Sex mánaða orlof á hvort foreldri verði tekið á fyrstu 18 mánuðunum í lífi barns

Drög að nýjum heild­ar­lögum um fæð­ing­ar­or­lof hafa verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þegar fæð­ing­ar­or­lofið verður lengt í 12 mán­uði um kom­andi ára­mót er ráð­gert að hvort for­eldri taki 6 mán­aða orlof. Einungis einn mán­uður verður fram­selj­an­legur.

Það tíma­bil sem for­eldrar hafa til að nýta rétt sinn til töku fæð­ing­ar­or­lofs verður stytt úr tveimur árum niður í eitt og hálft ár, sam­kvæmt drögum að nýju frum­varpi til laga um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof sem lagt hefur verið fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Þetta er meðal ann­ars lagt til með það að mark­miði að for­eldrar séu í orlofi þegar barnið þarf á mik­illi umönnun þeirra að halda, auk þess sem lagt er upp með að for­eldrar nýti rétt sinn til fæð­ing­ar­or­lofs frá því að barnið fæð­ist og þar til því býðst dag­vistun.

Orlofs­tíma­bilið sem ráð­gert er að stytta var 18 mán­uðir fram til 2009, en þá var tíma­bilið lengt í 36 mán­uði. Árið 2012 var tíma­bilið stytt aftur í 24 mán­uði og með nýju frum­varpi er lagt til að stytta tíma­bilið á ný í 18 mán­uði.

Skipting orlofsréttar verði sem jöfnust

Einnig er lagt til að skipt­ing fæð­ing­ar­or­lofs­réttar verði sem jöfn­ust á milli for­eldra, þannig að for­eldrar geti nýtt sex mán­uði hvort um sig þegar fæð­ing­ar­or­lofið verður lengt í 12 mán­uði í upp­hafi næsta árs. Þó verður heim­ilt fyrir for­eldra að færa einn mánuð sín á milli.

Í dag er fæð­ing­ar­or­lofið 10 mán­uðir, 4 mán­uðir á hvort for­eldri, auk tveggja mán­aða sem for­eldrar eiga sam­eig­in­lega. Samkvæmt frum­varps­drög­unum hefur reynslan hér­lendis sýnt að stærstur hluti feðra nýtir ein­ungis sinn sjálf­stæða rétt en mæður bæði sinn sjálf­stæða rétt og sam­eig­in­legu mán­uð­ina sem hafi verið í gild­andi lög­gjöf. Þannig hafi reynslan hér­lendis sýnt „ríka til­hneig­ingu til þess að mæður nýti þann tíma fæð­ing­ar­or­lofs sem er sam­eig­in­legur milli for­eldra.“

[adspot]

Þessu á að reyna að breyta með frum­varp­inu. Í umfjöllun um þetta atriði segir að mik­il­vægt sé að sem minnstur hluti fæð­ing­ar­or­lofs­réttar verði með þeim hætti að for­eldrar geti skipt honum með sér. Ófram­selj­an­legur fæð­ing­ar­or­lofs­réttur feðra geti þannig styrkt stöðu þeirra til töku fæð­ing­ar­or­lofs gagn­vart vinnu­veit­endum.

Þessari breyt­ingu er með öðrum orðum ætlað að styðja við það að frum­varpið nái mark­miðum sínum sem eru meðal ann­ars þau að hvetja báða for­eldra til að gegna skyldum sínum gagn­vart börnum sínum og fjöl­skyldu­lífi.

„Á sama tíma er breyt­ing­unni ætlað að stuðla að auk­inni atvinnu­þátt­töku og jafna tæki­færi for­eldra á vinnu­mark­aði og gera báðum for­eldrum auð­veld­ara að sam­ræma þær skyldur sem þeim eru lagðar á herðar í starfi og einka­lífi,“ sam­kvæmt því sem segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins um þetta atriði.

Foreldrar fái sjálfstæðan rétt til orlofstöku eftir fósturlát

Í frum­varps­drög­unum er lagt til að hvort for­eldri fái sjálf­stæðan rétt til tveggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lofs vegna fóst­ur­láts eftir 18 vikna með­göngu, en í gild­andi lögum er ein­ungis kveðið á um sjálf­stæðan rétt for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs eða fæð­inga­styrks vegna and­vana­fæð­ingar eftir 22 vikna með­göngu, en tveggja mán­aða sam­eig­in­legan rétt for­eldra eftir fóst­ur­lát eftir 18 vikna með­göngu.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir um þetta atriði að reynslan hafi sýnt að „mæður hafa nær ein­göngu nýtt sam­eig­in­legan rétt for­elda til fæð­ing­ar­or­lofs við fóst­ur­lát og þá hefur þótt vera of mik­ill munur á rétt­indum for­eldra eftir því hvort um and­vana­fæð­ingu eða fóst­ur­lát hefur verið að ræða en með­göngu­lengd í þessum til­vikum getur verið nán­ast sú sama.“

Heildarendurskoðun samhliða lengingu fæðingarorlofsins

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra til­kynnti fyrir um ári síðan að fæð­ing­ar­or­lofið yrði lengt upp í eitt ár í áföngum og á sama tíma var vinna við heild­ar­end­ur­skoðun lagaum­gjarð­ar­innar í kringum fæð­ing­ar­or­lof sett af stað.[links]

Starfs­hópur á vegum félags­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem skip­aður var full­trúum frá Alþýðu­sam­bandi Íslands, Banda­lagi háskóla­manna, BSRB, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, félags­mála­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Samtökum atvinnu­lífs­ins og Vinnu­mála­stofnun hefur síðan unnið að end­ur­skoðun lag­anna og á vinnu þessa starfs­hóps byggja drögin sem kynnt voru í sam­ráðs­gátt­inni í gær.

Þar er hægt að gera athuga­semdir við frum­varpið þar til 7. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár