Miðflokkurinn krefst „taf­ar­lausra úrbóta í með­ferð umsókna hæl­is­leit­enda“

Mið­flokk­ur­inn vill að dyfl­in­ar­reglu­gerð verði fylgt á Íslandi og umsóknir hæl­is­leit­enda afgreiddar í því Evr­ópu­landi sem umsækj­and­inn kemur fyrst til. Ísland taki upp eigið „landamæra­eft­ir­lit meðan skikki er komið á mála­flokk­inn“.

Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­flokk­ur­inn vill að stofnað verði sér­stakt ráðu­neyti sem fer með mál­efni land­bún­aðar- og mat­væla­fram­leiðslu í land­inu. Hann vill styrkja og efla lög­regl­una í land­inu og hann vill hefja und­ir­bún­ing að fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu nýs þjóð­ar­sjúkra­húss á Keldum í Reykja­vík sem hafi meðal ann­ars það hlut­verk að vera aðal­sjúkra­hús lands­ins. Flokk­ur­inn krefst taf­ar­lausra úrbóta í með­ferð umsókna hæl­is­leit­enda og að Ísland taki upp eigið landamæra­eft­ir­lit meðan skikki sé „komið á mála­flokk­inn“.

Þetta er meðal þeirra álykt­ana sem sam­þykktar voru á auka­lands­þingi Mið­flokks­ins sem haldið var í gær.

„Stefnu­mál flokks­ins eru end­ur­skoðuð á þessu auka­lands­þingi en standa þó í meg­in­at­riðum óhögguð frá lands­þing­inu 2018,“ segir í til­kynn­ingu frá flokknum. „Flokk­ur­inn leggur áfram þunga áherslu á að standa vörð um full­veldi þjóð­ar­innar, óskorað vald yfir auð­lindum lands­ins, að búa öllum jöfn tæki­færi og miða að því að allir íbúar lands­ins eigi kost á að nýta sér þá þjón­ustu sem rík­inu ber að veita.“ Ítar­legri end­ur­skoðun mál­efna bíður lands­þings sem nú er stefnt á að halda næsta vor, en sú vinna heldur áfram í vetur, sam­kvæmt flokknum.

Hér fyrir neðan má lesa álykt­anir Mið­flokks­ins:

Ályktun 1 – Innlend matvælaframleiðsla verði stórelfd – Nýtt ráðuneyti

Stórefla þarf land­búnað og inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu. Hér liggur eitt af stærstu tæki­færum þjóð­ar­innar til fram­tíðar þar sem heil­næmi mat­væla, fæðu­ör­yggi, mat­væla­ör­yggi og vist­væn orka á góðu verði munu spila lyk­il­hlut­verk. Formaður flokks­ins hefur nú nýverið mælt fyrir ítar­legri til­lögu til þings­á­lykt­unar um aðgerðir sem miða að því að styrkja rekstr­ar­af­komu mat­væla­fram­leið­enda til að verja grein­ina og þau fjöl­þættu verð­mæti sem í henni fel­ast fyrir sam­fé­lagið.

Þings­á­lykt­unar til­lög­una sem er aðgerða­á­ætlun í 24 liðum má í heild sinni lesa hér

Auka­lands­þing Mið­flokks­ins leggur þunga áherslu á að þessu mik­il­væga máli verði fylgt fast eftir.

Þá sam­þykkir auka­lands­þing Mið­flokks­ins einnig að stofnað verði sér­stakt ráðu­neyti sem fer með mál­efni land­bún­aðar- og mat­væla­fram­leiðslu í land­inu. Þá verði fylgt fast eftir ítar­legri skoðun á því mis­ræmi sem komið hefur fram um inn­flutn­ing og tolla­mál land­bún­að­ar­af­urða.

Ályktun 2 – Málefni aldraðra

Ráðist verði í löngu tíma­bærar end­ur­bætur á mál­efnum eldri borg­ara. Skerð­ingar og afar órétt­lát skatt­heimta verði afnumin ásamt því að aðskilja ber alveg mál­efni eldri borg­ara og öryrkja í orði og æði enda alls óskildir hópar.

Ályktun 3 – Þöggun um eignasölu

Mið­flokk­ur­inn átelur harð­lega til­raunir ein­stakra ráð­herra til þögg­unar um sölu á eignum í eigu rík­is­ins og rík­is­fyr­ir­tækja. Auka­lands­þingið hvetur þing­flokk Mið­flokks­ins einnig til áfram­hald­andi bar­áttu fyrir þær þús­undir sem misstu hús­næði sitt á árunum eftir hrun.“

Ályktun 4 – Nýtt þjóðarsjúkrahús á Keldum í Reykjavík

Mið­flokk­ur­inn vill hefja und­ir­bún­ing að fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu nýs þjóð­ar­sjúkra­húss á Keldum í Reykja­vík sem hafi m.a. það hlut­verk að vera aðal­sjúkra­hús lands­ins. Núver­andi bygg­ingar við Hring­braut verði nýttar sem umdæmis- eða hér­aðs­sjúkra­hús, auk þess er hægt að nýta bygg­ing­arnar við Hring­braut sem end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði eða hjúkr­un­ar­heim­ili.
Sjúkra­húsin á lands­byggð­inni verði sér­stak­lega efld ásamt því að standa vörð um aðgengi að einka­rek­inni heil­brigð­is­þjón­ustu, aðeins þannig er hægt að ná fram sam­legð­ar­á­hrifum til hags­bóta.

Ályktun 5 – Heimilum verði veitt skjól

Heimilum sem orðið hafa fyrir tekju­falli verði veitt skjól meðan náð er utan um vand­ann og var­an­legar lausnir fundnar vegna áhrifa veiru­far­ald­urs­ins.

  1. Lækka stað­greiðslu skatta, tekju­skatt og útsvar í 24% til loka árs 2021.
  2. Greiðslur vaxta og verð­bóta vegna fast­eigna­lána atvinnu­lausra falli niður í allt að 18 mán­uði.
  3. Vísi­tölu­hækk­anir verði bann­aðar tíma­bundið.
  4. Afnema skal skerð­ingar á greiðslum til eldri borg­ara og líf­eyr­is­þega.

Ályktun 6 – Tryggja óskorað vald yfir auðlindum þjóðarinnar

  1. Hafna frek­ari inn­leið­ingu á orku­stefnu ESB.
  2. Aft­ur­kalla sam­þykkt um 3. orku­pakk­ann.
  3. Koma í veg fyrir fram­sal rík­is­valds til erlendra stofn­ana.

Ályktun 7 – Efling löggæslu og landamæravörslu

Aukning skipu­lagðra glæpa og vís­bend­ingar um aukna starf­semi erlendra afbrota­hópa hér­lendis kalla á öflug við­brögð í lög­gæslu. Á und­an­förnum árum hefur áhættu­mat grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sýnt að áhætta vegna helstu brota­flokka skipu­lagðar glæp­a­starf­semi fari hratt vax­andi hér­lendis. Í nýlegri skýrslu deild­ar­innar var áhættan af þessu metin gíf­ur­leg og verður vart tekið sterkar til orða á þeim vett­vangi. Bendir grein­ing­ar­deildin á að skipu­lögð glæp­a­starf­semi sé oft fjöl­þjóð­leg í eðli sínu. Upp­lýs­ingar grein­ing­ar­deildar benda til að umsvif erlendra glæpa­hópa fari vax­andi. Helst hafa þeir látið að sér kveða í fram­leiðslu, sölu og inn­flutn­ingi ólög­legra fíkni­efna, en einnig í vændi, man­sali, ýmis konar mis­beit­ingu og inn­brotum.

Nauð­syn­legt er að styrkja og efla lög­regl­una í land­inu til að takast á við þessa ógn og vegna fjöl­margra nýrra áskor­anna í lög­gæslu. Ekki verður unað lengur við fækkun lög­reglu­manna. Lög­reglan verður að búa við við­un­andi starfs­skil­yrði með nægum mann­afla, tækjum og bún­aði svo unnt sé að efla frum­kvæð­is­vinnu og for­varn­ar­starf lög­reglu og til þess að með­ferðir og rann­sóknir alvar­legri mála taki sem skemmstan tíma. Þá þjónar eft­ir­lit lög­reglu á landa­mærum mjög mik­il­vægu hlut­verki og þarf að styrkja.

Ályktun 8 – Aukin meðferðarúrræði

Verið er að vinna gott starf í vímu­efna­með­ferð og stuðn­ingi við fólk í bata en ljóst er að biðin eftir aðstoð­inni er algjör­lega óvið­un­andi löng og þarf að laga þann þátt taf­ar­laust. Biðin kostar manns­líf og það ekki fá.

Ályktun 9 – Málefni hælisleitenda

Mið­flokk­ur­inn krefst taf­ar­lausra úrbóta í með­ferð umsókna hæl­is­leit­enda. Í því skyni verði þegar í stað:

  1. Tekin upp 48 stunda regla að norskri fyr­ir­mynd.
  2. Dyfl­in­ar­reglu­gerð verði fylgt og umsóknir hæl­is­leit­enda afgreiddar í því Evr­ópu­landi sem umsækj­and­inn kemur fyrst til.
  3. Ísland taki upp eigið landamæra­eft­ir­lit meðan skikki er komið á mála­flokk­inn.

Ályktun 10 – Mikilvægi nýsköpunar

Mið­flokk­ur­inn styður dyggi­lega við hvers konar fram­þróun og nýsköpun.

Mið­flokk­ur­inn telur þó að fyr­ir­liggj­andi frum­varp Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra um opin­beran stuðn­ing við nýsköpun sem inni­ber að leggja niður Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands sé samið án full­nægj­andi grein­ing­ar­vinnu á ráð­stöfun opin­bers fjár­magns til rann­sóknar og þró­unar og án full­nægj­andi sam­an­burðar við sam­bæri­leg kerfi í öðrum löndum.

Það er auk þess gert án full­nægj­andi kostn­að­ar­grein­ingar á fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á fyr­ir­komu­lagi tækni­rann­sókna til fram­tíðar og starf­semi nauð­syn­legra rann­sókna­stofn­ana atvinnu­veg­anna. Þá vantar fag­lega grein­ingu á hvar helstu tæki­færi Íslands í tækni- og orku­rann­sóknum liggi og án þess að áætlun liggi fyrir um mark­vissan stuðn­ing við þau svið til að hámarka árangur fram­lags hins opin­bera til tækni­rann­sókna og nýsköp­unar í náinni fram­tíð.

Mið­flokk­ur­inn tel því skyn­sama­legt að fresta því að afgreiða umrætt frum­varp þar til nið­ur­stöður slíkrar grein­ing­ar­vinnu liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár