Torg ekki lengur hluti af stefnu Sýnar en hinir stefndu vilja milljarða í skaðabætur

Sýn tap­aði 350 millj­ónum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins og varð fyrir ýmis konar áhrifum vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Félagið vill 1,7 millj­arða króna frá 365 og eig­endum þess vegna brota á sam­keppn­is­banni.

Fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Sýn tap­aði 350 millj­ónum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Þar skipti geng­is­tap, nei­kvæð áhrif verð- og dag­skrár­breyt­inga á sport­stöð, kostn­aður vegna starfs­loka og minnk­andi aug­lýs­inga­tekjur mestu máli.

Félagið stendur mála­ferlum vegna kaupa á fjöl­miðlum sem áttu sér stað árið 2017 fyrir alls 8,2 millj­arða króna, en Sýn telur að selj­endur miðl­anna – félagið 365 og eig­endur þess – hafi brotið gegn ákvæðum um sam­keppn­is­bann sem samið hafi verið um. Torg ehf., sem rekur Frétta­blaðið og tengda miðla, var upp­haf­lega hluti af þeim hópi sem Sýn ætl­aði að stefna en er það ekki lengur. Alls krefst Sýn 1,7 millj­arða króna í mál­inu. Selj­end­urnir hafa á móti gagn­stefnt Sýn for­stjóra þess og stjórn­ar­mönnum, til greiðslu skaða­bóta og krefj­ast sam­tals þriggja millj­arða króna.

Þetta kemur fram í árs­hluta­upp­gjöri Sýnar sem birt var í gær.

[adspot]Tekjur félags­ins juk­ust lít­il­lega milli ára, eða um 20 millj­ónir króna, og voru 4.995 millj­ónir króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins en þar skipti mestu að tekjur Endor, upp­lýs­inga­fyr­ir­tækis sem stýrir ofur­tölvum sem Sýn keypti í fyrra, eru í fyrsta sinn hluti af sam­stæðu­reikn­ingi félags­ins. Þær voru 371 millj­ónir króna. Án þeirrar aukn­ingar hefði verið sam­dráttur í tekjum milli ára. Eigið fé Sýnar var 8,4 millj­arðar króna í lok mars og eig­in­fjár­hlut­fallið 26,8 pró­sent. Handbært fé frá rekstri var 1.053 millj­ónir króna sem er 29 pró­sent meira en það var í lok mars í fyrra.

Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra hagn­að­ist Sýn um 670 millj­ónir króna. Þar skipti hins vegar öllu máli sölu­hagn­aður vegna fær­eyska félags­ins Hey upp á 817 millj­ónir króna. Án þeirra ein­skiptis­tekna þá hefði verið 147 milljón króna tap á starf­sem­inni.

Ýmsir þættir urðu fyrir áhrifum vegna COVID-19

Ýmsir þættir gera það að verkum að aðrir hlutar starf­sem­innar skil­uðu tapi í á árs­fjórð­ungnum. Þannig voru áhrif verð- og dag­skrár­breyt­inga á Stöð 2 Sport nei­kvæð um 175 millj­ónir króna miðað við sama tíma í fyrra. Alls dróg­ust tekjur félags­ins vegna fjöl­miðla­hluta rekst­urs­ins saman um 229 millj­ónir króna milli ára. Gjald­færsla vegna starfs­loka var 70 millj­ónir króna.

COVID-19 hafði áhrif á starf­sem­ina og Sýn var eitt þeirra skráðu fyr­ir­tækja sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu vegna starf­semi sem lá niðri vegna sam­komu­banns. Alls náði sú nýt­ing til 90 starfs­manna Sýnar og með­al­skerð­ing á starfs­hlut­falli þeirra var 30 pró­sent. Í dag hafa flest öll önnur skráð félög sem hafa geng­ist við því að hafa gert það utan Sýnar ákveðið að hætta nýt­ingu hennar og flest ætla að end­ur­greiða þegar teknar greiðslur starfs­manna sinna í rík­is­sjóð. Þau skráðu félög sem hafa ekki til­kynnt um slíkt eru, auk Sýnar, Icelandair Group sem er það félag sem setti lang­flesta starfs­menn á leið­ina, og fast­eigna­fé­lagið Reginn, sem en tvö dótt­ur­fé­lög þess settu alls fimm starfs­menn á leið­ina.

[adspot]Í fjár­festa­kynn­ingu Sýnar kemur fram að áhrif heims­far­ald­urs­ins hafi meðal ann­ars birst í því að sam­dráttur var í aug­lýs­inga­tekjum upp á 55 millj­ónir króna miðað við sama tíma­bil í fyrra, lækkun á reiki­tekjum var 15 millj­ónir króna og fækkun var á útsend­ingum sport­við­burða. Á móti hafi orðið aukn­ing á innri fram­leiðslu á spor­tefni og annarri inn­lendri dag­skrár­gerð.

Stærsti nei­kvæði lið­ur­inn var þó vegna geng­is­á­hrifa, en krónan hefur fallið umtals­vert gagn­vart helst við­skipta­myntum Íslands frá ára­mótum. Þau voru nei­kvæð um 230 millj­ónir króna á árs­fjórð­ungnum.

Torg ekki lengur stefnt og hinir stefndu stefna Sýn

Í árs­hluta­upp­gjör­inu er gerð grein fyrir mála­ferlum sem Sýn stendur í við Ingi­björgu Pálma­dóttur, Jón Ásgeir Jóhann­es­son og 365 ehf. Upphaf þeirra deilna má rekja til árs­ins 2017 þegar Sýn keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum. Þá var stór hluti af fjöl­miðla­veldi 365, meðal ann­ars allir ljós­vaka­miðlar félags­ins og frétta­vef­ur­inn Vísir.is, seldur til Sýnar. Eftir stóð Frétta­blaðið og tengdir miðlar sem 365 seldi svo til nýrra eig­enda í fyrra og eru nú reknir í félag­inu Torgi ehf.

Mála­ferlin snú­ast um að Sýn telur að 365, og helstu eig­endur og stjórn­endur félags­ins, hafi brotið gegn ákvæðum um sam­keppn­is­bann sem samið hafið verið um í kaup­samn­ingi þeirra á milli.

Í brot­unum fel­ast að stjórn­endur Sýnar telja að teng­ing vef­mið­ils­ins fretta­bla­did.is við ljós­vaka­miðla, bæði útvarp og sjón­varp, sé með öllu óheimil sam­kvæmt kaup­samn­ingnum frá árinu 2017. Mið­ill­inn haldi hins vegar úti hlað­varpi, vísi á vef sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar (líka í eigu Torgs) af for­síðu sinni og sýni ýmis konar mynd­bönd, sem telj­ist ljós­vaka­efni.

[links]Í árs­reikn­ingi fyrir árið 2019, þar sem gert var grein fyrir því að búið væri að stefna vegna máls­ins, kom fram að Torgi ehf., eig­anda Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, yrði líka stefnt. Þá var upp­hæðin sem um ræddi sögð 1,1 millj­arðar króna.

Í árs­hluta­upp­gjör­inu sem birt­ist í gær kemur fram að stefna hafi þegar verið birt máls­að­ilum og að fjár­hæðin sem kraf­ist sé standi nú í 1,7 millj­örðum króna. Torg ehf. er hins vegar ekki lengur á meðal þeirra sem stefnt hefur verið.

Í árs­hluta­upp­gjöri Sýnar kemur einnig fram að Ingi­björg, Jón Ásgeir og 365 hafi stefnt Sýn, Heiðari Guð­jóns­syni for­stjóra félags­ins og öllum stjórn­ar­mönnum þess til greiðslu skaða­bóta. Ekki kemur fram af hverju þau telja sig eiga rétt á greiðslu slíkra en þau krefj­ast eins millj­arðs króna hver, eða þriggja millj­arða króna alls. Það mál bíður þing­fest­ingar.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þessar deilur í frétta­skýr­ingu í lok febr­úar sem lesa má hér til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár