Hægt verður að leggja févíti á þá farþega sem borga ekki í strætó

Fyr­ir­hug­aðar eru breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi far­gjalda í Strætó sem mun leiða til þess að sala far­gjalda verður ekki lengur í boði í vögn­unum sjálfum. Farþegar sem greiða ekki far­gjald, eða mis­nota kerfið með öðrum hætti, verða beittir févíti.

Til stendur að breyta rukkun fargjalda í strætó með þeim hætti að sala fargjalda verður einungis utan vagna.
Til stendur að breyta rukkun far­gjalda í strætó með þeim hætti að sala far­gjalda verður ein­ungis utan vagna. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, birti í síð­ustu viku áform um frum­varp í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem fela í sér heim­ild til að leggja févíti á þá far­þega sem virða ekki reglur um greiðslu far­gjalds, aðgangs­tak­mark­anir, notkun aðgangskorta, umgengi eða aðra þætti í þjón­ustu rekstr­ar­að­ila reglu­bund­inna far­þega­flutn­inga.

Í áformunum segir að áformin um laga­setn­ing­una séu til­komin vegna fyr­ir­hug­aðrar breyt­ingar á núver­andi fyr­ir­komu­lagi far­gjalda hjá Strætó bs. sem muni leiða til þess að sala far­gjalda verður alfarið utan almenn­ings­vagna og unnt verður að fara í vagn­ana um báðar dyr. Með breyttu kerfi muni vagn­stjórar ekki lengur hafa tök á því að hafa eft­ir­lit með greiðslu far­gjalda og virkjun far­miða verður með ein­fald­ari hætti.

Með breyt­ing­unni verði hægt að flýta afgreiðslu í vagna og stytta bið­tíma á bið­stöðvum, ein­falda alla umsýslu við almenn­ings­sam­göngur og efla þjón­ustu við við­skipta­vini. „Til að styðja við og fram­fylgja þess­ari þróun er því áformað að leggja til í frum­varpi til breyt­inga á lögum um far­þega­flutn­inga og farm­flutn­inga á landi, nr. 28/2017 að rekstr­ar­að­ila reglu­bund­inna far­þega­flutn­inga verði heim­ilt að leggja févíti á þá sem koma sér undan gjaldi eða mis­nota kerfið á ein­hvern hátt með til­heyr­andi tekju­tapi fyrir rekstr­ar­að­il­ann.“

Ein önnur breyt­ing er í áformunum, en hún snýr að því að afnema það skil­yrði að hafa almennt rekstr­ar­leyfi til að fá ferða­þjón­ustu­leyfi.

[adspot]Samkvæmt gild­andi lögum um far­þega­flutn­inga og farm­flutn­inga á landi er eitt af skil­yrðum þess að fá ferða­þjón­ustu­leyfi að við­kom­andi hafi rekstr­ar­leyfi. Eitt af skil­yrðum rekstr­ar­leyfis er að hafa full­nægj­andi fjár­hags­stöðu sem þýðir að aðgangur sé að nægi­legu fjár­magni til að stofna fyr­ir­tæki og tryggja öruggan rekstur þess.

Fyr­ir­tæki verða hafa eigið fé og sjóði sem jafn­gilda a.m.k. kr. 1.150.000 krónum fyrir fyrsta öku­tæki og kr. 640.000 krónur á hvert öku­tæki umfram það.

Í áformunum segir að fjár­hags­kröfur rekstr­ar­leyfis byggi á Evr­ópu­reglum vegna hóp­ferða­akst­urs en ferða­þjón­ustu­leyfið sé hins vegar sér íslensk útfærsla sem gildi um almenna fólks­bif­reiðir sem not­aðar eru í ferða­þjón­ustu. „Þar sem rekstur á grund­velli ferða­þjón­ustu­leyfis er mun minni í sniðum en rekstur á grund­velli rekstr­ar­leyfis enda um fólks­bif­reiðar að ræða þykir rétt að leggja til að slakað verði á kröfum um fjár­hags­grund­völl vegna útgáfu ferða­þjón­ustu­leyfis. Því er áformað að leggja til að ekki þurfi lengur að hafa rekstr­ar­leyfi til að fá útgefið ferða­þjón­ustu­leyfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

almenningsamgöngur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár