Einungis verði leyfilegt að sprengja flugelda 22 klukkustundir á ári

Þrengja á tíma­bil bæði flug­elda­sölu og -spreng­inga, sam­kvæmt drögum að nýrri skot­elda­reglu­gerð frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Árviss umræða hefur verið um flugeldamengun. Nú stendur til að stytta bæði sölu- og skottímabil flugelda.
Árviss umræða hefur verið um flug­elda­mengun. Nú stendur til að stytta bæði sölu- og skot­tíma­bil flug­elda. Mynd: Pexels.com

Einungis verður heim­ilt að selja flug­elda dag­ana 30. og 31. des­em­ber og 6. jan­úar, sam­kvæmt drögum að reglu­gerð­ar­breyt­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem lögð hafa verið fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Eins og regl­urnar eru í dag má bæði selja og sprengja flug­elda frá 28. des­em­ber til 6. jan­úar, en þó má ekki sprengja þá á milli kl. 22 á kvöldin og 10 á morgn­ana.

Samkvæmt drögum ráðu­neyt­is­ins að nýjum reglum verður ein­ungis heim­ilt að skjóta upp flug­eldum frá kl. 16 á gamlár­dag og til kl. 2 á nýársnótt og á nýárs­dag og þrett­ánd­anum frá kl. 16-22. Alls yrði leyfi­legt skot-tíma­bil því 22 klukku­stunda langt.[links]

Leyfi til að fresta og sprengja seinna vegna aðstæðna

Sveit­ar­fé­lög myndu þó sam­kvæmt reglu­gerð­ar­drög­unum hafa leyfi til þess að hliðra til gamlárs­kvölds-spreng­ingum ef aðstæður um ára­mót væru slæmar og heim­ila almenna skot­elda­notkun á ein­hverjum öðrum degi í upp­hafi jan­ú­ar­mán­aðar í stað­inn.

Þetta mætti bæði gera ef vindur væri of lít­ill (undir 2 m/s) eða of mik­ill (yfir 10 m/s), eða ef meng­un­ar­spá sýndi fram á að flug­elda­mengun yrði svo mikil á gamlárs­kvöld að það gæti reynst hættu­legt heilsu manna.

Sveit­ar­fé­lög myndu sam­kvæmt þessum drögum einnig hafa heim­ild til þess að færa þrett­ánda­fögnuð fram á sunnu­dag í fyrstu viku jan­ú­ar­mán­aðar og heim­ila notkun flug­elda þann dag, í stað þrett­ánda dags jóla.

[adspot]

Árviss umræða hefur verið um flug­elda­mengun á ára­mótum und­an­farin ár og benti Umhverf­is­stofnun á það fyrir síð­ustu ára­mót að flug­elda­mengun væri raun­veru­legt vanda­mál hér á landi og hvatti lands­menn til hóf­semi í spreng­ingum.

Starfs­hópur dóms­mála­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um hvernig draga mætti úr nei­kvæðum áhrifum á lýð­heilsu og loft­gæði vegna flug­elda­mengun skil­aði af sér til­lögum í upp­hafi þessa árs.

Helsta nið­ur­staða starfs­hóps­ins var að nauð­syn­legt væri að tak­marka sem mest þá mengun sem veldur óæski­legum heilsu­fars­á­hrifum hjá fólki. Einnig þyrfti að hafa í huga óæski­leg áhrif flug­elda á atferli og líðan margra dýra. Starfs­hóp­ur­inn benti einnig á að á huga þyrfti að loft­mengun hér á landi í víðu sam­hengi og að draga þyrfti úr allri mengun þar sem það væri mögu­legt, til bættra lífs­gæða fyrir allan almenn­ing.

Hægt er að segja skoðun sína á að reglu­gerð­ar­drög­unum í sam­ráðs­gátt stjórn­valda til 28. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugeldar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár