Um 45 prósent landsmanna vill áfram óhefta sölu á flugeldum

Yfir helm­ingur þjóð­ar­innar vill ein­hvers­konar tak­mörkun á sölu á flug­eldum. Kjós­endur Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins eru mest fylgj­andi því að sala flug­elda verði áfram óheft.

Rúmlega 45 pró­sent lands­manna vill óbreytt fyr­ir­komu­lag á sölu flug­elda. Alls vilja því tæp­lega 55 pró­sent þjóð­ar­innar ein­hvers­konar tak­mark­anir á sölu flug­elda.

Þetta kemur fram í könnun sem Maskína gerði dag­anna 14-28. des­em­ber. Alls voru svar­endur 817 tals­ins sem dregin var með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Gögnin voru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu.

Af þeim sem vilja tak­mark­anir á sölu flug­elda vildu um 28 pró­sent ein­ungis heim­ila sölu flug­elda til þeirra sem stæðu fyrir flug­elda­sýn­ingum. Tæplega fimmt­ungur þjóð­ar­innar vildi heim­ila sölu til ein­stak­linga en tak­marka það magn sem þeir mættu kaupa og 6,6 pró­sent vildi banna flug­elda alfarið.

Sífellt fær­ist í auk­ana að farið sér fram á að óheft flug­elda­sala sé bönnuð. Flug­elda­ver­tíð­inni um ára­mót fylgir enda mikil mengun. Samkvæmt Vís­inda­vef Háskóla Íslands er svifryks­mengun í Reykja­vík um ára­mótin um 500 mikrógrömm á rúmmetra þegar verið er að skjóta upp flug­eldum. Við brennur sem haldnar eru víða um land er meng­unin enn hærri, eða alla jafna yfir 600 míkrógrömm. Allt yfir 50 míkrógrömm á rúmmetra er yfir heilsu­vernd­ar­mörkum.

Margir sem glíma við lungna­sjúk­dóma þurfa þar af leið­andi að leita á bráða­mót­töku vegna ein­kenna svifryks­meng­unar um ára­mót. Á vef heils­gæsl­unnar segir að meng­unin um ára­mót sé það mikil að frískt fólk getur fundið fyrir áhrifum á önd­un­ar­færin. „Hér er því um að ræða mikla umhverf­isvá sem taka ber á. Þetta má líta á sem heilsu­vernd og því þurfum við að taka á þessu máli án tafar.“

Björg­un­ar­sveitir lands­ins, sem hafa notað flug­elda­sölu til að fjár­magna starf­semi sína um ára­tuga­skeið, hafa brugð­ist við auk­inni gagn­rýni með því að bjóða upp þeim sem vilja styrkja starf­semi þeirra án þess að kaupa flug­elda upp á að kaupa tré sem verða gróð­ur­sett í Ára­móta­skógi í stað­inn.

Mikill munur eftir stjórnmálaskoðunum

Mikill munur var á afstöðu svar­enda eftir kyni, búsetu og menntun. Konur voru mun lík­legri til að vilja tak­mörkun á sölu flug­elda en karlar, svar­endur á lands­byggð­inni voru mun lík­legri til að vilja óbreytt fyr­ir­komu­lag á söl­unni en íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þeir sem eru með háskóla­menntun eru mun lík­legri til að vilja tak­mark­anir á sölu flug­elda en þeir sem hafa mest lokið grunn­skóla­prófi.

Þá er einnig mik­ill munur á afstöðu til flug­elda eftir stjórn­mála­skoð­unum. Kjós­endur Við­reisnar (31,6 pró­sent) Vinstri grænna (32,5 pró­sent) og Sam­fylk­ingar (34,1 pró­sent) eru minnst hrifnir af óbreyttu fyr­ir­komu­lagi á sölu flug­elda á meðan að kjós­endur Mið­flokks­ins (64,4 pró­sent), Flokks fólks­ins (64 pró­sent) og Sjálf­stæð­is­flokks­ins (57,7 pró­sent) eru mest fylgj­andi því að allir geti áfram keypt eins mikið af flug­eldum og þeir vilja. Alls eru 56,2 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins á þeirri skoðun og 42,2 pró­sent kjós­enda Pírata. Píratar eru þó lík­leg­astir allra til að vilja alfarið banna sölu flug­elda, en 18,5 pró­sent kjós­enda þeirra eru á þeirri skoðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugeldar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár