Ráðamenn þurfi að sýna ábyrgð gagnvart einu „alvarlegasta vandamáli lýðveldistímans“

Pró­fessor í hag­fræði, sem gagn­rýndi frek­ari opnun landamæra Íslands út frá efna­hags­legum rökum fyrir helgi, skrif­ast í fyrsta sinn á við stjórn­mála­mann. Hann von­ast til þess að þurfa aldrei að gera það aftur.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. og Gylfi Zoega sjá stöðu mála ekki sömu augum.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. og Gylfi Zoega sjá stöðu mála ekki sömu augum. Mynd: Samsett

„Þegar þjóð­fé­lag okkar stendur frammi fyrir ein­hverju alvar­leg­asta vanda­máli lýð­veld­is­tím­ans þá er mik­il­vægt að leyfa mis­mun­andi sjón­ar­miðum að koma fram og ráða­menn þurfa að sýna ábyrgð með því að bregð­ast við umræðu í sam­ræmi við emb­ætti þeirra og ábyrgð.“

[links]Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann svarar gagn­rýni Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála, á skrif hans í Vís­bend­ingu í lok síð­ustu viku. Gagnrýni Þórdísar var sett fram í pistli hennar í Morg­un­blað­inu.

Gylfi segir í svar­grein sinni að hann leggi það ekki í vana sinn að skrif­ast á við stjórn­mála­menn. Hann hafi reyndar aldrei gert það áður og muni von­andi ekki þurfa að gera það aftur, en í ljósi alvar­leika máls finn­ist honum rétt að benda á nokkur atriði.

Hann rekur svo inni­hald greinar sinnar í Vís­bend­ingu, sem vakti mikla athygli þegar hún birt­ist á föstu­dag, en þar færði Gylfi efna­hags­leg rök fyrir því að það hefðu verið mis­tök að opna landið meira um miðjan júní. Með því hafi stjórn­völd stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu og tekið hags­muni fárra, ferða­þjón­ust­unnar, fram yfir hags­muni þorra lands­manna.

Ásættanleg áhætta að mati ráðherra

Þórdís svar­aði um helg­ina og sagði gagn­rýni Gylfa, og ann­ars hag­fræð­ings Þórólfs Matth­í­as­sonar, slá sig „svo­lítið eins og að fagna góðu stuði í gleð­skap á mið­nætti án þess að hugsa út í haus­verk­inn að morgni.“

[adspot]Það hafi komið henni á óvart að Gylfi skuli í grein sinni í Vís­bend­ingu leggja áherslu á að Ísland þurfi ekki erlenda ferða­menn því að staða efna­hags­mála sé framar vonum. „Ég þekki ekki marga sem ætla að fara hring­inn í októ­ber,“ skrif­aði ráð­herr­ann.

Hún bætti við, í sam­tali við RÚV á laug­ar­dag, að áhættan af því að skima og hleypa fólki inn í landið væri lítil og að hún gæti ekki fall­ist á þau rök að hún sé svo mikil að það ætti að loka land­inu og ekki hleypa fólki inn. „Þannig að áhættan er í mínum huga ásætt­an­leg.“

Tveir valkostir

Gylfi í grein sinni í dag að það sé skilj­an­legt að vilji sé til staðar til að liðka fyrir komum erlendra ferða­manna til þess að bjarga fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu og minnka atvinnu­leysi. „En þeir sem taka ákvarð­anir fyrir hönd þjóð­ar­innar verða að hafa heild­ar­hags­muni skýra. Ekki má horfa fram hjá þeim mikla efna­hags­lega skaða sem verður ef far­sóttin herjar á sam­fé­lagið í vetur. Efna­hag­legt tap af völdum far­sóttar innan lands getur verið mikið eins og sést í mörgum nálægum ríkjum.“

Hann rifjar upp við­brögð ann­arra þjóða við far­ald­inum. Annað eyríki, Nýja-Sjáland, hafi til að mynda ákveðið að nota sér­stöðu sína til þess að hafa strangar sótt­varnir á landa­mærum og vernda þannig inn­lent hag­kerfi og sam­fé­lag uns lyf og bólu­efni koma til hjálpar. „Í nágrenni okkar mælir utan­rík­is­ráðu­neyti Noregs, svo dæmi sé tekið, með því að Norðmenn ferð­ist ekki til útlanda nema brýn­ustu nauð­syn beri til.“

Að hans mati eru val­kostir Íslend­inga tveir: Öflugar sótt­varnir við landa­mæri líkt og Nýsjá­lend­ingar hafa gert og sótt­varnir sem eru minna hamlandi á efna­hags­starf­semi innan lands, eða tak­mark­aðar sótt­varnir við landa­mæri og miklar sótt­varnir innan lands eins og nú virð­ist stefna í. „Ef ráða­menn eru að horfa á neyslu, atvinnustig og stöðu rík­is­sjóðs þá þarf ekki hag­fræð­ing til að benda á að fyrri kost­ur­inn gæti komið betur út. Hættu­legt er að gera að einu hags­muni ferða­þjón­ustu, ann­ars vegar, og efna­hags­lífs­ins alls, hins vegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár