða 92,5 pró­sent. Þeir lands­menn sem treysta almanna­vörnum og heil­brigð­is­yf­ir­völdum verst er ann­ars vegar að finna á meðal kjós­enda Mið­flokks­ins (níu pró­sent segj­ast treysta þeim illa) og Sjálf­stæð­is­flokks (sex pró­sent segj­ast treysta þeim illa).

Þá telja níu af hverjum tíu lands­mönnum að hæfi­lega mikil eða of lítið sé gert úr þeirri heilsu­fars­legu hættu sem stafi af COVID-19, en tíu pró­sent telja að of mikið sé gert úr henni. Þar skera kjós­endur Mið­flokks­ins (17 pró­sent telja að of mikið sé gert úr hætt­unni) og Sjálf­stæð­is­flokks­ins (16 pró­sent telja að of mikið sér gert úr hætt­unni) sig aftur úr.

Þegar spurt er að hvort almanna­varnir séu að gera nægi­lega mikið til að takast á við far­ald­ur­inn segja 91 pró­sent lands­manna að þær séu að gera hæfi­lega mikið eða að þær ættu að gera meira. Einungis níu pró­sent telja að það ætti að gera minna. Þar eru það kjós­endur Við­reisnar sem eru helst á því að yfir­völd séu að gera of mikið (16 pró­sent) en kjós­end­ur­Mið­flokks­ins (15 pró­sent) og Sjálf­stæð­is­flokks (13 pró­sent) eru ekki langt undan.

Miðflokksfólk hefur mestu efnahagslegu áhyggjurnar

Þrýsti­hóp­ur­inn sem stendur að kofid.is hefur einnig áhyggjur að því að sjónum sé ekki beint nægj­an­lega að efna­hags­legum afleið­ingum far­ald­urs­ins.

[links]Í nýj­ustu könnun Gallup kemur fram að það eru kjós­endur Mið­flokks­ins sem hafa mestar áhyggjur af efna­hags­legum áhrifum COVID-19, en 81 pró­sent þeirra hafa slíkar áhyggjur. Kjós­endur Pírata eru lík­leg­astir til að hafa litlar áhyggjur af efna­hags­legu áhrif­unum, en 16 pró­sent þeirra eru á þeirri skoðun.

Traust á íslensku rík­is­stjórn­ina til að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19 hefur hald­ist nokkuð stöðugt í gegnum far­ald­ur­inn. Í dag segj­ast um 67 pró­sent treysta henni full­kom­lega eða vel til að gera það, 16 pró­sent hvorki né og 17 pró­sent alls ekki eða illa.

Hlutfall þeirra sem treystu henni full­kom­lega eða vel var 73,9 pró­sent í byrjun apríl, 64,7 pró­sent um miðjan sept­em­ber.

Það kemur kannski ekki á óvart að kjós­endur stjórn­ar­flokk­anna þriggja treysta rík­is­stjórn­inni best 83-86 pró­sent, Kjós­endur Mið­flokks­ins (31 pró­sent treysta rík­is­stjórn­inni illa) og Píratar (26 pró­sent treysta rík­is­stjórn­inni illa) treysta henni hins vegar minnst til að takast á við efna­hags­legu áhrifin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár