„Ef einhver sparkar í mig þá sparka ég þrisvar á móti“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, nýtti helg­ina í að fara yfir stöð­una með sínum lög­mönnum og und­ir­búa varnir ef til máls­höfð­unar á hendur honum kemur. Von er á yfir­lýs­ingu frá honum í dag eða á morgun.

Ragnar Þór segir að mótlæti hafi í gegnum tíðina eflt sig.
Ragnar Þór segir að mót­læti hafi í gegnum tíð­ina eflt sig. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, und­ir­býr nú ásamt lög­mönnum sínum varnir í máli sem hann telur að geti verið höfðað á hendur honum vegna ummæla sem hann sendir frá sér í síð­ustu viku.

Ummælin lét Ragnar falla í við­tali við Frétta­blaðið síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Þar sagði Ragnar að margt benti til þess að Halldór Benjamín Þor­bergs­son og Davíð Þor­láks­son, starfs­menn Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefðu beitt sér fyrir því að líf­eyr­is­sjóðir hafi sett fjár­magn í end­ur­fjár­mögnun Lind­ar­vatns ehf. Félagið sér um upp­bygg­ingu hót­els á Lands­símareit við Aust­ur­völl. Icelandair heldur á helm­ings­hlut í félag­inu en Dalsnes ehf. á hinn helm­ing­inn.

[links]
Um helg­ina birt­ist yfir­lýs­ing frá þeim Halldóri Benjamín og Davíð á vef Samtaka atvinnu­lífs­ins þar sem þeir óska þess að full­yrð­ingar Ragnars verði dregnar til baka og að hann biðji hlut­að­eig­andi afsök­unar á ummæl­unum, ann­ars sé óhjá­kvæmi­legt að þau sem hafa orðið fyrir „órök­studdum dylgjum“ Ragnars íhugi rétt­ar­stöðu sína. Þá segir í yfir­lýs­ingu þeirra Halldórs og Davíðs að það sé skýrt brot á lands­lögum að „ásaka sak­laust fólk um svo alvar­lega hátt­semi sem hann hefur nú gert.“

Von er á yfirlýsingu í dag eða á morgun

„Ég geri alltaf ráð fyrir hinu versta og ég hræð­ist það ekki. Við erum að und­ir­búa varnir í mál­inu, eðli­lega. Ef ein­hver hótar þér mál­sókn þá ætlum við ekki bara að bíða eftir því að hún ber­ist. Við erum að und­ir­búa varnir okkar í mál­inu.“ segir Ragnar Þór í sam­tali við Kjarnann.

Spurður að því hvort hann geri ráð fyrir að málið vindi upp á sig svarar Ragnar ját­andi. Von sé á yfir­lýs­ingu frá Ragnari og hans lög­mönnum í dag eða á morgun sem svari yfir­lýs­ingu Halldórs Benja­míns og Davíðs. Þá segir hann nýjar upp­lýs­ingar um málið koma fram í yfir­lýs­ing­unni.

„Komið þið bara“

Ragnar segir að hann hafi fyrir löngu tekið ákvörðun um að ekki væri hægt að þagga niður í honum með hót­unum. „Þetta er bara eitt­hvað sem ég tók ákvörðun um fyrir löngu, löngu síðan. Það hefur auð­veldað mér í sjálfu sér mjög að taka þessa slagi. En svona mót­læti hefur eflt mig alveg gíf­ur­lega. Ef ein­hver sparkar í mig þá sparka ég þrisvar á móti.“

Í yfir­lýs­ing­unni sem von er á komi fram nýjar upp­lýs­ingar um málið, líkt og áður segir. „Síðan þegar við grípum til varna í mál­inu, verði það höfðað, þá höfum við frek­ari upp­lýs­ingar sem snúa að mun alvar­legri hlutum heldur en ég hef verið að benda á. Þannig að ég er ekki hræddur, hræð­ist ekki þessa menn eða hót­anir þeirra, ég segi: Komið þið bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landssímareitur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár