Framsækið skref sem vekur heimsathygli eða forræðishyggja aftan úr fornöld?

Alls bár­ust 253 umsagnir um drög að frum­varpi til nýrra fæð­ing­ar­or­lofslaga. Land­lækn­is­emb­ættið telur vinnu­mark­aðs­á­herslur of fyr­ir­ferða­miklar, en fræða­fólk við HÍ telur að sam­þykkt frum­varps­ins væri fram­fara­skref sem myndi vekja alþjóða­at­hygli.

Mjög skiptar skoðanir eru á nýju frumvarpi um fæðingar- og foreldraorlof, ef marka má umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda.
Mjög skiptar skoð­anir eru á nýju frum­varpi um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof, ef marka má umsagnir í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Mynd: EPA

Fleiri en 250 umsagnir bár­ust um drög að frum­varpi til laga um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof, sem voru til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda frá 23. sept­em­ber og þar til 7. októ­ber. Á loka­metr­unum hrönn­uð­ust inn umsagnir frá fjöl­mörgum stofn­unum og sam­tökum í sam­fé­lag­inu.

Lang­flestar umsagnir bár­ust voru þó frá ein­stak­lingum og mik­ill meiri­hluti þeirra inni­hélt gagn­rýni á efni frum­varps­drag­anna. Aðallega beind­ist hún að þeirri ætlan stjórn­valda að skipta fæð­ing­ar­or­lof­inu jafnt á milli for­eldra, þannig að hvort for­eldri taki sex mán­uði og ein­ungis einn mán­uður verði fram­selj­an­legur þeirra á milli.

Orðið „for­ræð­is­hyggja“ kom oft fyrir í umsögn­unum, eða alls 21 sinni í þeim 253 umsögnum sem bár­ust. Orða­sam­bandið „réttur barns­ins“ kom sömu­leiðis 26 sinnum fram og orðið „tekju­skerð­ing“ 35 sinnum, sam­kvæmt laus­legri athugun blaða­manns.

Mark­miðið sem á að nást fram með því að jafna fæð­ing­ar­or­lofstöku for­eldra er einna helst að jafna stöðu kynj­anna inni á heim­il­inu og þar með á vinnu­mark­aði, en rík til­hneig­ing hefur verið til þess hér á landi að mæður nýti þann tíma fæð­ing­ar­or­lofs­ins sem er sam­eig­in­legur milli for­eldra.

[adspot]

Nefnt er í grein­ar­gerð með frum­varp­inu að ófram­selj­an­legur fæð­ing­ar­or­lofs­réttur feðra gæti styrkt stöðu þeirra til töku fæð­ing­ar­or­lofs gagn­vart vinnu­veit­end­um og að breyt­ing­unni sé ætlað að styðja við að frum­varpið nái mark­miðum sínum, sem eru meðal ann­ars þau að hvetja báða for­eldra til að gegna skyldum sínum gagn­vart börnum sínum og fjöl­skyldu­líf­i.[links]

Landlæknisembættið telur 4-4-4 skiptingu vænlegri

Land­lækn­is­emb­ættið skil­aði inn umsögn við frum­varps­drögin og sagði þar að fæð­ing­ar­or­lof ætti að skil­greina sem rétt barns umönn­unar á fyrstu mán­uðum lífs­ins, fremur en ein­ungis sem rétt full­orð­inna á vinnu­mark­aði.

Embættið segir það einnig vekja athygli að svo virð­ist sem eng­inn full­trú­anna í starfs­hópnum sem lagði fram til­lögur að frum­varp­inu hafi sér­þekk­ingu á geð­heilsu og þroska ungra barna, heldur virð­ist full­trúar „einna helst tengj­ast atvinnu­málum“ og segir emb­ættið nauð­syn­legt að slíkur full­trúi verði með í ráðum við frek­ari end­ur­skoðun lag­anna.[links]

Varðandi skipt­ingu orlofs­mán­að­anna segir emb­ættið að mik­il­vægt sé að lögin „end­ur­spegli skiln­ing á ólíkum aðstæðum fjöl­skyldna og bjóði upp á meiri sveigj­an­leika varð­andi til­högun en gert er ráð fyrir í núver­andi frum­varpi“ og segir að með því að hafa ein­ungis einn mánuð fram­selj­an­legan sé „harla naumt skammtað“ ef mark­miðið sé að koma til móts við aðstæður fjöl­skyldna.

Embættið vill áfram sjá sveigj­an­leika í ráð­stöfun orlofs­ins halda sér þrátt fyrir leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs­ins og leggur til 4-4-4 skipt­ingu, þannig að fjórum mán­uðum geti for­eldrar ráð­stafað eins og hentar best þörfum barns­ins og aðstæðum fjöl­skyld­unnar.

Við­skipta­ráð Íslands telur einnig að meiri sveigj­an­leiki væri til bóta, alla­vega ef ekki stendur til að hækka hámarks­greiðslur til for­eldra og segir sterk rök með 4-4-4 skipt­ingu í því ljósi. Í umsögn ráðs­ins segir að fjár­hags­legur fórn­ar­kostn­aður feðra af fæð­ing­ar­or­lofi sé almennt séð umtals­vert meiri en mæðra og að þann fjár­hags­lega fórn­ar­kostnað þurfi að minnka.

„Að tak­marka nýt­ingu orlofs­ins á þennan hátt, án þess að hækka tekju­há­markið gæti mögu­lega gengið gegn mark­miðum frum­varps­ins og aukið mun­inn á orlofstöku og launa­mun kynj­anna,“ segir í umsögn­inni.

SA styðja frumvarpið en ljósmæður telja brjóstagjöf settar skorður

Samtök atvinnu­lífs­ins segj­ast í umsögn sinni styðja þær breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varp­inu og segja að jöfn skipt­ing orlofs sé „talin best til þess fallin að ná mark­miði lag­anna sem er að tryggja barni sam­vistir við báða for­eldra og gera for­eldrum kleift að sam­ræma fjöl­skyldu- og atvinnu­líf.“

„Gögn frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði sýna að feður taka í lang­flestum til­fellum aðeins sinn sjálf­stæða rétt til fæð­ing­ar­or­lofs og mæður taki að stærstum hluta sam­eig­in­lega rétt­inn. Slík ójöfn skipt­ing mun ekki leiða okkur áfram í átt­ina að auknu jafn­rétti. Rann­sóknir sýna einnig að feður sem taka við umönnun barns síns í fæð­ing­ar­or­lofi taka almennt jafn­ari ábyrgð á þeim verk­efnum sem falla innan heim­ilis. Það gerir báðum for­eldrum kleift að sam­ræma betur fjöl­skyldu- og atvinnu­líf að loknu fæð­ing­ar­or­lofi,“ segir í umsögn SA.

Ljós­mæðra­fé­lag Íslands segir í umsögn sinni að ráð­legt væri að hafa mán­uð­ina 6 sem eyrna­merktir eru hvoru for­eldri að nokkru eða fullu leyti fram­selj­an­lega á milli for­eldra, vegna mik­il­vægis brjósta­gjafar.

Í umsögn félags­ins segir að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) og Embætti land­læknis mæli með brjósta­gjöf fyrsta árið og til allt að tveggja ára ald­urs. Fæð­ing­ar­or­lofið ætti því að taka mið af þessum leið­bein­ingum.

Auk þess leggur félagið einnig til sér­stakt með­göngu­or­lof mæðra frá 36 viku með­göngu, svo ekki þurfi að koma til veik­inda­leyfis undir lok með­göngu.

Barnaheill telja breytingarnar ekki allar börnum til heilla

Samtökin Barna­heill segja að „líta ætti á fæð­ing­ar­or­lof sem sjálf­stæðan rétt barna til að vera í nálægð við for­eldra sína í jafn­langan tíma óháð áunnum rétti, hjú­skap­ar­stöðu og öðrum aðstæðum for­eld­rana,“ en að bæði í núver­andi lögum og í frum­varp­inu sé fæð­ingar- og for­eldra­or­lof háð áunnum rétti for­eldra.

„Þar sem staða for­eldra á vinnu­mark­aði er mis­jöfn er hætt við því að þeir eigi mis­mik­inn rétt til orlofstöku sem hefur mögu­lega áhrif á töku á fæð­ingar- og for­eldra­or­lofi. Með því getur skap­ast mis­munun á milli barna þar sem þau njóta ekki öll jafn­langrar sam­vistar við for­eldra sína og önnur börn,“ segja Barna­heill og vísa í Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem á að tryggja rétt­indi allra barna án mis­mun­unar að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa for­gang þegar ráð­staf­anir eru gerðar varð­andi börn.

Einnig segja sam­tökin að aðstæður barna og fjöl­skyldna þeirra séu mis­mun­andi og því telja þau brýnt að skapa meiri sveigj­an­leika á meðal for­eldra hvernig þeir skipta fæð­ing­ar­or­lofi eða fæð­ing­ar­styrk á milli sín. „Við­leitnin að jafna stöðu kynja til að koma á móts við tengsla­myndun barna við báða for­eldra sína og jafna mögu­leika allra kynja á vinnu­mark­aði er góðra gjalda verð en það er mat Barna­heilla að ekki er hugað að hags­munum barna nægi­lega mikið með þess­ari skipt­ingu,“ segir í umsögn­inni.

Sveitarfélögin segja frumvarpið fela í sér aukinn sveigjanleika

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að í umræðu um frum­varpið hafi mikið verið rætt um frelsi fjöl­skyldna til að ákveða hvað henti þeim best varð­andi skipt­ingu orlofs milli for­eldra. Sam­bandið lítur þó þannig að sveigj­an­leik­inn sé í reynd að aukast, enda sé hámarks­tími sem for­eldri geti tekið í orlof í dag 6 mán­uðir, en verði 7 mán­uðir sam­kvæmt frum­varp­inu.

„Í frum­varp­inu er því boðið upp á meiri sveigj­an­leika en áður þekk­ist fyrir annað for­eldri til að vera lengur heima en á sama tíma tryggt að rétt­indi barns til sam­vista við báða for­eldra sé tryggt sem og réttur beggja for­eldra til sam­vista við barn,“ segir meðal ann­ars í umsögn Sam­bands­ins.

Fræðimenn við HÍ telja að breytingarnar muni vekja heimsathygli

Nokkrir fræði­menn við Háskóla Íslands sem hafa verið í far­ar­broddi í rann­sóknum á fæð­ing­ar­or­lof­inu og mál­efnum barna­fjöl­skyldna leggja einnig orð í belg. Þau telja að sam­þykkt frum­varps­ins yrði „mikið heilla­skref fyrir börn og for­eldra á Íslandi, jafn­rétti kynja og sam­keppn­is­stöðu íslenskra fyr­ir­tækja“ og styðja það marg­vís­legum rökum.

Þau segja meðal ann­ars í umsögn sinni að feður á Íslandi hafi að með­al­tali notað einmitt þann daga­fjölda sem þeir eiga sjálf­stæðan rétt til, sem sýni hvernig sjálf­stæður réttur til fæð­ing­ar­or­lofs verði að við­miði um hvað skuli telj­ast hæfi­legt.

„Sjálf­stæður réttur beggja for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs er þar af leið­andi for­senda þess að báðir for­eldrar taki orlof. Þeim mun jafn­ari sem rétt­ur­inn er þeim mun jafn­ari verður notkun orlofs­ins. Það frum­varp sem hér liggur fyrir mun lík­lega þýða að mæður muni að jafn­aði taka í heild um 7 mán­aða orlof (auk sum­ar­leyfis) og vera heima með barni alfarið eða að hluta fyrstu 7-8 mán­uð­ina eftir fæð­ingu og feður taka svo við og taka sína 5 mán­uði, að frá­töldum þeim vikum sem for­eldrar ákveða að verja saman strax eftir fæð­ingu. Það er einnig mik­il­vægt að hafa í huga að frelsi for­eldra til að haga orlofstöku eins og þeim best hentar er óvíða meira en á Íslandi, t.d. er mjög óvenju­legt að for­eldrum sé frjálst að vera saman í fæð­ing­ar­or­lofi eins lengi og þeir kjósa eins og hér er,“ segir í umsögn fræða­fólks­ins, sem telur að skrefin sem tekin eru með frum­varp­inu muni „vekja alþjóða­at­hygli og verða öðrum þjóðum hvatn­ing til dáða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár