Jafnari skipting orlofs stórt skref til jafnréttis á vinnumarkaði

Ef ætl­unin er að loka launa­bili kynj­anna er nýtt frum­varp um breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lof­inu skref í rétta átt og í raun­inni alveg ótrú­lega stórt skref, að mati Herdísar Stein­gríms­dóttur hag­fræð­ings við CBS í Kaup­manna­höfn.

Til stendur að eyrnamerkja hvoru foreldri sex mánaða fæðingarorlof hér á landi. Ljóst er að ekki eru allir sammála um ágæti þess.
Til stendur að eyrna­merkja hvoru for­eldri sex mán­aða fæð­ing­ar­or­lof hér á landi. Ljóst er að ekki eru allir sam­mála um ágæti þess. Mynd: Pexels

Umsögnum um drög að breyt­ingum á lögum fæð­ing­ar­or­lof hefur rignt inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda frá því að þau birt­ust þar í síð­ustu viku. Yfir hund­rað manns hafa þegar látið skoðun sína á frum­varps­drög­unum í ljós og eru þau lang­flest á þeirri skoðun að þær breyt­ingar sem fel­ast í frum­varp­inu varð­andi jafna skipt­ingu fæð­ing­ar­or­lofs á milli for­eldra séu ekki af hinu góða.[links]

Stóru lín­urnar í fram­kominni gagn­rýni eru þær að með því að eyrna­merkja hvoru for­eldri sex mán­aða fæð­ing­ar­or­lof sé ekki verið að horfa til hags­muna barns­ins. Þá sé einnig verið að skerða frelsi for­eldra til þess að ákveða sjálf hvernig þeim hentar best að taka orlofið og ýmsir benda á að á meðan þak fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslna sé enn 600.000 krónur (og aldrei meira en 80 pró­sent af heild­ar­launum) muni það reyn­ast dýrt, jafn­vel ómögu­legt, fyrir margar fjöl­skyldur að tekju­hærra for­eldrið taki allt það orlof sem því er eyrna­merkt.

Frum­varpið verður vænt­an­lega lagt fram á Alþingi í vetur og hefur Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra sagt að hann telji það mikið fram­fara­skref. Ljóst er að ekki allir deila þeirri skoðun og að um útfærsl­una verður deilt í þingsölum.

Af umræð­unni und­an­farna daga má raunar sjá að hér er komið eitt af þeim sjald­gæfu málum þar sem þing­menn Pírata og Mið­flokks ger­ast skoð­ana­bræður, en þær Halldóra Mogensen Pírati og Anna Kolbrún Árna­dóttir úr Mið­flokknum hafa báðar sagt að í frum­varp­inu felist for­ræð­is­hyggja og að það sé ekki börnum né fjöl­skyldum fyrir bestu að sex mán­uðir verði eyrna­merktir hvoru for­eldri.

[adspot]

Mið­flokk­ur­inn hyggst leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varpið þess efnis að for­eldrar hafi fullt frelsi til að ráð­stafa 12 mán­aða fæð­ing­ar­or­lofi sín á milli eins og þeir helst vilja, en sam­kvæmt frum­varps­drög­unum er ein­ungis hægt að ráð­stafa einum mán­uði á milli for­eldra, óski þeir þess.

Líklegt til að hafa jákvæð áhrif á kynjajafnrétti

Herdís Stein­gríms­dóttir, dós­ent í hag­fræði við Copenhagen Business School, við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn, ræddi málið við Kjarnann. Hún hefur skoðað fæð­ing­ar­or­lofs­mál í rann­sóknum sínum og rann­sak­aði meðal ann­ars áhrif feðra­or­lofs­ins á Íslandi á skiln­að­ar­tíðni. Í grein hennar og Örnu Olafsson um málið, sem birt­ist í The Economic Journal í upp­hafi þessa árs, kom í ljós að fylgni­sam­band var á milli töku feðra­or­lofs og lækk­andi skiln­að­ar­tíðni.

Herdís segir við blaða­mann að það séu þó ætíð skiptar skoð­anir á því hvort það eigi að vera að eyrna­merkja ein­hvern hluta orlofs­ins hvoru for­eldri, eða ekki. Jöfn skipt­ing er þó að hennar mati lík­leg til þess að hafa jákvæða útkomu fyrir jafn­rétti kynj­anna á vinnu­mark­aði.

„Það er alveg skýrt þegar feðra­or­lofið er fyrst kynnt til sög­unnar að ætl­unin er bæði að tryggja að börn geti átt sam­vistir með báðum for­eldrum en líka til þess að hafa áhrif á vinnu­markað og launa­mun á vinnu­mark­aði,“ segir Herdís.

„Ef maður hugsar um þau mark­mið þá er þetta nátt­úr­lega bara mjög jákvætt og ótrú­lega stórt skref í raun­inni að það sé verið að setja jafnt eyrna­merkt orlof á feður og mæður og við sjáum það í nýlegum rann­sóknum að það sem er eftir af launa­muni kynj­anna er útskýrður að mjög miklu leyti af því að konur vinna minna eftir að þær eign­ast börn og verja meiri tíma í umönnun og að sinna fjöl­skyldu og heim­ili,“ bætir hún við.

Hún segir rann­sóknir sýna að konur og karlar hafi mjög svipuð laun þar til þau fara að eign­ast börn. „Þá sjáum við að það fer að skilja á milli. Ef ætl­unin er að loka þessu launa­bili er aug­ljóst að það verður að jafna líka hlut­verkin heima við,“ segir Herdís.

Það er jafn­rétt­is­hliðin á ten­ingnum. „Svo er það hin hliðin sem þeir sem vilja ekki eyrna­merkja orlof halda mest á lofti, að for­eldrar eigi bara að fá að ákveða þetta sjálfir og fá að velja þá leið sem hentar þeim best. Það er sú leið sem hefur verið farin í Danmörku, en hér sjáum við líka að feður nota mjög lít­inn hluta af fæð­ing­ar­or­lof­inu. Þetta breyt­ist mjög hægt án þess að það sé gripið inn í með að eyrna­merkja hluta af fæð­ing­ar­or­lof­inu.“

Hún segir að Danir verði vænt­an­lega að fara að ráð­ast í það að eyrna­merkja báðum for­eldrum ein­hvern hluta fæð­ing­ar­or­lofs­ins á næst­unni, enda kveði nýleg Evr­ópu­lög­gjöf á um að alla­vega tveir mán­uðir verði að vera eyrna­merktir hvoru for­eldri. Hingað til hafi þau rök þó orðið ofan á í Danmörku for­eldrar séu best til þess fallnir að ákveða þetta alfarið sjálfir.

„En svo eru aðrir sem hugsa þetta þannig að þetta eigi bara að vera for­eldra­réttur og að það ætti að hugsa þetta svipað og eft­ir­laun, fólk er að borga skatta og fær svo til baka úr ein­hverjum sjóði þegar það tekur fæð­ing­ar­or­lof og þetta eigi bara að vera ein­stak­lings­réttur. Maður heyrir báðar hliðar,“ segir hún um umræð­una í Danmörku um þessi mál.

Sex eða sjö mánuðir ekki stutt mæðraorlof í alþjóðlegu samhengi

Ef það sé hins vegar ætl­unin að fæð­ing­ar­or­lofið sé tæki til þess að jafna kjör kynj­anna telur Herdís að það verði að gera þetta með svip­uðum hætti og lagt sé til í frum­varps­drög­unum. „Ég sé þetta bara sem mjög jákvæða leið, hvernig er verið að gera þetta heima,“ segir Herdís.

Hún segir að sex til sjö mán­aða orlof sé ekki stutt mæðra­or­lof í alþjóð­legu sam­hengi, þó að við Íslend­ingar miðum okkur oft­ast við Norð­ur­löndin þar sem fæð­ing­ar­or­lofið er almennt mjög langt. Hún telur jafn­ari skipt­ingu orlofs til þess fallna að hafa jákvæð áhrif á vinnu­mark­aðsút­komur, enda hafi það nei­kvæð áhrif þegar einn ein­stak­lingur sé far­inn að taka jafn­vel heilt ár í fæð­ing­ar­or­lof.

„Það er ein nýleg rann­sókn mjög áhuga­verð sem er að bera saman hvað ger­ist þegar gagn­kyn­hneigð pör eign­ast börn og hvað ger­ist þegar sam­kyn­hneigð pör eign­ast börn. Þá sjáum við að þegar sam­kyn­hneigð pör eign­ast börn er mun jafn­ari skipt­ing og við sjáum eig­in­lega engin lang­tíma­á­hrif á laun. Þetta virð­ist vera betra til lengri tíma, fyrir pör, að jafna þetta út svo það sé hvor­ugur aðili að upp­lifa lang­tíma­á­hrif á laun og aðrar vinnu­mark­aðsút­komur,“ segir Herdís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár