Þrýstingur eykst á húsnæðismarkaði

Fleiri íbúðir selj­ast, fleiri taka lán og verð gam­alla íbúða hækkar, á meðan minna er byggt af nýjum íbúðum. Saman leiða þessir þættir til auk­ins þrýst­ings á hús­næð­is­mark­aði.

Mikill samdráttur hefur orðið á byggingarmarkaðnum
Mikill sam­dráttur hefur orðið á bygg­ing­ar­mark­aðnum Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ýmis merki eru um auk­inn þrýst­ing á hús­næð­is­mark­aði. Kaup­samn­ingum hefur fjölgað og eru vís­bend­ingar um að þeim muni fjölga enn meira, á sama tíma og sölu­tími íbúða stytt­ist. Samhliða því hækkar verð íbúða sem ekki eru nýbygg­ingar tölu­vert, en minni umsvif á bygg­inga­mark­aði bendir til þess að minna verði af nýbygg­ingum í fram­tíð­inni.

Þetta kemur allt fram í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­un­ar­innar (HMS), en sam­kvæmt skamm­tíma­vísum stofn­un­ar­innar er enn mikið líf á fast­eigna­mark­aði.

Lánin orðin ódýrari

Í skýrsl­unni segir að mikla fjölgun megi sjá á lána­mark­aðnum, en frá því í apríl á þessu ari hafa hver metin verið slegin á fætur öðrum í nýjum hreinum útlánum til ein­stak­linga. Aldrei hafa fleiri slík lán verið gefin út og í júlí síð­ast­liðnum, en maí og júní voru einnig met­mán­uðir.

Vegna mik­illa stýri­vaxta­lækk­ana hefur eft­ir­sókn í óverð­tryggð hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum auk­ist mjög, en slík lán bjóða upp á lægri mán­að­ar­lega kostn­að­ar­byrði þessa stund­ina en nokkur önnur lán. Kostn­að­ar­byrði slíkra lána hefur stór­lækkað á síð­ustu fjórum árum, en sam­kvæmt dæmi HMS um 40 ára lán til 21 milljón króna hefur hún lækkað um tæp 40 pró­sent, eða úr 130 þús­und krónum á mán­uði niður í 80 þús­und.

Aukin eftirspurn

Þessa aukn­ingu í hús­næð­is­kaupum sést einnig í nýlegum tölum um þing­lýsta kaup­samn­inga. Samkvæmt skýrsl­unni fjölg­aði þeim um fimmt­ung í júlí­mán­uði miðað við sama mánuð í fyrra. Von er á enn meiri fjölgun kaup­samn­inga í sept­em­ber ef litið mikla fjölgun íbúða sem tekið hefur verið af sölu þá, en sögu­lega hefur sú þróun hald­ist í hendur við fjölgun íbúð­ar­kaupa.

Fjölg­unin helst í hendur við styttri með­al­sölu­tíma og fjölgun íbúða sem seldar eru á yfir­verði. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru um 29 pró­sent íbúða seldar á eða yfir ásettu verði og hefur það hlut­fall hækkað nokkuð frá því í byrjun árs, en það var þá nær 20 pró­sentum.

Við fyrstu sýn virð­ist fjölgun íbúð­ar­kaupa ekki hafa haft veru­leg áhrif á almennt hús­næð­is­verð, en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði verðið um 4,3 pró­sent miðað við sama tíma­bil í fyrra. Mikla verð­hækkun má þó sjá ef horft er á eldri íbúðir, en allt hús­næði sem telst ekki til nýbygg­inga hefur hækkað um rúm 7 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á sama tíma

Minna framboð

Á sama tíma og eft­ir­spurnin hefur auk­ist á íbúðum má þó greina tölu­verðan sam­drátt í nýbygg­ingum. Veltan á bygg­ing­ar­mark­aði hefur dreg­ist saman um 11 pró­sent að raun­virði milli ára, en sá sam­dráttur hófst á sama tíma og heims­far­ald­ur­inn skall á í mars og apríl. Fjöldi starf­andi í þessum geira hefur einnig farið fækk­andi á síð­ustu árum, en fækk­unin hefur verið sér­stak­lega mikil á meðal inn­flytj­enda sem starfa í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár