Leggur til viðbótarfæðingarorlof fyrir þá sem búa fjarri fæðingarþjónustu

Byggða­stofnun telur brýnt að koma til móts við for­eldra sem búa fjarri fæð­ing­ar­þjón­ustu með ein­hverjum hætti í nýjum fæð­ing­ar­or­lofslögum. Kven­rétt­inda­fé­lagið fagnar því að stefnt sé að jöfnu orlofi for­eldra. Alls hafa 130 umsagnir borist um málið.

Um 130 umsagnir hafa þegar borist við drög að frumvarpi til laga um fæðingarorlof.
Um 130 umsagnir hafa þegar borist við drög að frum­varpi til laga um fæð­ing­ar­or­lof. Mynd: Pexels

Byggða­stofnun telur að í nýjum frum­varps­drögum til laga um fæð­ing­ar­or­lof skorti upp á að tekið sé til­lit til fæð­andi kvenna og fjöl­skyldna þeirra sem búa fjarri fæð­ing­ar­þjón­ustu og þurfa að dvelj­ast utan heim­ilis og bíða eftir fæð­ingu, til dæmis þegar veður hamlar sam­göngum.

Ein leið til að bregð­ast við þessu, að mati stofn­un­ar­innar, væri að að bæta við sér­stöku við­bót­ar­fæð­ing­ar­or­lofi fyrir þá for­eldra á meðan á bið stendur, sem myndi í engu skerða almennt fæð­ing­ar­or­lof. Þetta kemur fram í umsögn stofn­un­ar­innar um frum­varps­drögin.

Byggða­stofnun segir að gera megi ráð fyrir að allt að 10 pró­sent mæðra á Íslandi búi í meira en klukku­stund­ar­fjar­lægð frá fæð­ing­ar­þjón­ustu, en að víða sé fjar­lægðin enn meiri, til dæmis á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, Norð­ur­landi vestra, Norð­aust­ur­landi og Suð­aust­ur­landi. Stofn­unin telur afar brýnt að tekið verði til­lit til for­eldra sem búa á þessum svæðum og seg­ist til­búin að koma að vinnu við skil­grein­ingu á því hvaða svæði ættu að falla undir slíkar reglur.

Byggða­stofnun er eina opin­bera stofn­unin sem hefur skilað inn frum­varpi um frum­varps­drögin, sem hafa verið til umsagnar í sam­ráðs­gátt­inni frá 23. sept­em­ber og verða þar áfram til 7. októ­ber.

Kvenréttindafélagið tekur jafnri skiptingu fagnandi

Hátt í 130 umsagnir um frum­varpið hafa borist til þessa. Þær eru lang­flestar frá ein­stak­lingum, for­eldrum eða verð­andi for­eldrum, sem flest eru að gagn­rýna áform um jafna skipt­ingu fæð­ing­ar­or­lofs­ins á milli for­eldra. Ljóst er að skiptar skoð­anir eru um ágæti þeirra breyt­inga sem stefnt er að.[links]

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands hefur sent inn um umsögn um frum­varps­drögin, þar sem þeim er fagnað, enda hefur Kven­rétt­inda­fé­lagið talað fyrir því að fæð­ing­ar­or­lof­inu verði alveg jafnt skipt á milli for­eldra. Félagið segir um að ræða „rétt­ar­bót sem mun stuðla að bættri stöðu kvenna og auknu kynja­jafn­rétti hér á landi.“

Félagið hefur fram­leitt mynd­skeið og birt á YouTube þar sem farið er yfir þær rök­semdir sem liggja að baki afstöðu félags­ins. „Ísland er eitt þeirra landa í heim­inum þar sem hvað mest jafn­rétti ríkir. Þrátt fyrir það bera konur enn þá meiri ábyrgð á heim­ili og börnum. Það leiðir til þess að konur fá lægri laun, síður stöðu­hækkun, vinna frekar hluta­störf og fá lægri eft­ir­laun. Allt þetta hefst með fæð­ing­ar­or­lof­inu. Deilum fæð­ing­ar­or­lof­inu jafnt!“ segir í lýs­ingu mynd­bands­ins.

Kven­rétt­inda­fé­lagið er þó ekki hlynnt þeirri breyt­ingu sem lögð er til í frum­varps­drög­unum og varðar stytt­ingu þessa tíma­bils sem for­eldrar hafa til þess að taka fæð­ing­ar­or­lof eftir fæð­ingu barns, en til stendur að stytta það úr 24 mán­uðum niður í 18.

„Í skýrslu BSRB um dag­vist­un­ar­úr­ræði frá árinu 2017 kemur í ljós að rúm­lega helm­ingur lands­manna býr í sveit­ar­fé­lögum þar sem inn­töku­aldur barna á leik­skóla er 24 mán­aða. Nauð­syn­legt er að for­eldrar hafi svig­rúm til að taka fæð­ing­ar­or­lof á þessum 24 mán­uðum á meðan öllum börnum er ekki tryggð dag­vistun,“ segir í umsögn Kven­rétt­inda­fé­lags­ins, sem telur áríð­andi að tryggja rétt íslenskra barna til dag­vist­unar með lögum, eins og hin Norð­ur­löndin hafi þegar gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár