Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 2,9 prósent. Á sama tímabili hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1 prósent. Því hefur orðið raunlækkun á fasteignaverði á síðustu tólf mánuðum.
Minnsta hækkun íbúðaverðs síðan í apríl 2011
Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár stóð vísitala íbúðaverðs höfuðborgarsvæðisins í 625,7 stigum í júlí 2019 og hafði hækkað um 0,1 prósent milli mánaða. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 0,6 prósent, en hækkunin nam 0,4 prósentum ef miðað er við síðasta hálfa árið. [adspot]
Tólf mánaða hækkun vísitölunnar mældist í júlí einungis 2,93 prósent en það er minnsta hækkun sem mælst hefur á íbúðaverði frá því í apríl 2011. Til samanburðar mældist hækkunartakturinn 3,15 prósent í júní og 3,86 prósent í maí.

Í júlímánuði mældist vísitala neysluverðs 468,8 stig og lækkaði um 0,2 prósent milli mánaða. Tólf mánaða verðbólga mældist 3,1 prósent í júlí en án húsnæðisliðar 2,8 prósent, samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
















































Athugasemdir