„Hvar er frelsið?“ spyr þingmaður ráðherra

Formaður Við­reisnar segir rík­is­stjórn­ina ætla að standa með milli­liðum en ekki bændum. Land­bún­að­ar­ráð­herra segir hana hafa dóma­dags­sýn á „fram­tíð íslensks land­bún­aðar og íslensks sam­fé­lags“.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Samsett mynd

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, tók­ust á um tolla­mál í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Taldi Þor­gerður Katrín að rík­is­stjórnin væri að velja „leið hafta og leið toll­verndar í stað þess að beina beinum styrkjum til bænda, verja þá og verja neyt­endur um leið“. Kristján Þór mót­mælti þessum orðum og sagði að það væri „langur vegur frá“.

Tilefni fyr­ir­spurn­ar­innar er frum­varp land­bún­að­ar­ráð­herra til laga um breyt­ingu á búvöru­lögum eða úthlutun toll­kvóta en málið gekk til atvinnu­vega­nefndar í byrjun des­em­ber. Til stendur að önnur umræða eigi sér stað síðar í vik­unni.

Með frum­varp­inu er eldra útboðs­fyr­ir­komu­lag toll­kvóta end­ur­vakið tíma­bundið í ljósi þeirra erf­iðu aðstæðna sem ríkja nú á mark­aði vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Í inn­gangi frum­varps­ins segir að meg­in­mark­mið þess sé að lág­marka áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á inn­lenda fram­leiðslu land­bún­að­ar­af­urða.

„Með laga­breyt­ingu sem tók gildi þann 1. jan­úar 2020 var svoköll­uðu jafn­væg­is­út­boði komið á vegna úthlut­unar toll­kvóta. Fram­an­greint fyr­ir­komu­lag útboðs var lagt til með hlið­sjón af til­lögum starfs­hóps um end­ur­skoðun á reglu­verki um úthlutun toll­kvóta land­bún­að­ar­vara,“ segir í frum­varp­inu.

Meg­in­efni þeirra breyt­inga hafi verið að draga úr kostn­aði þeirra sem fengju úthlutað toll­kvóta, og stuðla þar með að auknum ábata neyt­enda, í ljósi nýrra samn­inga milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) um við­skipti með land­bún­að­ar­vörur sem voru und­ir­rit­aðir 17. sept­em­ber 2015 og tóku gildi 1. maí 2018. „Með samn­ing­unum voru toll­kvótar fyrir land­bún­að­ar­vörur auknir til muna. Laga­breyt­ingin var þannig lögð fram í ljósi þeirra aðstæðna sem þá ríktu. Meðal ann­ars var horft til þess að hér á landi yrðu um tvær millj­ónir ferða­manna á ári hverju. Nú er hins vegar staðan tals­vert breytt vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar.

Áhrif­anna gætir víða en sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Ferða­mála­stofu hefur erlendum gestum til dæmis fækkað gríð­ar­lega milli ára. Í sam­an­burði við árið 2019 var fækkun erlendra gesta um 53 pró­sent í mars, um 99 pró­sent í apríl og maí, 97 pró­sent í júní, 80 pró­sent í júlí, 75 pró­sent í ágúst og 95 pró­sent í sept­em­ber. Í ljósi fram­an­greinds er ljóst að eft­ir­spurn eftir mat­vælum hefur dreg­ist tals­vert saman en inn­flutn­ingur sam­kvæmt toll­kvótum hefur á sama tíma hald­ist óbreyttur. Það er inn­lend mat­væla­fram­leiðsla sem tekur það högg og við því þarf að bregð­ast,“ segir í frum­varp­inu.

Með frum­varp­inu er því lagt til að eldra fyr­ir­komu­lag útboðs toll­kvóta verði tekið upp að nýju þar til 1. febr­úar 2022. Ef kemur til þess að toll­kvóti verði boð­inn út allt fram til 1. febr­úar 2022 verði það sam­kvæmt áður gild­andi útboðs­fyr­ir­komu­lagin þar sem til­boðs­gjafar greiða þá fjár­hæð sem til­boð þeirra hljóðar upp á en ekki lægsta sam­þykkta verð líkt og jafn­væg­is­út­boðið gerir ráð fyrir.

Vill að styrkirnir fari beint til bænda og að milliliðum sé sleppt

Þor­gerður Katrín sagði á þingi í dag að eitt af því sem kreppan mikla á síð­ustu öld hefði kennt okkur, og þá sér­stak­lega setn­ing Smoot-Hawley lag­anna í Banda­ríkj­unum, væri að þegar þjóðir reyndu að bregð­ast við þungum og miklum efna­hags­legum áföllum og vernda inn­lendan markað með hækkun tolla þá lengdi það krepp­una og dýpkaði hana – og alltaf á kostnað almenn­ings og ekki síst þeirra sem minna mega sín og eru með lægri tekjur.

Hún sagði tolla­málið bein­línis vera sett til höf­uðs neyt­endum og bændum. Ríkið ætti að styðja við land­búnað en það ætti ekki að vera gert í gegnum toll­múra.

„Evr­ópu­sam­bandið gerir þetta til að mynda mjög hrein­lega, fer ekki í það að byggja upp múra en fer í mjög víð­tækar aðgerðir gagn­vart bændum. Ég hefði viljað sjá að styrkirnir færu beint til bænda en að þessum milli­liðum væri sleppt. En rík­is­stjórnin fer einmitt í það að hækka toll­múra, auka höftin, ekki þannig að bændur fái þetta beint til sín og til að styrkja þá eða þá að koma í veg fyrir að mat­ar­k­arfan hækki til neyt­enda, heldur miklu frekar þannig að þetta fer beint í milli­lið­ina,“ sagði hún.

Þá benti Þor­gerður Katrín á að ASÍ væri á móti frum­varp­inu, sem og Sam­keppn­is­eft­ir­litið, Neyt­enda­sam­tökin og Við­skipta­ráð. „Alltaf beina þau sjónum sínum að þessu og vara við því að fara þessa leið. Þetta er gam­al­dags leið. Þetta er vond leið fyrir heim­ilin, þetta er vond leið fyrir atvinnu­lífið sem treystir á að við losum frekar höft og höfum almennar, alþjóð­legar við­skipta­reglur en svona gam­al­dags atriði.

Nú þegar 25.000 manns ganga atvinnu­lausir hér um landið munar þá um þegar mat­ar­k­arfan hækkar. Og það er alveg ljóst miðað við þær ábend­ingar sem við höfum fengið að hún mun hækka.“

Spurði hún ráð­herra enn fremur af hverju rík­is­stjórnin veldi „leið hafta og leið toll­verndar í stað þess að beina beinum styrkjum til bænda, verja þá og verja neyt­endur um leið“.

Ríkisstjórnin ekki að velja leið hafta eða þrengina

Kristján Þór sagði að rík­is­stjórnin væri ekki að velja leið hafta eða þreng­inga eða að berj­ast gegn neyt­endum eða verslun eða bændum.

„Það er langur vegur frá. Þetta er ein af þeim aðgerðum sem lögð er til, ásamt beinum styrkjum til bænda, sem hátt­virtur þing­maður tók meðal ann­ars þátt í að afgreiða hér í síð­ustu viku. Þetta er því sam­bland ýmissa aðgerða sem rík­is­stjórnin hefur gripið til í þágu íslensks land­bún­aðar. Flest ríki í okkar nágrenni eru að styðja sína fram­leiðslu og við skor­umst ekk­ert undan merkjum í þeim efnum sömu­leiðis. Ég get ekki full­yrt með neinum hætti í dag hvaða áhrif þetta kann að hafa á breyt­ingar á mat­ar­verði til neyt­enda. Við sjáum það hins vegar að verð á kjöti er að lækka á heims­mark­aði, hefur lækkað um 14 pró­sent ef ég man rétt á þessu ári. Með ein­hverjum hætti hlýtur það að skila sér til neyt­enda hér á landi því að inn­kaups­verðið á kjöti hlýtur að taka mið af því verði sem fæst á heims­mark­aði,“ sagði hann.

Þá vildi ráð­herr­ann minna Þor­gerðir Katrínu á úttekt sem stjórn­völd létu vinna á þeim breyt­ingum sem kynnu að eiga sér stað við þá breyt­ingu sem gerð var á úthlutun toll­kvót­anna og tók gildi á þessu ári.

„Við sömdum við ASÍ um að fylgj­ast með verð­þróun á mark­aði og sú skýrsla hefur verið kynnt og yfir­farin. Sömu­leiðis vil ég minna hátt­virtan þing­mann á þá umræðu sem átti sér stað þegar við vorum að breyta aðferð við úthlutun toll­kvóta. Þá var kannski dálítið annað hljóð í strokknum hjá sumum þeirra sem eru að gagn­rýna þær aðgerðir sem við erum að grípa til núna, for­dæma­lausar eins og við tönnlumst oft á. Málið er til með­ferðar hjá nefnd­inni og ég vænti þess að við munum eiga góða og upp­byggj­andi umræðu þegar það kemur þaðan,“ sagði hann.

„Vond leið og hún skekkir samkeppnisstöðu“

Þor­gerður Katrín steig aftur í pontu og sagði að hún vissi ekki hvern verið væri að blekkja. „Af hverju er ekki hægt að svara þessu alveg skýrt og skil­merki­lega? Við sjáum algjör­lega og vitum af reynsl­unni að versta leiðin til að bæta hag bænda og neyt­enda er einmitt að fara þessa gömlu úreltu leið rík­is­stjórn­ar­innar. Ekkert land í Evrópu fer núna nákvæm­lega þessa leið, leið sem getur hugs­an­lega dýpkað krepp­una og aukið erf­ið­leika fólks og fyr­ir­tækja í land­inu.

Rík­is­stjórnin velur þessa leið í stað­inn fyrir að gera eins og aðrar þjóðir og setja fjár­magn beint til bænda. Þessi leið, að hækka toll­múra, er vond leið. Hún skekkir sam­keppn­is­stöðu, hún bætir ekki hag bænda og hún bjagar alla hvata sem við getum sett inn í land­bún­að­inn.“

Hvatti hún rík­is­stjórn­ina til að draga þetta mál til baka. „Viðreisn er reiðu­búin til að setja aukið fjár­magn beint í styrki til bænda en ekki að fara þessa leið. Þetta er vond leið og hún skekkir sam­keppn­is­stöðu og ég skil ekki af hverju hæst­virtur ráð­herra getur ekki ein­fald­lega komið hingað upp og sagt: Já, ég ætla að gera það. Ég ætla að standa með almenn­ingi. Ég ætla að standa með neyt­endum og ég ætla að standa með bændum. En rík­is­stjórnin ætlar að standa með milli­lið­unum,“ sagði hún.

Meiri „dómadagssýnin"

Kristján Þór svar­aði í annað sinn og sagði að það væri meiri dóma­dags­sýnin sem Þor­gerður Katrín hefði á fram­tíð íslensks land­bún­aðar og íslensks sam­fé­lags.

„Við skulum hafa það í huga að þetta er nú ekki erf­ið­ara eða alvar­legra mál en það að þegar hátt­virtur þing­maður gegndi stöðu land­bún­að­ar­ráð­herra var engin atlaga gerð að því að breyta því kerfi sem við erum að setja aftur á núna. Þetta er ekki alvar­legra en það. Þessi rík­is­stjórn breytti úthlutun toll­kvóta frá því kerfi sem var við lýði þegar hátt­virtur þing­maður gegndi því starfi sem ég gegni í dag. Meiri er breyt­ingin ekki,“ sagði hann.

Þá sagð­ist hann ekki hafa heyrt allan þann tíma sem Þor­gerður Katrín gegndi því emb­ætti „nokk­urt ein­asta rama­kvein yfir því að sú aðferð við úthlutun toll­kvóta gengi af neyt­endum meira og minna hálf­dauðum. Það fór ekki fyrir þeirri umræðu þá,“ sagði ráð­herr­ann en um leið mátti heyra Þor­gerðir Katrínu kalla úr þing­sal: „Hvar er frelsið? Hvar er frelsið?“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sló í bjöll­una og sagði: „Ætli það sé ekki rétt að þessum orða­skiptum sé lokið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár