„Veit ekki á gott fyrir íslenskan landbúnað ef þetta eru viðhorf landbúnaðarráðherra“

Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins gagn­rýnir Kristján Þór Júl­í­us­son land­bún­að­ar­ráð­herra harð­lega fyrir orð sem hann lét falla á þing­inu í gær. Ungir Fram­sókn­ar­menn hafa lýst yfir van­trausti á ráð­herr­ann.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýnir harð­lega orð sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, en hann sagði á þingi í gær að fyrir sauð­fjár­bændur væri starf þeirra „meira lífs­stíll heldur en spurn­ing um afkomu“.

Hún telur að það viti ekki á gott fyrir íslenskan land­búnað ef þetta séu við­horf land­bún­að­ar­ráð­herra til þeirra sem velja sér að stunda búskap að atvinnu. Ungt Fram­sókn­ar­fólk lýsti yfir van­trausti á ráð­herr­ann um helg­ina á sam­bands­þingi Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna (SUF).

Fram kom í máli ráð­herr­ans á Alþingi í gær­kvöldi að bændur hefðu að mörgu leyti mikið frelsi, þeir hefðu valið sér starfið. Hann sagði marga bændur segja sauð­fjár­bú­skap vera meiri lífs­stíl en spurn­ingu um afkomu.

„Talandi um frelsi sem bændur þrá og hafa að mörgu leyti vegna þess ein­fald­lega að fólk kýs sér atvinnu, kýs sér búsetu. Það er svona fyrsti kost­ur­inn sem að við getum sagt að fólk hafi frelsi um að velja. Ég held að það sé engin goðgá að ætla það menn kjósi af mörgum ástæðum að stunda sauð­fjár­bú­skap. Maður heyrir við­töl við sauð­fjár­bændur og á sam­töl við þau, þar sem þeir segja að þetta er meira lífs­stíll heldur en spurn­ing um afkomu.“ sagði Kristján Þór í gær en RÚV greindi frá.

Silja Dögg spyr á Facebook hvort það sé virki­lega land­bún­að­ar­ráð­herra sem láti þessi orð falla í ræðu­stól Alþingis. „Eru garð­yrkju- og kúa­bændur þá ekki bara að þessu líka til að hafa gaman, rétt eins og sauð­fjár­bændur? Bara litla sæta „hobbýið“ þeirra að fram­leiða mat fyrir þjóð­ina og tryggja fæðu­ör­yggi okkar,“ segir hún í færslu sinni.

Lýstu yfir vantrausti á ráðherrann

Ungt Fram­sókn­ar­fólk lýsti yfir van­trausti á sitj­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um liðna helgi. Í ályktun SUF segir að störf ráð­herra á kjör­tíma­bil­inu hafi sýnt að ráð­herra mis­muni mála­flokkum með þeim hætti að mál­efni land­bún­aðar sitji á hak­anum og sé ekki sinnt.

„Land­bún­aður er grund­vall­ar­stoð í íslensku sam­fé­lagi sem ekki má liggja milli hluta vegna mis­munun ráð­herra. Ungu Fram­sókn­ar­fólki finnst það óásætt­an­legt að land­bún­að­ar­ráðu­neytið sé ein­ungis skúffa í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu,“ segir í álykt­un­inni.

Kalla eftir viðbrögðum stjórnvalda varðandi aðgerðir

Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda gagn­rýna einnig harð­lega mál­flutn­ingi Krist­jáns Þórs þess efnis að sauð­fjár­bændur telji að sauð­fjár­rækt á Íslandi snú­ist um lífstíl og að afkoma grein­ar­innar skipti ekki máli. Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum segir að þau hafi, þvert á móti, kallað eftir við­brögðum stjórn­valda varð­andi aðgerðir sem geta bætt starfs­um­hverfi grein­ar­innar.

„Telji ráð­herra að sauð­fjár­bændur hafi ekki áhuga á afkomu sinni þá er hann ekki upp­lýstur um stöðu grein­ar­innar. Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda skora á stjórn­völd að efla land­bún­að­ar­ráðu­neytið þannig að því sé stýrt af þekk­ingu og vilja til að starfa að upp­bygg­ingu og efl­ingu land­bún­aðar á Íslandi,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Bændasamtökin mótmæla harðlega málflutningi ráðherrans

Bænda­sam­tök Íslands for­dæma ummæli Krist­jáns Þórs í til­kynn­ingu sem þau sendu til fjöl­miðla í dag. Samtökin mót­mæla harð­lega mál­flutn­ingi ráð­herr­ans.

„Það er alvar­legt mál ef ráð­herra land­bún­að­ar­mála fylgist það illa með þróun mála að hann telji rétt­mætt að kalla atvinnu­grein­ina ein­hvers­konar áhuga­mál, lífs­stíl eða með öðrum orðum tóm­stundagaman. Það lýsir kannski best áhuga­leysi ráð­herr­ans á mála­flokknum. Bændum er svo sann­ar­lega ekki sama um afkomu sína og hafa lengi kallað eftir því að stjórn­völd láti það til sín taka, með tak­mörk­uðum við­brögðum.

Afkoma bænda er sann­ar­lega áhyggju­efni. Afurða­verðs­þróun í mörgum greinum, einkum kjöt­fram­leiðslu, er nei­kvæð vegna efna­hags­þreng­inga, mark­aðs­þró­unar og síauk­ins inn­flutn­ings sökum þess hvað toll­vernd hefur rýrnað – ekki síst vegna aðgerða eða aðgerða­leysis stjórn­valda.

Bænda­sam­tök Íslands skora á ráð­herr­ann og rík­is­stjórn­ina alla að ráða bót á því. Yfir­lýs­ingar eins og komu fram í gær­kvöldi hjá ráð­herra land­bún­að­ar­mála, eru skað­legar hvað það varðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár