Félag prófessora við Háskólann í Reykjavík og Rannsóknarráð Háskólans í Reykjavík taka undir með yfirlýsingu prófessora við ríkisháskóla vegna ráðningar ritstjóra fræðitímaritsins Nordic Economic Policy Review, en þetta kemur fram sameiginlegri yfirlýsingu frá félaginu og rannsóknarráðinu í dag.[links]
Stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla (FPR) fundaði um mál Þorvaldar Gylfasonar á þriðjudaginn og sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem pólitískum afskiptum íslenska fjármálaráðuneytisins af ráðningarmálum tímaritsins var mótmælt harðlega.
„Þessi afskipti skortir málefnalegan grundvöll og afhjúpa skilningleysi á vísindastarfsemi. Þau setja hið norræna tímarit niður og eru ráðuneytinu til álitshnekkis. Íslenskt samfélag þarf síst á því að halda að stjórnvöld leggi stein í götu vísindamanna sem falast er eftir til starfa í krafti þekkingar sinnar,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu FPR, sem prófessorar við HR og rannsóknaráð háskólans hafa nú tekið undir.
[adspot]
Ráðherra segir yfirlýsinguna ekki hafa neitt vægi
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra ræddi um yfirlýsingu prófessorafélagsins á Alþingi í dag og sagði hann félagið hafa fallið á prófinu með yfirlýsingu sinni, sem hefur að hans mati ekkert vægi.
Hann sagði FPR ekki hafa tekið tillit til ólíkra sjónarmiða, ekki getið heimilda, byggt á einhliða frásögn af málinu og komist að niðurstöðu algjörlega án þess að ígrunda allar hliðar málsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir