Halldór Benjamín og Davíð biðja Ragnar Þór um að draga „órökstuddar dylgjur“ til baka

Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri SA og Davíð Þor­láks­son for­stöðu­maður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs SA segja Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­mann VR hafa farið fram með órök­studdar dylgjur um þá og fleiri og óska eftir því að hann dragi orð sín til baka.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA. Mynd: Bára Huld Beck

Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) og Davíð Þor­láks­son for­stöðu­maður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs SA beina því til Ragnars Þór Ing­ólfs­sonar, for­manns VR að draga full­yrð­ingar sínar um þrýst­ing af hálfu þeirra tveggja vegna fjár­mögn­unar fram­kvæmda á hinum svo­kall­aða Land­símareit til baka.

Einnig fara þeir fram á að Ragnar biðj­ist afsök­unar, ella sé „óhjá­kvæmi­legt að þau sem hafa orðið fyrir órök­studdum dylgjum hans íhugi rétt­ar­stöðu sína.“

„Það getur ein­fald­lega ekki annað verið að hann geri það því það er skýrt brot á lands­lögum að ásaka sak­laust fólk um svo alvar­lega hátt­semi sem hann hefur nú gert,“ skrifa Halldór Benjamín og Davíð í grein sem birt­ist í dag á vef Samtaka atvinnu­lífsins, en til­efnið eru sögð orð Ragnar Þórs í við­tali við Frétta­blaðið á fimmtu­dag­inn.

Blaðið hafði óbeint eftir honum í inn­gangi greinar sem birt­ist á vef þess að verka­lýðs­for­ing­inn teldi að margt benti til þess að þeir Halldór Benjamín og Davíð hefðu beitt sér fyrir því að líf­eyr­is­sjóð­irnir settu pen­ing inn í Lind­ar­vatn ehf. Ragnar Þór sagð­ist þó ekk­ert vera að full­yrða um það, en sagði að fara þyrfti fram „óháð rann­sókn“ á því hver bæri ábyrgð á mál­inu, sem hann hefur tjáð sig um í löngu máli í Facebook-færslum að und­an­förnu. Ragnar Þór hefur gert miklar athuga­semdir við stöðu verk­efn­is­ins á Lands­símareitnum og sagt það dæmi um „spill­ingu“ innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Jóhannes Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns ehf., sagði í vik­unni að full­yrð­ingar hans stæð­ust ekki skoðun. Ragnar Þór svar­aði um hæl og sagði óreiðu hafa verið í rekstri Lind­ar­vatns und­an­farin ár, líf­eyr­is­sjóð­irnir væru lík­lega að fara að tapa fé á fjár­fest­ingu sinni í verk­efn­inu og á því bæru ein­hverjir ábyrgð.

„Er það Hall­dór Benja­mín eða Davíð Þor­láks­son? Ég veit það ekki. Eru það stjórn­endur Icelandair?“ sagði Ragnar Þór, í sam­tali sínu við blaða­mann Frétta­blaðs­ins. „Ég veit ekki hver söku­dólg­ur­inn er í þessu máli en al­mennt séð er saga at­vinnu­lífs­ins blóði drifin innan ís­lenska líf­eyris­sjóða­kerf­is­ins,“ bætti hann við.

Bæði Halldór Benjamín og Davíð störf­uðu áður hjá Icelandair Group, en þeir fara yfir málið í grein sinni í dag og segja að í störfum sínum fyrir félagið hafi þeir hvergi nær komið nálægt kaupum Icelandair á helm­ing hluta­fjár í Linda­vatni árið 2015. „Það voru aðrir starfs­menn félags­ins, auk ytri ráð­gjafa, sem sáu algjör­lega um þetta verk­efni,“ segja Halldór og Davíð, sem segja líka ein­falt að benda á að þeir hafi ekki beitt sér innan SA fyrir því að líf­eyr­is­sjóð­irnir tækju þátt í end­ur­fjár­mögnun Lind­ar­vatns í lok mars árið 2016, enda hafi hvor­ugur þeirra verið byrj­aður að starfa fyrir SA á þeim tíma­punkti.

„Öll þurfum við að þola gagn­rýni. Ekki síst stór­fyr­ir­tæki, stórir fjár­magns­eig­endur eins og líf­eyr­is­sjóðir, sam­tök sem til­nefna stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóða, sem og stjórn­endur slíkra sam­taka. Þegar þú hins vegar brigslar fólki um óheið­ar­leika og alvar­leg lög­brot, án þess að hafa nokkuð fyrir þér, þá ertu komin út fyrir öll mörk. Ekki síst ef þú ert aðili með greiðan aðgang að fjöl­miðlum og að fjölda fólks sem treystir þér og leggur trúnað á orð þín,“ segja Halldór Benjamín og Davíð um orð Ragnars Þórs.

Þeir bæta því við að það sé „sorg­leg stað­reynd“ og „umhugs­un­ar­efni fyrir alla sem styðja opna og lýð­ræð­is­lega umræðu í sam­fé­lag­inu“ að Ragnar Þór hafi ekki aflað sér upp­lýs­inga um málið hjá þeim sjálfum eða nokkrum sem því teng­ist, „áður en hann fór fram með þessar alvar­legu ásak­anir á opin­berum vett­vangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landssímareitur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár