Stjórnarþingmaður segist hættur „meðvirkni“ með sóttvarnaraðgerðum

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks talar á afger­andi hátt gegn sótt­varna­ráð­stöf­unum stjórn­valda í dag og segir að COVID-19 valdi ekki nægi­legu neyð­ar­á­standi til að rétt­læta aðgerð­irnar, sem séu stærstu skref í átt til alræðis í Íslands­sög­unni.

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­rýnir það sem hann kallar „alræði sótt­varna“ á Íslandi í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi í dag. Hann segir að hann sé orð­inn „sann­færð­ari en áður að við og flest önnur ríki höfum ekki brugð­ist rétt við í bar­átt­unni við veiruna.“

Þing­mað­ur­inn seg­ist telja væn­legra til árang­urs að afmarka aðgerðir til að vernda þá sem eru í hættu, gefa út almenn til­mæli um að hver passi sig og und­ir­búa heil­brigð­is­kerfið undir aukið álag vegna veirunnar. Hann segir að rík­is­valdið hér á landi hafi stigið „stærri skref til alræðis en nokkru sinni fyrr í okkar sögu“ með þeim sótt­varn­ar­að­gerðum sem hefur verið beitt til þess að reyna að hemja útbreiðslu veirunnar inn­an­lands.

„Allir þurfa svo að ganga í takt og við­ur­lögin ef út af bregður er opin­ber smánun. Öll gagn­rýni er kaf­færð með hræðslu­á­róðri,“ skrifar Brynjar og segir allt þetta með ein­dæmum. Nú sé svo komið að „með­virkni“ hans með sótt­varn­ar­að­gerð­unum sé lokið.

Í grein­inni segir hann þó einnig að það hvar­fli ekki að sér að gera lítið úr veirunni og áhrifum hennar á gam­alt fólk og veik­burða, sem geti jafn­vel verið ban­væn, en um leið segir hann veiruna þó ekki hafa í för með sér „slíkt neyð­ar­á­stand sem rétt­læti að setja blóð­tappa í þjóð­ar­lík­amann með svona almennum og íþyngj­andi tak­mörk­unum.“

„Til að takmarka frelsið svona mikið þarf meira neyðarástand“

Brynjar segir að þær aðgerðir sem ráð­ist hafi verið í hafi ekki skilað þeim árangri sem að er stefnt og athygli ráða­manna hafi dreifst um víðan völl.

„Í stað þess að vernda þá sem eru í alvar­legri hættu hefur öll áherslan verið á dag­legan hræðslu­á­róður, dreif­ingu á vill­andi töl­fræði og til­raunum til að stýra öllu, stóru og smáu, í sam­fé­lag­inu,“ skrifar þing­mað­ur­inn, sem segir í nið­ur­lagi greinar sinnar að hann viti „auð­vitað ekki frekar en aðrir hvað er alltaf rétt að gera í stöð­unni hverju sinni“, en tím­inn muni kannski leiða það í ljós.

„Ég vil samt búa í frjálsu sam­fé­lagi. Til að tak­marka frelsið svona mikið þarf meira neyð­ar­á­stand en þessa veira veldur og það sem er enn mik­il­væg­ara þá mega tak­mark­anir og þving­anir ekki hafa verri áhrif á líf okkar og heilsu til lengri tíma en veiran sjálf. Mér finnst þetta sjón­ar­mið rök­rétt og eðli­legt og þurfi ekki að kalla á útskúfun eða aðra opin­bera smánun,“ skrifar Brynjar.

Heilbrigðisráðherra kallar eftir lausnum, ekki bara gagnrýni

Þau sjón­ar­mið sem Brynjar viðrar í grein sinni hafa verið nokkuð til umræðu und­an­farnar vikur, ekki síst eftir að hin svo­kall­aða Great Barr­ington-yfir­lýs­ing leit dags­ins ljós í byrjun októ­ber­mán­aðar, en meg­in­inntakið í henni er að verja eigi við­kvæma hópa en leyfa öðrum að byrja að lifa eðli­legu lífi á ný, án tafar, þar sem aðgerð­irnar gegn veirunni séu að valda sam­fé­lögum meiri skaða en far­ald­ur­inn sjálfur.

Sigríður Á. Andersen sam­flokks­kona Brynjars hefur talað á svip­uðum nótum, sagt að opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir gangi of langt og hafi jafn­vel áhrif sem séu skað­legri en far­ald­ur­inn sjálfur, auk mik­illa skerð­inga á borg­ara­legum rétt­indum fólks.[links]

Hún og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra ræddu einmitt um þessi mál í þing­sal fyrir helgi og þá kall­aði Svandís eftir því að Sigríður útskýrði betur hvernig hún vildi bregð­ast við útbreiðslu far­ald­urs­ins.

„Hvað er það sem hátt­virtur þing­maður leggur til? Það hefur aldrei komið fram. Leggur hátt­virtur þing­maður til að við förum ekki að ráðum sótt­varna­læknis í glímunni við COVID-19? Hvað er það sem við­kom­andi þing­maður leggur til? Það dugar nefni­lega ekki að tala bara á móti ein­hverju. Maður ber ábyrgð hérna í þessum þing­sal sem þing­maður,“ sagði ráð­herra.

Bent hefur verið á það í umræðu um sjón­ar­mið af þeim meiði að best sé að vernda við­kvæma hópa fyrir veirunni á meðan að slakað verði á almennum aðgerðum sem gangi yfir alla, að stór hluti íslensku þjóð­ar­innar telj­ist í áhættu­hóp gagn­vart sýk­ingu af völdum veirunnar.

Þau Alma Möller land­læknir, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn skrif­uðu í aðsendri grein í Frétta­blaðið að aldr­aðir og aðrir áhættu­hópar væru minnst fimmt­ungur Íslend­inga, laus­lega áætlað. Þau sögðu einnig að leið Great Barr­ington-hóps­ins kynni að „vera nán­ast ófram­kvæm­an­leg,“ ef vilji væri til þess að halda innviðum heil­brigð­is­kerf­is­ins starf­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár