ASÍ fer fram á viðræður við stjórnvöld um brostnar forsendur lífskjarasamninga

Í ályktun mið­stjórnar Alþýðu­sam­bands Íslands er farið fram á við­ræður við stjórn­völd um brostnar for­sendur lífs­kjara­samn­ing­anna. Mið­stjórnin segir stjórn­völd ekki hafa staðið við sinn hluta þeirra.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands segir að stjórn­völd hafi ekki staðið við sinn hluta lífs­kjara­samn­ing­anna, meðal ann­ars varð­andi hús­næð­is­mál, verð­trygg­ingu, man­sal og félags­leg und­ir­boð og sekt­ar­á­kvæði vegna kjara­samn­ings­brota.

Alþýðu­sam­bandið fer fram á við­ræður við stjórn­völd um samn­ing­ana og þau lof­orð sem þar eru gefin, sam­kvæmt því sem fram kemur í ályktun mið­stjórn­ar­innar í dag.

Þar segir að for­sendur lífs­kjara­samn­ing­anna séu sam­kvæmt orð­anna hljóðan brostnar. Einnig lýsir mið­stjórnin yfir þungum áhyggu­jum af stöðu launa­fólks og atvinnu­leit­enda með haustinu, í ljósi atvinnu­á­stands­ins og segir stuðn­ingi stjórn­valda hafa verið beint til fyr­ir­tækja, fremur en fólks.

„Mik­il­væg­asta aðgerðin til að milda áhrifin fyrir ein­stak­linga og heim­ili, og þannig fyrir efna­hags­lífið, er að hækka atvinnu­leys­is­bætur og lengja tíma­bil tekju­teng­ingar. Þá verður að grípa til almennra aðgerða til að verja heim­ilin. Mið­stjórn ASÍ fer fram á að stjórn­völd taki af skarið um úrbætur þegar í stað,“ segir einnig í álykt­un­inni.

Engin efnahagsleg nauðsyn fyrir niðurskurði

Mið­stjórnin hafnar enn­fremur öllum til­lögum sem lúta að því að „senda reikn­ing­inn“ vegna björg­un­ar­að­gerða stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins til almenn­ings á næstu árum.

„Það er engin efna­hags­leg nauð­syn að skera niður í heil­brigðis-, mennta- og vel­ferð­ar­kerf­inu, selja opin­berar eigur, auka gjald­töku eða ráð­ast í einka­væð­ingu eða einka­rekstur. Slíkar aðgerðir eru allar til þess fallnar að dýpka krepp­una og auka á afkomu- og skulda­vanda ein­stak­linga og heim­ila,“ segir mið­stjórn ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár