Telur ný heildarlög um fæðingarorlof skerða frelsi fjölskyldna

Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu segir Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að nýtt frum­varp um fæð­ing­ar­or­lof feli í sér skerð­ingu á frelsi fjöl­skyldna. Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, segir frum­varpið auka jafn­rétti.

Vilhjálmur Árnason gagnrýndi nýtt frumvarp um fæðingarorlof í aðsendri grein í Morgunblaðinu í morgun.
Vil­hjálmur Árnason gagn­rýndi nýtt frum­varp um fæð­ing­ar­or­lof í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný heild­ar­lög um fæð­ing­ar­or­lof mun skerða frelsi fjöl­skyldna að mati Vil­hjálms Árna­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks. „Með þessum til­lögum er búið að skerða frelsi fjöl­skyld­unnar algjör­lega og draga úr mögu­leikum hverrar fjöl­skyldu til að bregð­ast við aðstæðum hverju sinni svo hægt sé að mæta þörfum og hag barns­ins,“ ritar Vil­hjálmur í aðsendri grein sem birt­ist í Morg­un­blaði dags­ins í dag og ber yfir­skrift­ina Stöndum vörð um fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið.

Vil­hjálmur segir í grein sinni að fjöl­skyldur barna séu best til þess fallnar að meta hvað sé barni fyrir bestu. „Það er því með ólík­indum að starfs­hópur og í fram­haldi félags- og barna­mála­ráð­herra hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það sé barni fyrir bestu að þrengja tíma­bil töku fæð­ing­ar­or­lofs niður í 18 mán­uði, skipta mán­uðum jafnt á milli for­eldra, sex og sex mán­uði, og hafa aðeins einn mánuð af tólf fram­selj­an­legan á milli for­eldra, ritar Vil­hjálmur.

Hann segir að dæmi frá hinum Norð­ur­lönd­unum sýni að þrengra fyr­ir­komu­lag bitni helst á tekju­lægri fjöl­skyldum. Til­lög­urnar munu að hans mati ekki auka líkur á að barn fái fyrstu 12 mán­uði með for­eldri því að hætt sé við að hærra hlut­fall rétt­ind­anna falli niður ónýtt vegna þess hve margir mán­uðir eru bundnir á hvort for­eldri fyrir sig.

Stefnt að jafnri skiptingu orlofsréttar

[links]Ný drög að heild­ar­lögum um fæð­ing­ar­or­lof var lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í vik­unni. Þar er lagt til að það tíma­bil sem for­eldrar hafa til að taka fæð­ing­ar­or­lof verði stytt úr tveimur árum í eitt og hálft ár.

Þá er einnig ráð­gert að lengja fæð­ing­ar­or­lofið um tvo mán­uði, úr tíu mán­uðum í tólf, og að skipt­ing orlofs­mán­aða verði sem jöfn­ust. Í dag fær hvort for­eldri fjóra mán­uði í orlof auk þess sem for­eldrar hafa tvo mán­uði til að skipta á milli sín. Í nýju lög­unum fær hvort for­eldri sex mán­aða orlof en þeim gefst kostur á að færa einn orlofs­mánuð sín á milli.

Akið valfrelsi sé afturför í jafnréttismálum

Meðal þeirra sem fjallað hafa um frum­varpið á opin­berum vett­vangi er Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB. Í færslu á Facebook síðu sinni fagnar Sonja Ýr nýju fram­varpi og telur það „löngu tíma­bært“ að fæð­ing­ar­or­lof verði skipt jafnar milli for­eldra. Hún segir að á Norð­ur­lönd­unum sýni reynslan að feður taki ein­göngu þann tíma sem eyrna­merktur er þeim og mæður rest.

„Þetta er meðal þeirra atriði sem hefur veru­leg áhrif á launa­mun kynj­anna og starfs­þró­un­ar­mögu­leika kvenna. Það verður ekki leyst ekki öðru­vísi en að stuðlað sé að jafn­ari ábyrgð mæðra og feðra á umönnun barna. Það mun líka hafa áhrif á þátt­töku feðra í upp­eldi barna til fram­tíðar, tengslum barna við feður sína, jafn­rétti á heim­ilum og vinnu­mark­aði og jafn­vel skiln­að­ar­tíðni ásamt vilja mæðra til að eign­ast fleiri börn,“ skrifar Sonja Ýr um áhrif breyt­ing­anna.

Þá segir Sonja til­lög­urnar byggja á ítar­legri yfir­ferð rann­sókna, sam­ráði við sér­fræð­inga og mati á áhrifum. Það sé því ekki hend­ing ein að lagt sé til þessi skipt­ing mán­aða. „Meiri sveigj­an­leiki eða val­frelsi myndi vera aft­ur­för í jafn­rétt­is­málum en líka varð­andi mögu­leika barna til að njóta umönn­unar föður í sama mæli og móður í fæð­ing­ar­or­lofi og til fram­tíðar. Hér hald­ast því í hendur hags­munir barna og for­eldra,“ segir Sonja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

félagsmálaráðherra

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár