Ragnar Þór segir samantekt sína kalla á óháða rannsókn

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag hvar hann fer yfir mál­efni Icelandair, Lands­símareits­ins og Lind­ar­vatns. Hann segir mörgum spurn­ingum um við­skipti félag­anna ósvarað.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son segir að sam­an­tekt á mál­efnum Icelandair, Lands­símareits og Lind­ar­vatns sem hann vann ásamt lög­fræð­ingum sínum kalli á óháða rann­sókn á mál­inu í heild sinni. Sam­an­tekt Ragnars var birt á Kjarn­anum fyrr í dag. Ragnar hafði fyrr í vik­unni gefið það út að hann ætl­aði að senda frá sér yfir­lýs­ingu sem hann var þá að vinna að í sam­vinnu við lög­menn sína, í henni áttu að koma fram nýjar upp­lýs­ingar um málið.

Skilmálabreyting skuldabréfa

Í sam­an­tekt sinni bendir Ragnar meðal ann­ars á að í mars síð­ast­liðnum hafi skulda­bréfa­eig­endur LIND 16 1, sem er skulda­bréfa­flokkur sem Lind­ar­vatn ehf. gaf út í mars 2016, sam­þykkt breyt­ingar á skil­málum skulda­bréf­anna. Skulda­bréfa­eig­endur veittu Íslands­banka hf. einnig veð­leyfi og leyfðu þing­lýs­ingu á trygg­ing­ar­bréfi að fjár­hæð um 1,7 millj­arða króna á fyrsta veð­rétti, sem sagt fram yfir veð­rétt skulda­bréfa­eig­enda.

Trygg­ing­ar­bréf að fjár­hæð um 1,7 millj­arða var gefið út þann 22. maí síð­ast­lið­inn þar sem Íslands­banki lof­aði að lána Lind­ar­vatni 1.750 millj­ónir króna til að fjár­magna upp­bygg­ingu Lind­ar­vatns á Lands­símareit. Þetta nýja lán fékk því 1. veð­rétt.

Segir rekstur félagsins í uppnámi

Samþykki skulda­bréfa­eig­enda er háð skil­málum sem finna má í fund­ar­gerð frá fund­inum sam­kvæmt sam­an­tekt Ragnars. Einn af skil­mál­unum segir til um í hvað nota eigi lánið frá Íslands­banka. Það skuli notað til að greiða eft­ir­stöðvar fram­kvæmda­kostn­aðar, til að end­ur­greiða brú­ar­lán frá Icelandair Group að fjár­hæð 355 millj­ónir króna, til að greiða afborg­anir og vexti af LIND 16 1 á fram­kvæmda­tíma og til að greiða almennan rekstr­ar­kostnað. Aðrir skil­málar eru svo sem bann við arð­greiðslu, van­skil og fleira en til­kynn­ing um skil­mála­breyt­ing­una hefur ekki verið birt í verð­bréfa­mið­stöð.

Ragnar segir að sam­kvæmt þessum upp­lýs­ingum megi vera ljóst „að verk­efni Lind­ar­vatns á Lands­símareit var í upp­námi í mars 2020.“

Óskar upplýsinga um „neyðarlán“ frá Icelandair

Í kjöl­farið óskar Ragnar eftir upp­lýs­ingum um hvenær og á hvaða kjörum Icelandair Group hafi sam­þykkt að lána Lind­ar­vatni „neyð­ar­lán“ að fjár­hæð 355 millj­ónir króna. Þá bendir hann einnig á það að í árs­reikn­ingi Icelandair Group fyrir árið 2019 komi fram að kröfur félags­ins á Lind­ar­vatn hafi numið 9,3 millj­ónum dala, eða um 1,1 millj­arði króna. Sú tala hefði hækkað frá fyrra ári þegar krafan var 1,6 millj­ónir dala, eða um 185 millj­ónir króna.

[links]

Þá segir í lok umfjöll­unar um skil­mála­breyt­ingu skulda­bréfa: „Miðað við fram­an­greinda skil­mála­breyt­ingu skuldar félagið nú a.m.k. 3.500 millj­ónir kr. meira en upp­haf­legar áætl­an­ir, sem stjórn Lind­ar­vatns og fram­kvæmda­stjóri lögðu til grund­vallar í febr­úar 2016. Þá verður skil­mála­breyt­ingin ekki skilin með öðrum hætti en að félagið hafi þurft á neyð­ar­láni að halda frá Icelandair að fjár­hæð 355 m.kr. vegna stöðu félags­ins.“

Svarar yfirlýsingum framkvæmdastjóra og Halldórs og Davíðs

Ragnar nýtir einnig tæki­færið í grein­inni til þess að svara ann­ars vegar yfir­lýs­ingu frá núver­andi fram­kvæmda­stjóra Lind­ar­vatns ehf, Jóhann­esi Stef­áns­syni, sem birt­ist á fés­bók­ar­síðu hans fyrr í mán­uð­inum og hins vegar frétta­til­kynn­ingu þeirra Halldórs Davíðs Þor­bergs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA), og Davíðs Þor­láks­sonar, for­stöðu­manns sam­keppn­is­hæfn­is­viðs SA, sem birt­ist á vef SA síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

„Fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns lét eins og félagið sigldi lygnan sjó og vék sér undan því að fjalla um við­bót­ar­lán­töku Lind­ar­vatns frá hlut­hafa, neyð­ar­lánið frá Icelandair og gerði yfir­höfuð engar efn­is­legar athuga­semdir við full­yrð­ingar mínar um stöðu félags­ins og verk­efn­is­ins,“ segir Ragnar.

„Enn er spurningum ósvarað“

Í síð­asta hluta sam­an­tektar sinnar tekur Ragnar saman nokkrar spurn­ingar sem honum finnst vera ósvarað: „sumar hafa komið áður fram og aðrar sem eru nýjar, sem aldrei hefur verið svar­að, hvorki af Lind­ar­vatni, stjórn­ar­mönnum eða fram­kvæmda­stjóra Lind­ar­vatns eða þeim sem að við­skipt­unum komu. Þess í stað hafa aðilar gefið yfir­lýs­ingar án þess að svara kjarna máls­ins,“ segir þar.

Þá gerir Ragnar ráð fyrir því að fjar­festar geri kröfu að upp­lýs­ingar verði opin­ber­aðar fyrir þátt­töku í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði. „Sam­an­tekt þessi hlýtur að kalla á óháða rann­sókn á mál­inu í heild sinni. Hvernig getur virði Lind­ar­vatns hækkað úr 934 m.kr. í 3.800 m.kr. á 8 mán­uð­um? Hverjar voru for­sendur við­skipt­anna? Hver er skuld­bind­ing IG vegna leigu­samn­ings um fast­eignir á Lands­símareit? Fjár­festar hljóta að gera kröfu um að allar upp­lýs­ingar um þetta mál verði opin­ber­ar áður en þeir taka þátt í hluta­fjár­út­boði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landssímareitur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár