Búið að ráða í stöðu framkvæmdastjóra eldvarnasviðs HMS á Sauðárkróki

Stefnt er að því að eld­varna­svið Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar taki til starfa á Sauð­ár­króki 1. októ­ber næst­kom­andi. Sjö nýir starfs­menn verða ráðnir auk fram­kvæmda­stjóra en eng­inn af núver­andi starfs­mönnum HMS á svið­inu mun flytja norður.

Eldvarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar tekur fljótlega til starfa á starfsstöð stofnunarinnar á Sauðárkróki.
Eld­varna­svið Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar tekur fljót­lega til starfa á starfs­stöð stofn­un­ar­innar á Sauð­ár­króki. Mynd: Wikimedia

Þorgeir Óskar Mar­geirs­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri eld­varna­sviðs Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) en stefnt er að því að eld­varna­svið taki til starfa á Sauð­ár­króki þann 1. októ­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í svari HMS við fyr­ir­spurn Kjarnans um fyr­ir­hug­aðan flutn­ing eld­varna­sviðs frá Reykja­vík til Sauð­ár­króks.

Í svar­inu segir að Þorgeir hafi fengið mik­inn áhuga á öllu því sem snúi að örygg­is­málum, eld­vörnum og slökkvi­starfi í starfi sínu hjá slökkvi­lið­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli á árunum 1999 til 2001. Frá þeim tíma hafi Þorgeir lagt sér­staka áherslu á þá þætti í námi sínu og störfum. „Í fram­halds­nám­inu sínu í verk­fræði lagði Þorgeir sér­staka áherslu á burð­ar­þol, steypu og verk­efna­stjórnun og fjall­aði loka­verk­efni hans um áhrif elds á stein­steypu í jarð­göngum,“ segir þar enn fremur.

Enginn af núverandi starfsmönnum mun flytja

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, til­kynnti um flutn­ing­inn í lok maí á þessu ári á kynn­ing­ar­fundi á starfs­stöð HMS á Sauð­ár­króki. Þar kynnti hann marg­þættar aðgerðir sem hann hugð­ist ráð­ast í til þess að efla umgjörð bruna­varna á Íslandi og bregð­ast þannig við ábend­ingum sem gerðar voru í nýrri skýrslu um mála­flokk­inn.

Enginn af þeim fjórum starfs­mönnum sem nú starfa við deild bruna­varna hjá HMS mun fylgja eld­varna­sviði norður á Sauð­ár­krók. Í áður­nefndu svari frá HMS segir tveir starfs­menn hafi þegið störf í öðrum deildum HMS en tveir hafi sagt upp störfum.

Sjö stöður á Sauðárkróki auglýstar

Vegna flutn­ings eld­varna­sviðs til Sauð­ár­króks voru sjö stöður innan sviðs­ins aug­lýstar, auk stöðu fram­kvæmda­stjóra. Umsókn­ar­frestur um störfin rann út 30. júlí síð­ast­lið­inn. „Verið er að vinna úr þeim umsóknum sem bár­ust um þessi störf og munu ráðn­ing­ar­við­töl hefj­ast á næstu dögum. Við teljum að í hópi umsækj­enda séu fjöl­margir aðilar með þá þekk­ingu og hæfni sem við leitum að og teljum nauð­syn­lega til að bruna­varna­sviðið geti sinnt sínu hlut­verki vel,“ segir í áður­nefndu svari HMS.

Þá segir í svar­inu að vand­lega hafi verið staðið að und­ir­bún­ingi nýs eld­varna­sviðs á Sauð­ár­króki. „Sér­stak­lega hefur verið hugað að þeim þætti sem snýr að mannauðs­málum í ferl­inu og und­ir­bún­ingi flutn­ings og hefur mannauðs­stjóri HMS tekið virkan þátt í und­ir­bún­ingi flutn­ings­ins og fram­kvæmd. Gott sam­komu­lag er við alla núver­andi starfs­menn bruna­varna­deildar í Reykja­vík um að þeir sinni sínum verk­efnum í bruna­málum þar til nýir aðilar hafa komið til starfa og tekið við kefl­inu og yfir­færsla þekk­ingar er þar með tryggð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

félagsmálaráðherra

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár