Fyrsta lota Borgarlínu skili 25,6 milljarða samfélagsábata á næstu 30 árum

Borg­ar­lína er þjóð­hags­lega arð­bært verk­efni sem áætlað er að skili miklum sam­fé­lags­legum ábata næstu 30 árin, helst í formi styttri ferða­tíma með almenn­ings­sam­göngum, sam­kvæmt nýrri félags­hag­fræði­legri grein­ingu frá COWI og Mannviti.

Borgarlínukerfið eins og ráðgert er að það verði orðið árið 2034. Í þessu félagshagfræðilega mati er þó einungis fyrsta lota Borgarlínu undir.
Borg­ar­línu­kerfið eins og ráð­gert er að það verði orðið árið 2034. Í þessu félags­hag­fræði­lega mati er þó ein­ungis fyrsta lota Borg­ar­línu undir. Mynd: Verkefnastofa Borgarlínu

Borg­ar­lína er þjóð­hags­lega arð­bært verk­efni og er áætlað að fyrsta lota hennar skili 25,6 millj­arða sam­fé­lags­legum ábata á næstu 30 árum, umfram stofn- og rekstr­ar­kostnað. Þetta kemur fram í skýrslu frá dönsku verk­fræði­stof­unni COWI og verk­fræði­stof­unni Mannviti, sem kynnt var í dag.

Um er að ræða svo­kall­aða félags­hag­fræði­lega grein­ingu, sem hefur ekki verið beitt á almenn­ings­sam­göngu­verk­efni hér á landi áður. Notast er við sömu aðferða­fræði og hefur verið notuð við grein­ingu á sam­göngu­fram­kvæmdum erlendis, t.d. Metro í Kaup­manna­höfn og létt­lest­ar­kerfum í Óðins­véum og Árósum.[links]

Í skýrsl­unni er lagt mat á sam­fé­lags­legan ábata og kostnað vegna fyrstu lotu Borg­ar­línu, sem skipt­ist í þrjá áfanga. Fyrsti áfang­inn nær frá Hamra­borg að Ártúns­höfða, sá annar frá Hamra­borg að Lindum í Kópavogi og sá þriðji frá Voga­byggð að Mjódd. Alls er þetta um 25 kíló­metrar af innviðum fyrir svo­kallað BRT-hrað­vagna­kerfi, stræt­is­vagna í sér­rými.

Sam­an­lagður kostn­aður við þessar fram­kvæmdir er met­inn á 25,37 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2020, en við þá útreikn­inga er stuðst við kostn­að­ar­mat Mannvits frá árinu 2017 sem hefur verið rýnt af starfs­mönnum Verk­efna­stofu Borg­ar­línu. Sú tala er með 30 pró­sent óvissu­á­lagi inni­földu.

Enn er þó gert ráð fyrir 50 pró­sent óvissu­á­lagi ofan á fram­kvæmd­ina og færi heild­ar­fram­kvæmda­kostn­að­ur­inn þá upp í 38,05 millj­arða króna. Við útreikn­inga á sam­fé­lags­lega ábat­anum er áætlað að fram­kvæmda­kostn­að­ur­inn fari upp í þak þessa óvissu­á­lags.

[adspot]

Lilja G. Karls­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur hjá Verk­efna­stofu Borg­ar­línu sagði í sam­tali við Kjarnann í sumar að ákjós­an­leg­ast væri að vera kom­inn með með óvissu­pró­sent­una niður í um það bil 10 pró­sent þegar fram­kvæmdir væru að hefj­ast.

Heildarábatinn metinn 93,6 milljarðar

Sam­fé­lags­legi ábat­inn af fyrstu lotu Borg­ar­línu er met­inn á alls 93,6 millj­arða króna í skýrslu COWI og Mannvits og skýrist hann aðal­lega af þeim mikla ábata sem áætlað er að fram­kvæmdin muni skila far­þegum sem nota almenn­ings­sam­göngur, bæði þeim sem þær nota í dag og þeim sem munu byrja að nota þær á tíma­bil­inu. Sér­stak­lega skýrist þessi ábati af tíma­sparn­aði far­þega, bæði hvað varðar ferða­tíma og bið­tíma.

Búist er við að þessi tíma­sparn­aður í kerf­inu muni leiða til þess að hlut­deild þeirra sem noti almenn­ings­sam­göngur vaxi og það hafi þau áhrif tekjur Strætó muni vaxa um 9,6 millj­arða króna á öllu 30 mats­tíma­bil­inu.

Á móti er áætlað að árlegur rekstr­ar­kostn­aður Strætó muni aukast um 2 millj­arða króna vegna Borg­ar­línu, en í félags­hag­fræði­legu grein­ing­unni er gert ráð fyrir því að heild­ar­á­hrif Borg­ar­línu á rekstr­ar­kostnað Strætó verði nei­kvæð um 17,1 millj­arð króna.

Bílaumferð verði fyrir neikvæðum áhrifum

Á móti kemur þó að fram­kvæmdin er talin hafa nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér fyrir umferð bíla, sendi­bíla og þunga­flutn­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er sam­an­legt tap af þessum völdum verð­metið á 19,4 millj­arða króna til næstu 30 ára og skýrist það að miklu leyti af auknum tíma á bak við stýrið með til­komu Borg­ar­línu.

Gert er ráð fyrir því í skýrsl­unni að dag­legum bíl­ferðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni fækka lít­il­lega á tíma­bil­inu, úr um það bil 1.205.000 ferðum niður í 1.196.000 ferðir og að sökum þess að færri muni velja bíl­inn sem far­ar­máta muni umferð­ar­tafir heilt yfir verða minni.

Þrátt fyrir það verði hver og einn bíl­stjóri oftar fyrir umferð­artöfum, en að sá heild­ar­tími sem varið er í umferð­ar­tafir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yrði minni en ef Borg­ar­lína yrði ekki byggð.

Fýsileiki helst viðkvæmur fyrir því að ferðatími minnki ekki eins og stefnt er að

Félags­hag­fræði­lega grein­ingin styðst við fjölda for­sendna og að þeim öllum gefnum er verk­efnið þjóð­hags­lega arð­bært og sam­fé­lags­á­bat­inn met­inn 25,6 millj­arðar til 30 ára sem áður segir.

Í grein­ingu COWI og Mannvits var þó líka gerð svokölluð næmni­grein­ing, þar sem óvissu­þættir eða for­sendur eru skoð­aðar og metið hvort verk­efnið verði enn þjóð­hags­lega arð­bært og fýsi­legt ef veru­legar breyt­ingar yrðu á for­send­unum.

Verk­efnið stenst þessa næmni­grein­ingu vel, sam­kvæmt skýrsl­unni. Borg­ar­lína yrði til dæmis enn þjóð­hags­lega arð­bær þrátt fyrir að fram­kvæmda­kostn­að­ur­inn yrði 25 pró­sentum hærri en gert er ráð fyrir.

Þannig er búið að slá í raun þre­faldan varnagla ofan á að þjóð­hags­lega hag­kvæmni verk­efn­is­ins með til­liti til kostn­aðar, því þessi 25 pró­sent kostn­að­ar­aukn­ing leggst ofan á 30 pró­sent óvissu sem er í kostn­að­ar­á­ætlun eins og hún er í dag og 50 pró­sent óvissu sem bætt var ofan á þá tölu í félags­hag­fræði­legu grein­ing­unni.

Einnig yrði Borg­ar­lína enn þjóð­hags­lega arð­bær og fýsi­leg þrátt fyrir að rekstr­ar­kostn­að­ur­inn yrði 50 pró­sentum hærri en ráð­gert er.

Það sem helst ógnar fýsi­leika Borg­ar­línu, sam­kvæmt skýrsl­unni, er að eitt­hvað verði til þess að ferða­tíma­sparn­aður far­þega í almenn­ings­sam­göngum verði ekki jafn mik­ill og lagt er upp með.

Í hina átt­ina eru líka ákveðnir óvissu­þættir sem gætu stór­aukið ábatann af Borg­ar­línu. Þar ber helst að að nefna minnk­andi einka­bíla­eigu almenn­ings, en sam­kvæmt útreikn­ingum COWI og Mannvits gæti sam­fé­lags­legi heild­ar­á­bat­inn af Borg­ar­línu rokið upp í 67,1 millj­arð króna á þessu 30 ára tíma­bili ef svo fer að bíla­eign þeirra sem búa í fjöl­býl­is­húsum drag­ist saman um 5,3 pró­sent og bíla­eign þeirra sem búa í ein­býl­is­húsum um drag­ist saman um 1,3 pró­sent með til­komu Borg­ar­línu.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fréttin hefur verið leið­rétt. Áður sagði að félags­hag­fræði­leg grein­ing sem þessi hefði aldrei verið fram­kvæmd í tengslum við stórt sam­göngu­fram­kvæmda­verk­efni á Íslandi, en það er rangt. Slíkar hafa verið fram­kvæmdar m.a. vegna fram­tíð­ar­stað­setn­ingu Reykja­vík­ur­flug­vallar og í tengslum við svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, flug­völl í Hvassa­hrauni og Ásvalla­braut í Hafn­ar­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

almenningsamgöngur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár