„Sóttvarnareglur ríkisins eru þunglamalegar og dýrar“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn deilir þeim orðum Sigríðar Á. Andersen að opin­berar sótt­varna­reglur séu „þung­lama­legar og dýrar“ á meðan að ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir séu áhrifa­ríkar. Líf­töl­fræð­ingur segir ein­stak­lings­bundnar aðgerðir ekki duga einar og sér.

Stjórnmálamenn ræddu um sóttvarnaráðstafanir á þingi í gær.
Stjórn­mála­menn ræddu um sótt­varna­ráð­staf­anir á þingi í gær.

„Ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir eru áhrifa­ríkar. Sótt­varna­reglur rík­is­ins eru þung­lama­legar og dýrar,“ segir á mynd sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn deildi á Facebook í gær­kvöldi, eftir umræður á Alþingi um vald­heim­ildir sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra til opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana.

Orðin á mynd­inni eru eignuð Sigríði Á. Andersen þing­manni og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, sem var annar tveggja þing­manna sem töl­uðu fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í umræðum gær­dags­ins, en flokk­ur­inn situr í þeirri rík­is­stjórn sem setur gild­andi sótt­varna­reglur.

Þetta var í fyrsta sinn sem Alþingi ræddi saman um sótt­varn­ar­að­gerð­irnar sjálfar, en eftir því hafa ýmsir þing­menn kallað, þeirra á meðal Sigríður.

Sigríður sagði meðal ann­ars í ræðum sínum að gripið hefði verið til harðra opin­berra sótt­varna­að­gerða hér á landi, bæði inn­an­lands og við landa­mæri, þegar útbreiðsla veirunnar hefði þegar verið byrjuð að dvína.

Þar vís­aði hún til þess að hinn svo­nefndi smit­stuð­ull veirunnar hefði verið byrj­aður að fær­ast niður þegar harðar aðgerðir tóku gildi. Smit­stuð­ull­inn er tala sem segir til um það hversu marga að með­al­tali hver og einn ein­stak­lingur smitar af veirunni.

Þetta sagði hún hafa leitt til þess að ekki hefði feng­ist reynsla á það hvernig áhersla á auknar per­sónu­legar sótt­varnir virk­aði án hertra sótt­varna­ráð­staf­ana eins og til dæmis 20 manna fjölda­tak­mark­ana sem tóku gildi 7. októ­ber síð­ast­lið­inn.

„Þegar leik­maður horfir á þessa mynd [...] þá vaknar óneit­an­lega upp sú spurn­ing hvort ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum hafi verið gefið nægt svig­rúm til að skila sér áður en gripið var til aðgerða af hálfu yfir­valda,“ sagði Sigríður.

Mikils virði en duga ekki einar og sér

Kjarninn bar þessar vanga­veltur Sigríðar undir Thor Aspelund, líf­töl­fræð­ing við Háskóla Íslands, sem hefur verið í for­svari fyrir teymi vís­inda­manna sem setur spálíkanið saman og reiknar út smit­stuð­ul­inn.

Blaða­maður spurði Thor að því hvort það væri rök­rétt að horfa á þetta með þessum hætti, hvort mögu­lega gætu ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir einar og sér haldið áfram að sveigja smit­stuðil­inn niður án þess að gripið væri til harð­ari aðgerða, boða og banna.

Thor sagði að það væri „ekk­ert hægt að rengja það“ og að það væri fróð­leg til­raun að sjá hvort smit­stuð­ull­inn myndi halda áfram að lækka án hertra aðgerða.

Hann segir að smit­stuð­ull­inn byrji að lækka þegar fólk sjái smitin í sam­fé­lag­inu fara á flug og breyti þá hegðun sinni. Mögulega myndi smit­stuð­ull­inn hald­ast stöðugt hár ef ekki kæmi til frek­ari aðgerða.

Ljóst væri að þrátt fyrir að ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir séu mik­ils virði dugi þær ekki til, einar og sér, til þess að koma smit­stuðl­inum undir 1. Það þarf að ger­ast til þess að ná far­aldr­inum niður eins og tókst að gera hér á landi fyrr á árinu.

Hann segir að smit­stuð­ull­inn þurfi ekk­ert að vera svo hár til að far­ald­ur­inn vaxi og vaxi. „Hann verður að fara undir einn. Þess vegna þarf aðgerð­irnar,“ segir Thor.

„Sérfræðingum ber ekki saman“

Sigríður hefur verið með áhyggjur af því að opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir gangi of langt og hafi skað­leg áhrif, jafn­vel áhrif sem eru skað­legri en far­ald­ur­inn sjálfur auk mik­illa skerð­inga á borg­ara­legum rétt­indum fólks í för með sér.

Þann 6. októ­ber síð­ast­lið­inn fjall­aði hún um hina svoköll­uðu Great Barr­ington-yfir­lýs­ingu, sem fjallað var um á Kjarn­anum í síð­ustu viku. „Þegar talið víkur að hjarð­ó­næmi er það útbreiddur mis­skiln­ingur að með því sé verið að boða að “ekk­ert sé gert”. Það er hins vegar fjarri lagi. Heldur er mark­miðið að verja þá við­kvæmu,“ skrif­aði Sigríður á Facebook og vís­aði til við­tals við þre­menn­ing­anna sem settu yfir­lýs­ing­una saman.[links]

Fjallað er um þessa yfir­lýs­ingu í grein á Vís­inda­vefnum í dag undir fyr­ir­sögn­inni „Er nátt­úru­legt hjarð­ó­næmi ekki eina skyn­sam­lega leiðin út úr far­aldri COVID-19?“ Í grein­inni, sem Jóhanna Jak­obs­dóttir líf­töl­fræð­ingur hjá Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum og Jón Magnús Jóhann­es­son skrifa, er spurn­ing­unni í fyr­ir­sögn­inni svarað í fyrstu línu: „Það er til mjög ein­falt og vel rök­stutt svar við þess­ari spurn­ingu: nei.“

Sér­fræð­ing­arnir tveir rekja að nýlega hafi borið á mis­vísandi umræðu um hjarð­ó­næmi og eig­in­leikum þess, „í þeim til­gangi að hvetja til slök­unar á hörðum aðgerðum til sótt­varna víða um heim.“

Í grein­inni á vef Vís­inda­vefs­ins segir að það séu ýmsar rang­færslur í Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni í tengslum við hjarð­ó­næmi og tekið er fram að í henni eru ekki settar fram „neinar mark­vissar, skýrar ráð­legg­ingar um hvernig best er að vernda við­kvæma hópa.“

Sigríður sagði í annarri ræðu sinni í gær að menn þyrftu að hafa það í huga „að sér­fræð­ingum ber ekki saman,“ þegar talað sé um að fylgja sér­fræð­ingum í bar­átt­unni við veiruna.

Þau Jóhanna og Jón benda hins vegar á í grein sinni að það er „yfir­gnæf­andi sam­rómur meðal sér­fræð­inga um að eina leið okkar að við­un­andi hjarð­ó­næmi sé með notkun bólu­efna; áhersla á þróun nátt­úru­legs hjarð­ó­næmis er bæði byggð á fölskum for­sendum og mun leiða til veru­legs skaða ein­stak­linga, sam­fé­laga og þjóða.“

Vill milliliðalaust samtal við sóttvarnayfirvöld

Sigríður telur að stjórn­mála­menn þurfi að taka virk­ari þátt í sam­tal­inu um sótt­varna­að­gerðir og hvatti til þess í ræðu sinni í gær að útbú­inn yrði sér­stakur „vett­vangur fyrir þing­menn til þess að ræða þessi mál með reglu­legum hætti og eiga milli­liða­laust sam­tal við sótt­varn­ar­yf­ir­völd ef það á að vera þannig áfram að menn hlíti þeirra til­mælum í einu og öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár