Samdráttur í auglýsinga- og reikitekjum ráðandi í áframhaldandi tapi á rekstri Sýnar

For­stjóri Sýnar segir það frá­leitt að tak­marka aðgengi Íslend­inga að besta 5G bún­að­inum til þess að þókn­ast utan­rík­is­póli­tík Donalds Trump. Þrátt fyrir mik­inn tap­rekstur und­an­farna árs­fjórð­unga sé það ætlun hans að skila fjár­magni til hlut­hafa á næst­unni.

Fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Sýn tap­aði 410 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Félagið tap­aði 1,7 ,millj­arði króna á árinu 2019 og hefur því tapað yfir tveimur millj­örðum króna á einu og hálfu ári. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi félags­ins sem birtur var í gær.

Inni í þeirri tölu er ein­skipt­is­hagn­aður vegna sölu á fær­eyska félag­inu Hey upp á 817 millj­ónir króna í byrjun árs í fyrra. Án hans hefði tapið auk­ist um þá tölu.

Tapið á öðrum árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní, nam 60 millj­ónum króna en það er umtals­vert minna tap en á sama árs­fjórð­ungi í fyrra þegar tapið var 215 millj­ónir króna.

Tekjur Sýnar vaxa enda milli ára. Þær voru 10,3 millj­arðar króna á fyrri hluta árs­ins en höfðu verið rétt um tíu millj­arðar króna á sama tíma­bili 2019. Tekju­hækk­unin er að öllu leyti til­komin vegna þess að tekjur Endor, upp­lýs­inga­fyr­ir­tækis sem stýrir ofur­tölvum sem Sýn keypti í fyrra, komu inn í sam­stæðu­reikn­ing félags­ins í ár. Tekjur vegna hýs­ingar- og rekstr­ar­lausna voru því 1.315 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2020 en þær voru engar í fyrra.

Á sama tíma hafa tekjur af bæði fjar­skiptum og fjöl­miðlun dreg­ist saman.

Enn dragast tekjur af fjölmiðlunum saman

Sýn keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum í lok árs­ins 2017. Um er að ræða ljós­vaka­miðla á borð við Stöð 2, Bylgjuna og tengdar útvarps­stöðvar og frétta­vef­inn Vísi. Kaup­verðið var 8,2 millj­arðar króna.

Á milli áranna 2018 og 2019 lækk­uðu tekjur Sýnar af umræddum fjöl­miðlum um 446 millj­ónir króna og í upp­hafi árs 2020 var við­skipta­vild sem var til­komin vegna fjöl­miðl­anna sem voru keyptir lækkuð um 2,5 millj­arða króna. Mark­aðsvirði Sýnar í heild í dag er 6,9 millj­arðar króna, eða umtals­vert lægri upp­hæð en félagið greiddi fyrir fjöl­miðl­anna árið 2017, en fjöl­miða­starf­semi er um 35 pró­sent af tekju­straumum Sýnar.

[adspot]Tekjur af fjöl­miðlun voru 551 milljón krónum lægri á fyrri hluta yfir­stand­andi árs en á sama tíma í fyrra. Ef miðað er við fyrri hluta árs­ins 2018 voru tekj­urnar 637 millj­ónum krónum minni nú en þá.

Sam­drátt­ur­inn var mestur á öðrum árs­fjórð­ungi og er það meðal ann­ars rekið til þess að aug­lýs­inga­tekjur hafi dreg­ist saman um 17 pró­sent milli árs­helm­inga. Í í fjár­festa­kynn­ingu Sýnar segir að þetta sé að stórum hluta vegna COVID-19 en þó til­tekið að aug­lýs­inga­sala hafi tekið aftur við sér á seinni hluta ann­ars árs­fjórð­ungs. Þannig hafi aug­lýs­inga­tekjur júní mán­aðar hærri en tekjur sama mán­aðar árið áður

Áskrift­ar­tekjur dróg­ust líka saman milli tíma­bila vegna áhrifa af verð- og dag­skrár­breyt­inga sem „vegið er upp með auknum tekjum af sjón­varps­dreif­ingu,“ sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ing­unni.

Þá er Sýn með hluta af sínum kostn­aði í erlendri mynt, og þar vegur einna þyngst kostn­aður sýn­ing­ar­rétta á efni sem sýnt er á sjón­varps­stöðvum félags­ins. Um 14 pró­sent veik­ing krón­unnar það sem af er ári hefur .ví hækkað rekstr­ar­kostnað Sýnar.

Reikitekjur hverfa með ferðamönnunum

Fjar­skipta­tekjur Sýnar drag­ast líka umtals­vert saman. Á öðrum árs­fjórð­ungi, þegar áhrif af COVID-19 komu sem mest fram,. lækk­uðu tekjur af far­síma­þjón­ustu til að mynda um 14 pró­sent og tekjur af fast­línu um næstum fjórð­ung. Tekjur af inter­neti hafa enn fremur dreg­ist saman um fimm pró­sent.

Í fjár­festa­kynn­ing­unni kemur fram að það sé sam­drátt­ur­inn í far­síma­tekjum sé að stóru leyti bein­tengdur fækkun ferða­manna til lands­ins og sam­drætti í ferðum Íslend­inga erlendis vegna COVID-19. Það hafi hríð­lækkað svo­kall­aðar reiki­tekjur Sýnar, en í árs­hluta­reikn­ingi félags­ins segir að þær hafi lækkað alls um 84 pró­sent frá upp­hafi far­ald­urs­ins. „Ef sam­bæri­leg staða verður á aðgerðum stjórn­valda vegna far­ald­urs­ins við landa­mæri eins og þær eru núna þá má ætla að reiki­tekjur hverfi nærri að fullu seinni hluta árs­ins.“ Möguleg áhrif sam­dráttar í reiki­tekjum á fram­legð árs­ins 2020 er um 200 millj­ónir króna.

Lægri tekjur í sölu á inter­neti eru útskýrðar með því að komið hafi verið til móts við við­skipta­vini með því að fella niður kostnað vegna umfram gagna­magns­notk­unar í sam­komu­banni.

Vörusala hefur líka orðið fyrir umtals­verðum áhrifum af far­aldr­inum og tekjur vegna hennar dróg­ust saman um sjö pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi 2020, þar sem opn­un­ar­tíma versl­ana var breytt í sam­komu­bann­inu og verslun félags­ins í Kringl­unni lokað.

Fráleitt að takmarka aðgengi til að þóknast Trump

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna birt­ingar á árs­hluta­upp­gjör­inu er haft eftir Heiðari Guð­jóns­syni, for­stjóra Sýnar, að rekst­ur­inn hefði verið arð­samur ef COVID-19 hefði ekki komið til. „Bæði aug­lýs­inga- og reiki­tekjur minnk­uðu umtals­vert á tím­anum auk þess sem tekjur komu ekki inn að fullu af tveimur stærstu efn­is­rétt­unum, EM í fót­bolta og Meist­ara­deild­inni, líkt og ráð hafði verið fyrir gert.“

[links]Hann segir þar að enn sé beðið eftir athuga­semdum frá eft­ir­lits­að­ilum vegna hugs­an­legs sam­starfs allra þriggja stóru sím­fyr­ir­tækj­anna (Símans, Sýnar og Nova) varð­andi sam­eig­in­lega upp­bygg­ingu 5G. „Þar teljum við að hags­munir almenn­ings og þjóðar­ör­yggi fari alger­lega saman því verið væri að útvíkka birgja­sam­bönd og tryggja sem besta samn­ings­stöðu við erlenda fram­leið­endur. Það væri frá­leitt að tak­marka aðgengi íslenskra einka­fyr­ir­tækja að besta og ódýrasta bún­að­inum til þess eins að þókn­ast utan­rík­is­póli­tík Donalds Trump.“ Þar á Heiðar við vilja banda­rískra stjórn­valda um að koma í veg fyrir að kín­verska fyr­ir­tækið Huawei geti selt 5G-búnað til vest­rænna landa.

Heiðar segir að Sýn sé enn að hag­ræða og sjái tæki­færi til að nýta betur fjár­magnið með samnýt­ingu fjár­fest­inga. „Í því augna­miði er verið að færa meiri rekstur og fjár­fest­ingar inn í Senda­fé­lagið, sem er rekið með Nova. Samþykki eft­ir­lits­að­ila liggur þegar fyrir hvað þetta varðar. Aðgerð­irnar munu bæta arð­semi rekstrar far­síma­kerf­is­ins. Það er svo til athug­unar að bjóða hluta far­síma­kerf­is­ins til sölu, sem myndi skila umtals­verðu fjár­magni til hlut­hafa. Alþjóð­legir aðilar hafa mik­inn áhuga á fjár­fest­ingum í innviðum sím­fyr­ir­tækja og marg­fald­arar í við­skiptum eru mun hærri en ger­ist á almennum hluta­bréfa­mark­aði.“

Í lok til­kynn­ing­ar­innar segir Heiðar að hlut­hafar Sýnar fari loks að fá þol­in­mæði sína verð­laun­aða, enda sé við­snún­ingur að koma fram. „Það er ætlun mín að skila fjár­magni til hlut­hafa á næstu miss­erum.“

Ljóst er að upp­gjörið, og sú opin­berun að til standi að selja mjögu­lega hluta far­síma­kerf­is­ins, hefur haft jákvæð áhrif á eft­ir­spurn eftir bréfum í Sýn, en í fyrstu við­skiptum dags­ins í dag hækk­aði mark­aðsvirði félags­ins um tæp 16 pró­sent. Á meðal þeirra sem keypti bréf í dag er Heiðar sjálfur. Hann keypti sam­tals fyrir 134 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár