Umhverfisstofnun segir flugeldamengun vera raunverulegt vandamál

Umhverf­is­stofnun segir að mik­il­vægt sé að minnka veru­lega magn flug­elda­notk­unar um ára­mótin vegna meng­unar. Flug­eldar eru hins vegar stærsta fjár­öfl­un­ar­verk­efni björg­un­ar­sveit­anna og því skiptar skoð­anir um hvort tak­marka eigi flug­elda­sölu.

Umhverf­is­stofnun hefur hvatt alla lands­menn til hóf­semi í notkun flug­elda og und­ir­strikar stofn­unin að mengun frá flug­eldum sé raun­veru­legt vanda­mál hér á landi. Stofn­unin bendir á að loft­mengun hafi nei­kvæð áhrif á þá sem fyrir henni verða, sér­stak­lega við­kvæma hópa eins og börn, aldr­aða og fólk sem er veikt fyrir. Svifryk valdi ekki ein­ungis óþæg­indum heldur skerðir lífs­gæði margra.

„Flug­eldar eru aldrei umhverf­is­vænir eða skað­lausir og því er mik­il­vægt að minnka veru­lega magn flug­elda sem skotið er upp um ára­mót þar sem þeim fylgir ávalt mikið svifryk,“ segir í frétta­til­kynn­ingu Umhverf­is­stofn­unar.

Eitt kvöld jafngildir allt að mánuði í mengun

Umhverf­is­stofnun mældi efna­inni­hald svifryks um ára­mótin í fyrra og árið þar á undan og sam­kvæmt nið­ur­stöðum stofn­un­ar­innar varð veru­lega aukn­ing á hlut­falli ýmissa efna í svifryk­inu um ára­mótin en þau efni sem hækka lang­mest eru efni sem má kalla ein­kenn­is­efni fyrir megnun frá flug­eldum.

Stofn­unin segir því að ljóst sé að þessi mikla aukn­ing í meng­unin komi frá flug­eldum en ekki frá öðrum upp­sprettum eins og til dæmis ára­móta­brennum. Svifryk með slíka efna­sam­setn­ingu telst vara­samt sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun.

Í nið­ur­stöðum mæl­ing­anna kemur fram meng­un­ar­á­lagið af ára­mót­unum í fyrra jafn­gildir um 5 til 15 daga hefð­bund­ins álags í úthverfi ef ein­göngu er horft til heild­ar­magns svifryks.

Fyrir ein­stök efni sem mæld­ust í svifryk­inu jafn­gildir meng­un­ar­á­lagið aftur á móti tals­vert lengra tíma­bili. Fyrir blý og arsen jafn­gildir meng­un­ar­á­lagið um ára­mót gróf­lega þriggja vikna hefð­bundnu meng­un­ar­á­lagi og styrkur kadmíum og brenni­steins um ára­mót jafn­gildir gróf­lega eins mán­aðar hefð­bundnu meng­un­ar­á­lagi

Yfir helmingur þjóðarinnar vildi einhverskonar takmörkun á sölu flugelda í fyrra

[links]Mikil umræða hefur skap­ast um flug­elda­mál á síð­ustu árum vegna nei­kvæðra áhrifa þeirra á umhverfi og heilsu­far og fær­ist því sífellt í auk­ana að farið sé fram á að óheft flug­elda­sala verði bönnuð.

Mengunin sem stafar af flug­völdum hefur til að mynda mikil áhrif á lungna­sjúk­linga. Mengunin getur verið þeim mjög skað­leg og leitt þá í andnauð. Á vef heilsu­gæsl­unnar segir að meng­unin um ára­mót sé það mik­il að jafn­vel frískt fólk getur fundið fyrir áhrifum á önd­un­ar­fær­in. „Hér er því um að ræða mikla umhverf­isvá sem taka ber á. Þetta má líta á sem heilsu­vernd og því þurfum við að taka á þessu máli án taf­ar,“ segir á vef heilsu­gæsl­unnar.

Í nið­ur­stöðum könn­unar Maskínu um flug­elda­sölu frá því í des­em­ber í fyrra kim fram að tæp­lega 55 pró­sent þjóð­ar­innar vildu ein­hvers­konar tak­mark­anir á sölu flug­elda. Rúm­lega 45 pró­sent lands­manna vildi hins vegar óbreytt fyr­ir­komu­lag á sölu flug­elda.

Helsta tekjulind björgunarsveitanna

Flug­elda­sala er hins vegar mik­il­væg­asta tekju­lind Björg­un­ar­sveita lands­ins og segja sveit­irnar að án hennar væri ekki hægt að halda úti því öfl­uga örygg­is­neti sem björg­un­ar­sveit­irnar séu fyrir Íslend­inga.

Í ára­mó­ta­kveðju sinni í fyrra sagði Smári Sig­urðs­son, for­maður Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar að björg­un­ar­sveit­irnar séu ekki sér­stakir varð­hundar flug­elda en að þær munu eftir megni verja ávinn­ing­inn sem fer í verk­efnin sem sveit­irnar leysa af hendi.

„Við höfum ekki fundið aðra leið til fjár­mögn­unar. Það þarf að skoða báða enda tommu­stokks­ins þegar rætt er um afleið­ingar flug­elda, ræða kost­ina og gall­ana, og hvar hags­mun­irnir eru meiri eða minni. Fjár­mögnun við­bragðs björg­un­ar­sveita er ekki einka­mál sjálf­boða­lið­anna að leysa,“ skrif­aði Smári.

Björg­un­ar­sveit­irnar hafa þó brugð­ist við auk­inni gagn­rýni með því að bjóða upp þeim sem vilja styrkja starf­semi þeirra án þess að kaupa flug­elda upp á að kaupa tré sem verða gróð­ur­sett í Ára­móta­skógi í stað­inn.

Starfshópur um flugelda ekki skilað af sér tillögum

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skip­aði starfs­hóp í lok des­em­ber í fyrra sem taka á til skoð­unar og gera til­lögur um hvort og þá með hvaða hætti eigi að tak­marka notkun flug­elda og hvernig hægt sé að tryggja að það hafi sem minnst nei­kvæð áhrif á fjár­mögnun þeirra verk­efna sem björg­un­ar­sveitir inna af hendi í þágu almanna­heillar.

Hópurinn hefur þó ekki enn skilað af sér til­lögum og því verða engar breyt­ing­ar gerðar á reglu­gerðum varð­andi flug­elda­fram­boð og flug­elda­sölu fyr­ir næstu ára­mót, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um sem Morg­un­blaðið fékk frá um­hverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu og greindi frá í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Innkaup á flug­eldum eru gerð með löngum fyr­ir­vara og því þurfi að taka ákvarð­anir um breyt­ingar á flug­elda­sölu áður en komi að slíkum inn­flutn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár