Gistirými á höfuðborgarsvæðinu eykst um 20 prósent

Alls eru 51 þús­und fer­metrar af hótel- og gisti­rými í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Atvinnu­leysi nær hámarki á þriðja árs­fjórð­ungi og verður níu pró­sent á árinu, að mati fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­banka Íslands.

Hótel- og gisti­rými heldur áfram að aukast á næst­unni en alls eru 51 þús­und fer­metrar í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sú aukn­ing nemur fimmt­ungi af því rými sem til staðar er nú, að því er fram kemur í fund­ar­gerð frá fjórða fundi Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­banka Íslands sem birt var á vef bank­ans í vik­unni. 

Þá segir í fund­ar­gerð­inni að fjár­hæð útlána við­skipta­bank­anna með veði í gisti­rými og yfir 70% veð­setn­ingu hafi hækkað um tæp­lega 15% að raun­virði á síð­asta ári.

Nefndin fjallar á fund­inum um horfur í efna­hags­líf­inu, um banka­kerfið, fast­eigna­mark­að­inn, gjald­eyr­is­mark­að­inn og fjár­mála­stöð­ug­leika í land­inu. Ákvarð­anir voru teknar á fund­inum um að halda sveiflu­jöfn­un­ar­auka óbreyttum og að Seðla­bank­inn útfærði sér­stakan tíma­bund­inn veð­lán­ara­mma til að fjár­magna stuðn­ings­lán með 100% rík­is­á­byrgð, líkt og áður hefur komið fram.

Atvinnuleysi nái hámarki á þriðja ársfjórðungi

Nefndin spáir því að atvinnu­leysi nái hámarki á þriðja árs­fjórð­ungi og verði tæp­lega níu pró­sent á árinu öllu.

„Einka­neysla dróst veru­lega saman milli ára í mars og apríl en við­snún­ingur varð í maí. Störfum hefur fækkað veru­lega og atvinnu­leysi auk­ist. Spáð er að atvinnu­leysi nái hámarki á þriðja árs­fjórð­ungi og verði tæp­lega 9% á árinu öllu. Verð­bólga hafði ekki auk­ist þrátt fyrir lækkun á gengi krón­unnar þar sem lækkun olíu­verðs og alþjóð­leg lækkun mat­væla- og hrá­vöru­verðs hafa vegið á móti. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa jafn­framt hald­ist við mark­mið.”

Nefndin telur stuðn­ings­lán til fyr­ir­tækja mik­il­væg enda sé með þeim dregið úr líkum á greiðslu­falli lán­taka og stutt við útlána­gæði í fjár­mála­kerf­inu. Þannig styðji veit­ing stuðn­ings­lána við fjár­mála­stöð­ug­leika og brýnt sé að hvetja bank­ana til að veita þau. Því var ein­róma sam­þykkt á fund­inum að Seðla­bank­inn myndi útfæra sér­stakan tíma­bund­inn veð­lán­ara­mma stuðn­ings­lána á sömu kjörum og eru á sjö daga bundnum inn­lánum hjá bank­anum á hverjum tíma.

„Árs­fjórð­ungs­leg gögn benda til þess að í lok síð­asta árs og á fyrsta fjórð­ungi þessa árs hafi upp­taktur fjár­mála­sveifl­unnar að mestu stöðvast. Skulda­sveifla einka­geirans var enn í upp­takti en hús­næðis- og fjár­mögn­un­ar­sveiflan að mestu staðn­aðar. Aðgerðir stjórn­valda tengdar far­sótt­inni gætu blásið lífi í hús­næð­is­sveifl­una og lík­legt er að upp­taktur skulda­sveifl­unnar auk­ist á nýjan leik, einkum vegna auk­inna útlána til heim­ila til fast­eigna­kaupa og brúar- og stuðn­ings­lána til fyr­ir­tækja. Þetta gæti aukið upp­takt fjár­mála­sveifl­unnar á nýjan leik.

Almennt virt­ist samt áhættu­vilji hafa minnkað í fjár­mála­kerf­inu sl. ár sem gæti haft nei­kvæð áhrif á upp­takt fjár­mála­sveifl­unnar ef áhrif­anna gætir til lengri tíma litið,” er meðal þess sem fram kemur í fund­ar­gerð­inni.

Nefndin hefur ekki áhyggjur af fjármálastöðugleika

Almennt ræddi nefndin um slökun á aðhaldi vegna far­sótt­ar­innar. „Víða erlendis hafa lágir og jafn­vel nei­kvæðir vextir verið við lýði um nokk­urt skeið og það sam­hliða slak­ara aðhaldi fjár­mála­stöð­ug­leika­stefn­unnar hefur ýtt undir áhyggjur af stöðu fjár­mála­stöð­ug­leika. Aðstæður hér á landi eru aðrar, slak­ara aðhald er nýlega til­komið sem við­brögð við dökkum efna­hags­horfum."

Segir í fund­ar­gerð að þrátt fyrir slak­ara aðhald fjár­mála­stöð­ug­leika­stefn­unnar hér á landi hafi nefndin enn sem komið er „ekki áhyggjur" af stöðu fjár­mála­stöð­ug­leika.

Aukið laust fé í umferð virð­ist ekki hafa leitt til auk­inna útlána til fyr­ir­tækja og aðgengi þeirra fjár­magni í gegnum banka­kerfið sé ein­hverju leyti tak­markað. Útlána­aukn­ing einka­geirans und­an­farna mán­uði sé þannig nær ein­göngu fast­eigna­lán til heim­ila.

„Óhóf­legur skulda­vöxtur og ósjálf­bærar hækk­anir á eigna­mörk­uðum eru því enn sem komið er ekki áhyggju­efni hér á landi," segir í fund­ar­gerð.

Nefnd­ar­menn töldu þó mik­il­vægt að allir yrðu við­búnir því að núver­andi ástand væri tíma­bundið. Herða þyrfti aðhald að nýju þegar áhrif far­sótt­ar­innar og sótt­varn­ar­að­gerða myndu fjara út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár