Fasteignamat íbúðarhúsnæðis lækkar víða miðsvæðis í Reykjavík

Fast­eigna­mat Þjóð­skrár á íbúð­ar­hús­næði lækkar víða mið­svæðis í Reykja­vík frá yfir­stand­andi ári. Mikill munur er á þróun fast­eigna­mats­ins á milli hverfa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hæsta fer­metra­verðið á land­inu er í Vesturbæ Reykja­víkur og Skerja­firði.

Fast­eigna­mat Þjóð­skrár lækkar víða mið­svæðis í Reykja­vík á milli ára, en fast­eigna­mat stofn­un­ar­innar fyrir árið 2021 var birt í morgun. Í heild­ina hækkar fast­eigna­mat á land­inu um 2,1 pró­sent frá núver­andi mati, um 2,2 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 1,9 pró­sent á lands­byggð­inni.

Afar mis­jafnt er þó á milli mats­svæða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sveit­ar­fé­laga á lands­byggð­inni hvernig fast­eigna­matið sveifl­ast. Hægt er að fletta upp ein­staka eignum á vef Þjóð­skrár og þar geta áhuga­samir einnig glöggvað sig á því hvernig mis­mun­andi mats­svæði koma út í vefsjá stofn­un­ar­innar.

Sem dæmi um breyt­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkar fast­eigna­mat fjöl­býlis um 8,6 pró­sent í Túnum í Reykja­vík, en hækkar um 7,6 pró­sent í Teigum, næsta mats­svæði handan Kringlu­mýr­ar­brautar. Í miðbæ Reykja­víkur, frá Tjörn­inni að Snorra­braut, hækkar fast­eigna­mat fjöl­býlis um 4,1 pró­sent en lækkar um 4,8 pró­sent á mats­svæð­inu í Suður-Þing­holtum.

Tölu­verðar lækk­anir eru á fast­eigna­mati í mið­borg­inni, en til dæmis lækkar fast­eigna­mat á sér­býlum á mats­svæð­inu frá Tjarn­ar­götu og sunnan Landa­kots um 7,9 pró­sent og fjöl­býli á sömu slóðum um 3,4 pró­sent.

Í úthverfum Reykja­víkur og nágranna­sveit­ar­fé­lögum borg­ar­innar hækkar fast­eigna­mat víð­ast hvar. Til dæmis hækkar fast­eigna­mat fjöl­býlis að með­al­tali um 6,1 pró­sent mið­svæðis í Mos­fellsbæ, um 5,7 í Graf­ar­holti, um 7,7 pró­sent í Urriða­holti í Garðabæ og um 4,6 pró­sent mið­svæðis í Hafn­ar­firði.

Hæst er með­al­fer­metra­verð sér­býlis á Ægisíðu og Högum í Vesturbæ Reykja­vík, eða 576.000 kr. á fer­meter. Fast­eigna­mat sér­býlis hækkar þar um 3,1 pró­sent á milli ára. Með­al­fer­metra­verð fjöl­býlis er hæst í Skerja­firði, eða 591.000 kr. og hækkar fast­eigna­matið fjöl­býlis þar um 4,7 pró­sent á milli ára.

Fast­eigna­skattar taka mið af fast­eigna­mati Þjóð­skrár og fara því hækk­andi með hækk­andi fast­eigna­mati. Fast­eigna­matið byggir meðal ann­ars á upp­lýs­ingum úr þing­lýstum kaup­samn­ingum, auk fjöl­margra ann­arra þátta sem hafa áhrif á verð­mæti fast­eigna. Nýja fast­eigna­matið mið­ast við verð­lag fast­eigna í febr­úar 2020 og tekur gildi 31. des­em­ber. Frestur til að gera athuga­semdir við nýtt fast­eigna­mat rennur út degi fyrr, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef Þjóð­skrár.

Atvinnuhúsnæði í miðborg Reykjavíkur stendur nærri í stað

Heilt yfir hækkar fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis á land­inu um 1,7 pró­sent frá yfir­stand­andi ári, um 1,6 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 1,9 pró­sent á lands­byggð­inni. Mjög litlar hækk­anir verða á fast­eigna­mati atvinnu­hús­næðis í mið­borg Reykja­víkur.

Fast­eigna­mat versl­un­ar­hús­næðis hækkar þar til dæmis ekki neitt á milli ára, en fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis sem notað er undir iðnað hækkar um 0,7 pró­sent á milli ára og fast­eigna­mat skrif­stofu­hús­næðis hækkar um 0,1 pró­sent. Heilt yfir hækkar fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis í Reykja­vík­ur­borg um 0,7 pró­sent á milli ára.

Það er minna en í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en í Kópavogi nemur hækk­unin 4,2 pró­sentum, á Sel­tjarn­ar­nesi 5,6 pró­sentum, í Hafn­ar­firði 3,1 pró­senti og í Garðabæ 2,6 pró­sentum, svo dæmi séu tekin.

Fasteignamat á Suðurnesjum lækkar

Fast­eigna­mat hækkar heilt yfir í öllum lands­hlutum, nema á Suð­ur­nesjum, þar sem heild­ar­fast­eigna­mat lækkar um hálft pró­sent frá yfir­stand­andi ári. Mest verður hækk­unin á Vest­fjörðum eða 8,2 pró­sent og þar næst á Norð­ur­landi vestra, eða 6,5 pró­sent.

Hvað ein­stök sveit­ar­fé­lög varðar hækkar heild­ar­fast­eigna­mat í Ísa­fjarð­arbæ mest, eða um 11,2 pró­sent frá yfir­stand­andi ári. Næst koma Akra­hreppur, Tálkna­fjarð­ar­hreppur, Blöndu­ós­bær, Bol­ung­ar­vík­ur­kaup­staður og Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður, en þar nemur hækk­unin á milli 8 og 8,8 pró­sentum.

Heild­ar­fast­eigna­mat lækkar mest í Sveit­ar­fé­lag­inu Vogum og Skorra­dals­hreppi, eða um 3,6 pró­sent. Þá lækkar fast­eigna­mat í Reykja­nesbæ um 2,1 pró­sent og í Stykk­is­hólmi um 1,7 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignaverð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár