Hægir á verðhækkunum fasteigna um land allt

Verð­hækk­anir á fast­eignum í stærri þétt­býl­is­kjörnum lands­ins mæl­ast nú á bil­inu núll til tíu pró­sent milli ára en á síð­asta árs­fjórð­ungi mæld­ust hækk­an­irnar þrjú til 16 pró­sent milli ára.

Hægt hefur á verð­hækk­unum fast­eigna á milli ára í stærri þétt­býl­is­kjörnum lands­ins sam­kvæmt nýlegri Hagsjá Lands­bank­ans. Þetta gildir um alla þá þétt­býl­iskjarna sem til skoð­unar eru í Hag­sjánni en það eru Akureyri, Árborg, Akranes, Reykja­nes­bær og höf­uð­borg­ar­svæðið. Verð­hækk­anir á fast­eignum mæl­ast nú á bil­inu núll til tíu pró­sent milli ára en á síð­asta árs­fjórð­ungi mæld­ust hækk­an­irnar þrjú til 16 pró­sent.

Á milli árs­fjórð­unga varð lítil breyt­ing á fast­eigna­verði á þessum stöðum. Mest verð breyt­ingin á Akureyri þar sem íbúða­verð hækk­aði um þrjú pró­sent. Á einum stæð lækk­aði íbúða­verð milli árs­fjórð­unga, í Reykja­nesbæ, um eitt pró­sent. Verð hækk­aði um eitt pró­sent á Akranesi en stóð í stað í Árborg og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í Hag­sjánni segir að verð hafi hækkað hraðar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á síð­ustu árum, en nú hægir á verð­hækk­unum alls staðar. Mesta verð­hækk­unin á milli ára varð á Akranesi þar sem íbúða­verð hækk­aði um tíu pró­sent. Minnst varð hækk­unin í Reykja­nesbæ en íbúða­verð hækk­aði þar um 0,3 pró­sent á milli ára.

Hæsta fermetraverðið utan höfuðborgarsvæðisins á Akureyri

Fer­metra­verð er að jafn­aði um 30 pró­sentum lægra á þétt­býl­is­svæðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt Hag­sjánni. Af þeim stöðum sem áður eru nefndir er fer­metra­verðið hæst utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á Akureyri, 369 þús­und á fer­metr­ann. Lægst er verðið í Reykja­nesbæ, 316 þús­und á fer­metr­ann.

Þing­lýstum kaup­samn­ingum fjölgar víða utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á öðrum árs­fjórð­ungi. Mest var auk­ingin á Akranesi en þar seld­ust 57 pró­sent fleiri íbúðir á öðrum árs­fjórð­ungi í ár en á sama tíma í fyrra. Á öðrum árs­fjórð­ungi fækk­aði hins vegar þing­lýstum kaup­samn­ingum á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 31 pró­sent milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignaverð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár